Doves Bay#dovesbaysweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Light eða DROPS Sky. Stykkið er prjónað með gatamynstri, köðlum og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 221-17 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í A.1. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í hlutum og prjónað er neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í stroffprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 112-118-126-138-150-162 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 3 með Cotton Light eða Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið jafnframt um 1 lykkju í fyrstu umferð = 111-117-125-137-149-161 lykkjur. Prjónið síðan þannig frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 0-3-1-2-2-2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 yfir næstu 24-24-30-30-36-42 lykkjur (= 4-4-5-5-6-7 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið 3 fyrstu lykkjurnar í A.1 þannig að A.1 byrji og endi alveg eins, prjónið A.2 (= 25-25-25-29-29-29 lykkjur), prjónið A.3 (= 5-5-5-7-7-7 lykkjur), prjónið A.2 (= 25-25-25-29-29-29 lykkjur), prjónið A.1 yfir næstu 24-24-30-30-36-42 lykkjur (= 4-4-5-5-6-7 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið 3 fyrstu lykkjur í A.1 þannig að A.1 byrjið og endi alveg eins, prjónið 0-3-1-2-2-2 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-1-1-3-4-4 sinnum og 1 lykkja 3-2-4-4-3-7 sinnum í hvorri hlið = 99-103-107-111-115-119 lykkjur. Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm, fækkið um 4 lykkjur mitt að aftan með því að prjóna lykkjur í hvorum af 2 miðju köðlum slétt saman 2 og 2 = 95-99-103-107-111-115 lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af miðju 33-33-35-35-37-37 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = 29-31-32-34-35-37 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 2 lykkjur jafnt yfir = 27-29-30-32-33-35 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Bakstykkið mælist ca 47-49-51-53-55-57 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafn magar lykkjur og á bakstykki og prjónið alveg eins og bakstykki þar til stykkið mælist 38-40-41-43-44-46 cm. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 4 lykkjur mitt að framan með því að prjóna lykkjur í hvorum 2 miðju köðlum slétt saman 2 og 2 = 95-99-103-107-111-115 lykkjur. Í næstu umferð er miðju 13-13-15-15-17-17 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 29-31-32-34-35-37 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 2 lykkjur jafnt yfir = 27-29-30-32-33-35 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Bakstykkið mælist ca 47-49-51-53-55-57 cm frá öxl og niður. ERMI: Fitjið upp 46-48-50-52-54-56 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3 með Cotton Light eða Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 2 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan þannig (1. umferð = rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1-2-0-1-2-0 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 þar til 2-3-1-2-3-1 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1-2-0-1-2-0 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar ermin mælist 4-4-8-5-9-6 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 14-16-17-19-20-22 sinnum í hvorri hlið = 74-80-84-90-94-100 lykkjur. Þegar ermin mælist 45-44-44-43-41-40 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum og 1 lykkja 2-4-4-4-6-7 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist 50 cm í öllum stærðum. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 51 cm ofan frá og niður í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana innan við affellingarkantinn. Saumið ermar innan við 1 kantlykkju á fram- og bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við aðra öxlina og prjónið upp ca 90 til 110 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 3 með Cotton Light eða Sky – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dovesbaysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.