Mayan Woods Cardigan |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og stroffprjóni á berustykki. Stærð 3 til 14 ára.
DROPS Children 40-22 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 150 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 140 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 21) = 6,7. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 6. og 7. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónað í þessu dæmi til skiptis ca 5. og 6. hver lykkja og 6. og 7. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 7-6½-7-6½-7-8 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSI: Fitjið upp 87-89-93-97-97-101 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 3 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-4-4-4 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð er aukið út í brugðnu einingunum þannig: STÆRÐ 3/4 - 7/8 - 9/10 ÁRA: Prjónið eins og áður jafnframt sem þriðja hver 1 lykkja brugðið (séð frá réttu) er aukin út til 2 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn – byrjið í þriðju brugðnu lykkjunni eftir kant að framan (uppslátturinn frá útaukningum er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð frá röngu) = 12-13-14 lykkjur fleiri = 99-106-111 lykkjur. STÆRÐ 5/6 - 11/12 - 13/14 ÁRA: Prjónið eins og áður jafnframt sem önnur hver 1 lykkja brugðið (séð frá réttu) er aukin út til 2 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn – byrjið í annari brugðnu lykkjunni eftir kant að framan (uppslátturinn frá útaukningum er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð frá röngu) = 19-21-22 lykkjur fleiri = 108-118-123 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 5-5-5-6-6-6 cm. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 1-0-2-5-2-1 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNINGU/ÚRTAKA = 100-108-108-116-120-124 lykkjur. Eftir garðaprjón er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni * A.1 (= 2 lykkjur), A.2 (= 2 lykkjur) *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1 og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Eftir fyrstu umferð eru 145-157-157-169-175-181 lykkjur í umferð. Prjónið A.1 og A.2 til loka, haldið síðan áfram með 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm frá prjónamerki við háls. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * A.3 (= 3 lykkjur), A.4 (= 3 lykkjur) *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.3 og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Eftir fyrstu umferð eru 235-255-255-275-285-295 lykkjur í umferð. Prjónið A.3/A.4 til loka, haldið síðan áfram með 5 lykkjur slétt, 5 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 14-14-16-16-18-18 cm frá prjónamerki við háls. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 230-242-254-266-278-294 lykkjur – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm frá prjónamerki við háls. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. í næstu umferð er prjónað þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 37-39-41-43-45-47 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 46-48-50-52-54-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 64-68-72-76-80-84 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 46-48-50-52-54-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 37-39-41-43-45-47 lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 150-158-166-174-182-190 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Prjónið þar til stykkið mælist 19-22-25-28-30-32 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi stykki saman, aukið nú út lykkjur eins og útskýrt er að neðan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 21-21-23-25-25-27 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 171-179-189-199-207-217 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 40-44-48-52-55-58 cm frá öxl og niður. ERMAR: Setjið 46-48-50-52-54-58 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-54-56-58-60-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4.-4.-4.-6.-6.-6. hverri umferð alls 4 sinnum á hæðina = 44-46-48-50-52-56 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 21-25-29-31-35-39 cm frá skiptingu. Nú eru ca 3 cm til loka máls, mátaðu e.t.v. peysuna og prjónaðu að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 40-42-44-46-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 24-28-32-34-38-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (13)
Francesca wrote:
Cosa vuol dire costa in piano? grazie.
18.05.2024 - 18:06DROPS Design answered:
Buonasera Francesca, deve lavorare 2 ferri a maglia legaccio. Buon lavoro!
20.05.2024 - 23:26Roswitha Frau Krainer wrote:
Auf welcher Seite die 6Maschen zunehmen beim Ärmel rechts oder links
02.05.2024 - 14:01DROPS Design answered:
Liebe Frau Krainer, die neue 6 angeschlagenen Maschen sollen wie bei dieser Lektion, ab Bild 10 angeschlagen; alle Maschen werden dann beim Rumfpteil glatt rechts gestrickt (mit Blenden-Maschen wie zuvor). Viel Spaß beim Stricken!
02.05.2024 - 15:38Denise Andersson wrote:
OK: Byt till rundsticka 4. Nu stickas det 2 varv rätstickning fram och tillbaka över alla maskorna – SAMTIDIGT på första varvet ökas det 1-0-2-5-2-1 maskor jämnt fördelat När det är dags för nästa grupp/ökning så står det inte att man ska sticka 2 räta varv. Men det ser ut som det skall göras om jag tittar på bilden på koftan.
02.05.2023 - 20:02Denise Andersson wrote:
Det står att jag ska sticka 5 framkantsmaskor och att det är beskrivet ovan hur man gör. Men den beskrivningen hittar jag inte på mönstret. Såå hur gör jag?
28.04.2023 - 16:07DROPS Design answered:
Hei Denise. Jo, det står så her: 5 framkantsmaskor i RÄTSTICKNING - läs förklaring ovan. Scroll opp og helt øvert i oppskriften rett under FÖRKLARING TILL BESKRIVNINGEN, står det: RÄTSTICKNING (stickas fram och tillbaka): Alla varv stickas räta. mvh DROPS Design
02.05.2023 - 09:10Mimma wrote:
Salve, vorrei un chiarimento sullo schema perché non riesco a proseguire dopo la la 1 costa e il cambio dei ferri 4 cm. Per fare A1 e A2 ed essendo sul dritto del lavoro, si devono alternare 1 m dritta1 m a rovescio per 3 volte e poi 1 m a rovescio e 1 a dr per altre 3 volte fino a 7 m dalla fine? Non capisco poi non essendoci aumenti nel 1 ferro come si arriva, nel mio caso la misura più piccola, da 100 maglie a 145. Grazie mille per la vostra cortese risposta.
14.02.2023 - 23:48DROPS Design answered:
Buonasera Mimma, il 1° giro è identico per entrambi i diagrammi e si lavora con 1 maglia diritto, 1 gettato, 1 maglia diritto, quindi 1 aumento ad ogni ripetizione del diagramma. Da 100 maglie togliendo le 5 maglie per lato per il bordo il diagramma si lavora su 90 maglie, per cui 45 ripetizioni, per un totale di 45 aumenti, passando da 100 a 145 maglie. Buon lavoro!
15.02.2023 - 20:06Lidi Van Overveld wrote:
Ik zou graag wat meer uitleg over het telpatroon ontvangen. In de beschrijving staat A.1 (=2 steken). In het telpatroon staan 3 hokjes. Moet er dan een steek bijgemaakt worden?
07.02.2023 - 16:24DROPS Design answered:
Dag Lidi,
Je leest de telpatronen van onder naar boven, dus A.1 heeft 2 steken op de eerste toer. (Tussen deze 2 steken zit een omslag.)
08.02.2023 - 11:20Rosanne Squire wrote:
Is this pattern available in adult size, or closest similar design
04.07.2022 - 03:39DROPS Design answered:
Dear Mrs Squire, you will find the matching design for adult here. Happy knitting!
04.07.2022 - 08:38Deborah Schroeder wrote:
I am making the Mayan Woods Cardigan , size 9/10 years. I have followed the rib pattern given until I have 111 stitches; after the first increases. I am now at the YOLK section. There it instructs to change to 4MM needles and increase 3 stitches for size 9/10. It then states I should have 116 stitches! How can that be? It doesn’t add up! 111 sts. plus 3 sts. increased = 114 sts. Do I add another two stitches? Is this an error in the pattern ?
21.04.2022 - 23:35DROPS Design answered:
Dear Deborah, we will send your question to the design department to check if there is a mistake in the pattern. Happy knitting!
23.04.2022 - 17:13CATHERINE PONCIN wrote:
Merci pour votre réponse rapide !!
19.04.2022 - 19:03Catherine wrote:
Bonjour, j'ai commencé le col pour ce modèle, j'ai fait les 13 jetés pour les augmentations à 3 cms mais je ne sais pas comment continuer après le rang tricoté avec les mailles torses à l'endroit. En côtes 1/1 avec ces augmentations, le motif des côtes est décalé. Faut-il tricoter 5 mailles point mousse, *1 maille endroit / 2 mailles envers* à répéter jusqu'aux 5 mailles de bordure suivantes ? ou pouvez-vous m'indiquer comment faire ? Merci pour votre réponse. Cordialement
19.04.2022 - 10:17DROPS Design answered:
Bonjour Catherine, continuez en tricotant les mailles comme elles se présentent, autrement dit vous aurez des côtes *1 maille endroit /1 maille envers/1 maille endroit/1 maille envers/1 maille endroit/2 mailles envers* (vu sur l'endroit). Bon tricot!
19.04.2022 - 12:01