Tina Borup skrifaði:
Strikker str 7/8 år \r\nHar strikket sadel skulderen og skal nu til at tage ud til ærmerne \r\nI følge opskriften skal arbejdet måle 6 cm\r\nMit måler 9 på midten. \r\nHvad har jeg misforstået \r\nMed venlig hilsen Tina
20.02.2025 - 17:56
Pff skrifaði:
Wat een plezierig patroon! Vooral omdat je de lengte goed kunt bepalen, als de trui gepast wordt!
26.09.2024 - 19:25
Irina Junkermann skrifaði:
Hallo, gibt es eine Video zur Sattelschulterzunahme? Schoene Grueße
14.03.2024 - 20:07DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Junkermann, dieses Video zeigt, wie man für die Sattelschulter zunimmt. Unter Tab "Videos" oben am Kopfteil finden Sie noch mehr passenden Videos. Viel Spaß beim Stricken!
15.03.2024 - 08:22
Fanny skrifaði:
Bonjour ! Lors de l'augmentation empiècement, il est indiqué qu'on augmente au total de 8 mailles à chaque rang d'augmentation. En comptant au fur et à mesure, j'arrive à 6... Erreur ? Merci !
10.11.2023 - 13:59DROPS Design svaraði:
Bonjour Fanny, on doit augmenter 8 mailles pour l'empiècement: 2 mailles pour chaque manche + 2 mailles pour le dos + 2 mailles pour le devant (= 1 maille de chaque côté du marqueur). Vérifiez bien votre nombre d'augmentations pour tomber juste. Bon tricot!
10.11.2023 - 14:15
Anne skrifaði:
Bonjour, Le bas des manches est très large encore plus avec l'augmentation de 6 mailles. J'ai recommencé en réduisant de 6 mailles. C'est mieux mais encore large. Il n'y a pas d"erreur ?
03.12.2022 - 16:05DROPS Design svaraði:
Bonjour Anne, les mesures correspondent à celles utilisées habituellement, vérifiez bien votre tension avant de changer d'aiguilles et utilisez des aiguilles plus fines pour les côtes ou bien augmentez moins si besoin. Bon tricot!
12.12.2022 - 15:29
Chris skrifaði:
Bonjour, pourquoi le nombre de mailles à monter sous les manches n’est-il pas le même à droite +8 mailles en 14 ans) qu’à gauche (+7 mailles)? Merci
20.02.2022 - 12:29DROPS Design svaraði:
Bonjour Chris, c'est une erreur, merci de l'avoir relevée, on doit bien monter le même nombre de mailles pour les 2 manches, soit 8 dans votre taille. Bon tricot!
21.02.2022 - 10:46
EMANUELA skrifaði:
Buongiorno, sto facendo il modello per mio figlio, una precisazione: nelle MANICHE, quando devo riprendere le maglie sospese devo usare i ferri n. 5 e non 4 come indicato....giusto? Alla fine, per i polsi, passo ai ferri n. 4.....
07.01.2022 - 14:31DROPS Design svaraði:
Buonasera Emanuela, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo e inviato la segnalazione al settore design. Buon lavoro!
07.01.2022 - 16:45
Małgorzata Świątkowska skrifaði:
Dzień dobry, czy rozmiar drutów należy rozumieć w milimetrach? Które z drutów Drops Pro Romance mają wg wzoru zostać tu użyte?
01.01.2022 - 20:22DROPS Design svaraði:
Witaj Małgorzato, rozmiary drutów są podawane w mm. Nie musisz kupować całego zestawu, wystarczą druty z żyłką nr 4 i 5 o dł. 80 cm. Możesz na nich również wykonać wykończenie dekoltu czy mankiety korzystając z techniki magic loop TUTAJ lub użyć drutów pończoszniczych. Pozdrawiamy!
01.01.2022 - 23:13
Charlene skrifaði:
I just had fun making this sweater for my grandson for Christmas. Your directions were easy to understand and follow. I look forward to making more sweaters from your designs for my other grandchildren. Thank you!
28.10.2021 - 23:04
Outdoor Adventure#outdooradventuresweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti. Stærð 3 til 14 ára.
DROPS Children 40-19 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 62 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 6,2. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir jmeð því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti, ermar og berustykki): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar og að lokum eru lykkjur auknar út fyrir berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 62-62-66-66-70-70 lykkjur á hringprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 10 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 = 72-72-76-76-80-80 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan) – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti. Fyrsta prjónamerki: Byrjið mitt að aftan, teljið 12-12-11-11-12-12 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. Annað prjónamerki: Teljið 12-12-16-16-16-16 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 24-24-22-22-24-24 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 12-12-16-16-16-16 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 12-12-11-11-12-12 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki (= bakstykki). Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar! Stykkið er prjónað í sléttprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Haldið svona áfram hringinn og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 10-12-14-16-18-20 sinnum = 112-120-132-140-152-160 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 4-5-6-7-8-9 cm frá prjónamerki mitt að aftan. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 8-9-8-9-11-13 sinnum = 144-156-164-176-196-212 lykkjur. Stykkið mælist ca 11-12-13-15-18-21 cm frá prjónamerki mitt að aftan. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Nú er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. og 3. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á undan prjónamerki, prjónið 1 lykkju, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón og aukið út um 1 lykkju eftir prjónamerki. Prjónið að 2. og 4. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á undan prjónamerki, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju og aukið út um 1 lykkju á eftir prjónamerki (= alls 8 lykkjur fleiri). Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og ermum. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 4-4-4-3-2-1 sinnum = 176-188-196-200-212-220 lykkjur. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar, mælist stykkið ca 15-17-17-18-20-22 cm frá kanti í hálsi. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram eins og áður án útaukninga að réttu máli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig: Prjónið yfir fyrstu 26-28-29-30-32-33 lykkjurnar (hálft bakstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi, prjónið 52-56-58-60-64-66 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi, prjónið yfir síðustu 26-28-29-30-32-33 lykkjur (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 116-124-128-136-144-148 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 14-16-19-22-22-22 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 24-26-26-28-30-30 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 = 140-150-154-164-174-178 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að stroffið sem prjóna á, dragi ekki stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjóna 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið svona áfram með stroffið í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 36-38-40-40-42-44 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 - prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-6-7-8-9-11 cm millibili alls 4 sinnum í öllum stærðum = 34-36-38-40-42-44 lykkjur eftir. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 20-23-28-32-35-38 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út um 6 lykkjur jafnt yfir = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING! Ermin mælist ca 24-27-32-36-39-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #outdooradventuresweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.