DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3740.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Doves Bay Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Light eða DROPS Sky. Stykkið er prjónað með gatamynstri, köðlum og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 221-9
DROPS Design: Mynstur cl-113
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-700-800 g litur 02, hvítur

Eða notið:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-300-350-350-400-450 g litur 01, hvítur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón og mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir kanta.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 5-5-6-6-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3740.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2).
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið síðan umferð 2.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í A.1.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = Prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist
S: 2, 11, 20 og 29 cm
M: 2, 12, 21 og 31 cm
L: 2, 10, 18, 26 og 34 cm
XL: 2, 10, 19, 27 og 36 cm
XXL: 2, 10, 19, 27 og 36 cm
XXXL: 2, 11, 20, 29 og 38 cm
ATH: Síðasta hnappagatið sem ekki er með í útskýringu hér, er fellt af í kanti í hálsmáli.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í hlutum og prjónað er neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í perluprjóni.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 101-113-119-131-143-155 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 3 með Cotton Light eða Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Prjónið síðan þannig frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð (= 16-18-19-21-23-25 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið 3 fyrstu lykkjurnar í A.1 þannig að mynstrið byrji og endi aldveg eins í hvorri hlið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig:
Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-1-1-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 2-4-5-5-6-8 sinnum í hvorri hlið = 91-95-99-103-107-111 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm, fellið af miðju 33-33-35-35-37-37 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = 27-29-30-32-33-35 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu.
Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Bakstykkið mælist ca 45-47-49-51-53-55 cm frá öxl og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 60-66-68-74-80-86 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan og 1 kantlykkju í hlið) á hringprjón 3 með Cotton Light eða Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að framan): Prjónið 5 kantlykkjur að framan í PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í perluprjóni við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið og fækkið jafnframt um 1-1-0-0-0-0 lykkju í fyrstu umferð = 59-65-68-74-80-86 lykkjur. Munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið síðan frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að framan): 5 kantlykkjur að framan í perluprjóni, prjónið A.2 (= 25-25-25-29-29-29 lykkjur), prjónið 1-1-4-0-0-0 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð (= 4-5-5-6-7-8 mynstureiningar
með 6 lykkjum), prjónið 3 fyrstu lykkjurnar í A.1 og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið. Haldið svona áfram með mynstur.

Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-1-1-3-3-4 sinnum og 1 lykkju 2-4-5-5-6-8 sinnum = 54-56-58-60-62-64 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 36-38-39-41-42-44 cm, fækkið 2 lykkjur yfir kaðli næst miðju að framan með því að prjóna lykkjur í sjálfum kaðlinum slétt saman 2 og 2 = 52-54-56-58-60-62 lykkjur.
Í næstu umferð frá réttu eru fyrstu 11-11-12-12-13-13 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, eru lykkjurnar prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn.
Prjónið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig:
Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 29-31-32-34-35-37 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 2 lykkjur jafnt yfir = 27-29-30-32-33-35 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Framstykkið mælist ca 45-47-49-51-53-55 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 60-66-68-74-80-86 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan) á hringprjón 3 með Cotton Light eða Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð og endið með 5 kantlykkjum að framan í perluprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í perluprjóni við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið og fækkið jafnframt um 1-1-0-0-0-0 lykkju í fyrstu umferð = 59-65-68-74-80-86 lykkjur.
Prjónið síðan frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið): 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 24-30-30-36-42-48 lykkjur (= 4-5-5-6-7-8 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið 3 fyrstu lykkjurnar í A.1, prjónið 1-1-4-0-0-0 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 25-25-25-29-29-29 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í perluprjóni við miðju að framan. Haldið svona áfram með mynstur.

Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-1-1-3-3-4 sinnum og 1 lykkju 2-4-5-5-6-8 sinnum = 54-56-58-60-62-64 lykkjur. Þegar stykkið mælist 36-38-39-41-42-44 cm, fækkið um 2 lykkjur yfir kaðli næst miðju að framan með því að prjóna lykkjur í sjálfum kaðlinum slétt saman 2 og 2 = 52-54-56-58-60-62 lykkjur.
Í næstu umferð frá röngu eru fyrstu 11-11-12-12-13-13 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, eru lykkjurnar prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn.
Prjónið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig:
Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 29-31-32-34-35-37 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 2 lykkjur jafnt yfir = 27-29-30-32-33-35 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Framstykkið mælist ca 45-47-49-51-53-55 cm.

ERMI:
Fitjið upp 46-48-50-52-54-56 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3 með Cotton Light eða Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 2 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Prjónið síðan þannig (1. umferð = rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1-2-0-1-2-0 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 þar til 2-3-1-2-3-1 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1-2-0-1-2-0 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar ermin mælist 4-4-8-5-9-6 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 14-16-17-19-20-22 sinnum í hvorri hlið = 74-80-84-90-94-100 lykkjur.
Þegar ermin mælist 45-44-44-43-41-40 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum og 1 lykkja 2-4-4-4-6-7 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist 50 cm í öllum stærðum. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru.
Ermin mælist ca 51 cm ofan frá og niður í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana innan við affellingarkantinn. Saumið ermar innan við 1 kantlykkju á fram- og bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu við aðra öxlina og prjónið upp ca 101 til 115 lykkjur í kringum hálsinn (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 3 með Cotton Light eða Sky – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1.
Fyrsta umferð er prjónið frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í perluprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í perluprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm, en eftir ca 1 cm er fellt af fyrir síðasta hnappagatinu í hægri kanti að framan.
Þegar kantur í hálsi hefur verið prjónaður til loka, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur -sjá AFFELLING!
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.05.2022
Ný mynsturteikning A.1.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = Kúla: Prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið, 1 lykkju slétt í sömu lykkju (= 3 lykkjur í kúlu, þ.e.a.s. 2 lykkjur fleiri). Prjónið 3 umferðir sléttprjón fram og til baka yfir þessar 3 lykkjur. Í næstu umferð (rétta) eru allar 3 lykkjurnar prjónaðar slétt saman (= 2 lykkjur færri)

diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Doves Bay cardigan

Sonja, Slovakia

Doves Bay Cardigan

Maja, Norway

Doves Bay Cardigan

Maja, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Tad wrote:

Hello, I don't understand the right piece can you explain me? What do you mean by 5 band stitch? in moss stich? Thank you

04.01.2024 - 12:11

country flag Bar wrote:

Y a t il un moyen que je vous envoie la photo du A1 quej'ai tricoté (113)? Car je pense avoir quelque chose de different....

17.11.2023 - 19:52

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bar, vous pouvez envoyer votre photo à votre magasin (si vous ne pouvez pas lui apporter votre ouvrage directement pour lui montrer), ou bien demander à d'autres tricoteuses dans notre groupe DROPS Workshop. Bon tricot!

20.11.2023 - 09:24

country flag Barathi wrote:

Bonjour, Je peux avoir un apercu à ce que devrait ressembler le diagramme A1 sur la laine?(27 cm) J'ai quelque chose mais je ne suis pas sur

16.11.2023 - 18:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Barathi, on le voit un peu sur la 3ème photo, à droite du motif ajouré/torsades: A.1 se tricote en jersey endroit avec les carrés noirs qui sont des mailles jersey envers (ces mailles sont tricotées à l'envers sur l'endroit). Bon tricot!

17.11.2023 - 08:19

country flag Diane Gapes wrote:

Is there a video for back on Doves Bay Cardigan DROPS 221 because I am confused by A.1 pattern

12.10.2023 - 10:09

DROPS Design answered:

Dear Mrs Gapes, work row 1, 2, 4,5,6,7,8,10,11,12 in stocking stitch (= K from RS, P from WS), and work row 3 as follows: (K1, P1, K4), repeat from (to), and end with first 3 sts (= K1, P1, K1). Work row 9 as follows: (K4, P1, K1), repeat from (to) and end with first 3 sts (= K3). Happy knitting!

12.10.2023 - 14:23

country flag Barathi wrote:

Bonjour, je n'ai pas compris cette partie Continuer sur l'endroit ainsi: 1 maille lisière au point mousse, répéter A.1 jusqu'à ce qu'il reste 4 mailles (= 16-18-19-21-23-25 motifs de 6 mailles), tricoter les 3 premières mailles de A.1 pour que le motif soit symétrique et terminer par 1 maille lisière au point mousse. Sur le digramme il n'y a que 6 mailles alors que j'en ai 101 ?

11.10.2023 - 09:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Barathi, tricotez vos 101 mailles ainsi: 1 maille lisière, répétez 16 fois les 6 mailles de A.1, tricotez maintenant les 3 premières mailles de A.1 et terminez par 1 maille lisière soit: 1 + 16x6 + 3 + 1 = 101. Le motif de A.1 est ainsi symétrique. Sur l'envers, tricotez les 3 premières mailles en commençant par la 3ème (on lit sur l'envers de gauche à droite) et répétez A.1 en lisant également le diagramme de gauche à droite. Bon tricot!

12.10.2023 - 09:22

country flag Liz M wrote:

When knitting the front panel do I cast on 74 + 5 for band and 1 for edge or work within the original count.?

06.10.2022 - 01:06

DROPS Design answered:

Hi Liz, The 74 stitches includes the band and edge stitches (so only cast on 74 stitches). Happy knitting!

06.10.2022 - 06:56

country flag Michelle Forbes wrote:

Hello I am working the Right Front. SIZE L Do I work the first neck cast off immediately (3st) after I have place band stitches on a thread, and do I work the remaining cast offs on following right side rows ? Assumimg it takes 2 rows to complete a cast for my size L it will require I work 14 rows. Am I correct?

02.07.2022 - 10:45

DROPS Design answered:

Dear Michelle, start casting off after placing stitches on thread. Then, cast off for the neck as explained in the pattern. You cast off when working rows that start from the neck, that is, on the right side of the work. So, you will work these decreases for 14 rows in total (decreasing on 7 rows on the right side). Afterwards, work over the shoulder stitches, without decreasing until the work measures 48 cm for size L and work evenly spaced decreases. Happy knitting!

02.07.2022 - 16:42

country flag Sanna Rosengren wrote:

Hi, is there a mistake in the diagram for A1? There are different numbers of rows between the ones with purl st (from the R side) - 4 in one case and 3 in the other. Are they supposed to be the same? Thank you!

01.05.2022 - 19:34

DROPS Design answered:

Hei Sanna. Suppose to be like you see in the chart. Happy Knitting/ Drops Design

02.05.2022 - 14:31

country flag Eva-Pia Virkkunen wrote:

Olen tulostanut ohjeen 221-9 suomenkielellä. Mutta ohjeen DROPS 221-9 ruutupiirros ei tule näkyviin ei liioin diagram förklaring suomenkielellä.

31.03.2022 - 14:47

country flag Hacquard wrote:

Bonjour Comment tricoter les rangs envers sur ce modele avec des aiguilles droites. Est ce que les rangs envers figurent sur le diagramme. Merci de votre réponse.

27.11.2021 - 15:26

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hacquard, tout à fait, les diagrammes montrent tous les rangs: ceux sur l'endroit (que l'on lit de droite à gauche) et ceux sur l'envers (que l'on lit de gauche à droite), autrement dit, 1 case blanche = 1 maille jersey endroit, 1 carré noir = 1 maille jersey envers (les 2 alternativement en hauteur = 1 m point mousse) - retrouvez ici d'autres infos sur les diagrammes. Bon tricot!

29.11.2021 - 07:40