Doves Bay Top#dovesbaytop |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað með gatamynstri og köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 221-10 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í A.1, A.3, A.4 eins langt og hægt er út í hvorri hlið – lykkjurnar sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um handveg): Fækkið lykkjum innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 3 KANTLYKKJUM Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 3 KANTLYKKJUM Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 3 kantlykkjum, prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Stykkið er saumað saman á öxlum og í hliðum. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í stroffprjóni. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 91-101-109-117-129-141 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 3 með Cotton Light. ATH: Það eru fitjaðar upp fleiri lykkjur á framstykki en á bakstykki vegna kaðla á framstykki sem draga stykkið saman. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff fram og til baka svona í 2 cm – endið eftir umferð frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan þannig (1. umferð = rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 2-1-5-5-5-5 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 yfir næstu 18-24-24-24-30-36 lykkjur (= 3-4-4-4-5-6 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.2 (= 49-49-49-57-57-57 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 18-24-24-24-30-36 lykkjur (= 3-4-4-4-5-6 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið 2-1-5-5-5-5 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-4-4-4½-4½-4½ cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 99-109-117-125-137-149 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6-6-7-9-11-13 lykkjurnar í hvorri hlið (fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu og aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Eftir 4 umferðir í garðaprjóni eru felldar af 3-3-4-6-8-10 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 93-103-109-113-121-129 lykkjur eftir. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona fyrir handveg í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 3-7-9-10-12-14 sinnum í hvorri hlið = 87-89-91-93-97-101 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-32-33-35-36-38 cm, fækkið um 4 lykkjur mitt að framan með því að prjóna lykkjur í 2 köðlum við miðju að framan slétt saman 2 og 2 = 83-85-87-89-93-97 lykkjur. Setjið síðan miðju 15-15-15-17-19-21 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 24-25-26-26-27-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til 2 umferðir eru eftir þar til stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 3-3-3-1-1-1 lykkjur jafnt yfir kaðal við hálsmál = 21-22-23-25-26-27 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Framstykkið mælist ca 36-38-40-42-44-46 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Fitjið upp 81-91-99-111-123-135 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 3 með Cotton Light. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 2 cm – endið eftir umferð frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan þannig (1. umferð = rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 2-1-5-5-5-5 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 þar til 6-5-9-9-9-9 lykkjur eru eftir í umferð (= 12-14-14-16-18-20 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.4 (= 3 lykkjur), prjónið 2-1-5-5-5-5 lykkjur í sléttprjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-4-4-4½-4½-4½ cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 89-99-107-119-131-143 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6-6-7-9-11-13 lykkjurnar í hvorri hlið (fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu og aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Eftir 4 umferðir í garðaprjóni eru felldar af 3-3-4-6-8-10 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 83-93-99-107-115-123 lykkjur eftir. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona fyrir handveg í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 3-7-9-10-12-14 sinnum í hvorri hlið = 77-79-81-87-91-95 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-36-38-40-42-44 cm, fellið af miðju 31-31-31-33-35-37 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 21-22-23-25-26-27 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til 2 umferðir eru eftir þar til stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Bakstykkið mælist ca 36-38-40-42-44-46 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra öxlina og prjónið upp frá réttu ca 84 til 100 lykkjur í kringum hálsmálið (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 3 með Cotton Light. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dovesbaytop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.