Caroline Hollebrandse skrifaði:
Kan het voorpand en achterpand ook op gewone breinaalden 3.5 / 4.5 gebreid worden? Er moet immers heen en weer gebreid worden.
08.10.2021 - 21:25DROPS Design svaraði:
Dag Caroline,
Jazeker, je kan dit patroon ook op gewone rechte naalden met knop breien.
16.10.2021 - 13:58
Ida Hassing Kristensen skrifaði:
Hvordan ved man hvilke mål de forskellige størrelser har?
31.08.2021 - 20:30DROPS Design svaraði:
Hej Ida, du finder målene i de forskellige størrelser i måleskitsen nederst i opskriften :)
01.09.2021 - 16:01
Trine skrifaði:
Mangler en del på denne oppskriften ?
26.08.2021 - 11:34DROPS Design svaraði:
Hej Trine, så er opskriften lagt ud - tak for info :)
27.08.2021 - 08:30
Eva skrifaði:
Diamond sweater
24.08.2021 - 23:32
Norunn Eiane skrifaði:
Hei, Det mangler en del av oppskriften på denne genseren.
24.08.2021 - 21:16
Ekaterina skrifaði:
Model "Warm networks"
06.08.2021 - 10:57
Johanna skrifaði:
Moroccan Melody
05.08.2021 - 14:44
Anna-Lena M S Nerland skrifaði:
My favourite 🤩 my suggest for name: harlequin sweater
05.08.2021 - 09:26
Deep Sea Diamond#deepseadiamondsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma eða DROPS Saga. Stykkið er prjónað með áferðamynstri, klauf í hliðum og háum kraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-3 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 127 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 125 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 32) = 3,9. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 4. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca 3. og 4. hver lykkja slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir kantlykkjur. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkju slétt (merkið situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Síðan við frágang eru stykkin saumuð saman. Að lokum er prjónaður hár kragi í hring á hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 127-136-148-160-172-190 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Karisma eða DROPS Saga. Prjónið stroff þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 11 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 32-33-37-39-41-47 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 95-103-111-121-131-143 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (ysta kantlykkjan í hvorri hlið er prjónuð slétt). Síðan er annað hvort hægt að prjóna sléttprjón á bakstykki, eða mynstur alveg eins og á framstykki. Ef prjónað er sléttprjón, prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Ef prjónað er mynstur eins og á framstykki, prjónið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 6-6-10-11-12-14 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir næstu 80-88-88-96-104-112 lykkjur (= 10-11-11-12-13-14 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið fyrstu lykkjuna í A.2, 6-6-10-11-12-14 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Uppskriftin er síðan útskýrð með mynstri. Ef þú prjónar sléttprjón, prjónið sléttprjón í stað mynsturs. Haldið áfram með mynstur fram og til baka þannig: ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af 2-2-4-7-8-10 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á næstu 2 umferðum = 91-99-103-107-115-123 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir miðju 81-89-89-97-105-113 lykkjur í umferð, 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið nú af miðju 31-31-33-33-35-35 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 29-33-34-36-39-43 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 127-136-148-160-172-190 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Karisma eða DROPS Saga. Prjónið stroff þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjón, A.1 þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 11 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 32-33-37-39-41-47 lykkjur jafnt yfir = 95-103-111-121-131-143 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (ysta kantlykkjan í hvorri hlið er prjónuð slétt). Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 6-6-10-11-12-14 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir næstu 80-88-88-96-104-112 lykkjur (= 10-11-11-12-13-14 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið fyrstu lykkjuna í A.2, 6-6-10-11-12-14 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af 2-2-4-7-8-10 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á næstu 2 umferðum = 91-99-103-107-115-123 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir miðju 81-89-89-97-105-113 lykkjur í umferð, 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm, setjið miðju 25-25-27-27-29-29 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 1 lykkju 4 sinnum = 29-33-34-36-39-43 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 51-54-57-60-63-66 lykkjur á sokkaprjóna 3,5. Prjónið A.1 hringinn í 11 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 13-12-11-10-9-8 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 64-66-68-70-72-74 lykkjur. Setjið eitt merki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 15-15-15-15-15-17 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merki undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 15-14-9-6½-5-3½ cm millibili alls 2-3-4-5-6-7 sinnum = 68-72-76-80-84-88 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 49-48-47-45-44-42 cm. Prjónið nú ermakúpuna fram og til baka á hringprjón að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist alls 50-49-49-49-48-47 cm, þ.e.a.s. það myndast lítil klauf 1-1-2-4-4-5 cm efst á ermi. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klauf est á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður þar sem stroffið endar (= 11 cm klauf í hvorri hlið). HÁR KRAGI: Prjónið upp 108 til 126 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með DROPS Karisma eða DROPS Saga innan við 1 kantlykkju í kringum hálsmál. Prjónið A.1 hringinn í 11 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #deepseadiamondsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.