Summer Concerto#summerconcertosweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað með ¾-löngum puffermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-39 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í garðaprjóni. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 78 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 25,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 25. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykki er prjónað ofan frá og niður. Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka þar til ermakúpan hefur verið gerð til loka, síðan er ermin prjónuð í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 81-81-84-88-94-94 lykkjur á hringprjón 4 með Sky. Setjið eitt prjónamerki í 20.-20.-20.-22.-24.-24. lykkju inn frá hvorri hlið (= 41-41-44-44-46-46 lykkjur á milli lykkja með prjónamerkja). Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka, jafnframt í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur með prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri í umferð) – sjá LASKALÍNA. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 11-13-15-17-17-19 sinnum = 125-133-144-156-162-170 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt til baka frá röngu á eftir síðustu útaukningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist nú ca 5-6-7-8-8-9 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): Fellið laust af fyrstu 31-33-35-39-41-43 lykkjurnar (= handvegur), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 63-67-74-78-80-84 lykkjurnar (fyrsta af þessum lykkjum er nú þegar á hægri prjóni) og aukið jafnframt út 1-0-0-3-7-11 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 og fellið laust af síðustu 31-33-35-39-41-43 lykkjur (= handvegur). Klippið þráðinn frá. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðan fram og til baka yfir 64-67-74-81-87-95 lykkjur fyrir framstykki frá réttu þannig: Prjónið eins margar lykkjur frá mynsturteikningu A.1 (= 3 lykkjur) og pláss er fyrir, jafnframt eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið fyrir handveg þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4-3-2-1-0-0 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-5-5 sinnum og 5-7-7-7-9-11 lykkjur 1 sinni = 86-95-104-113-125-137 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1. Haldið áfram fram og til baka með A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 25-26-27-27-28-29 cm frá handveg – stillið af að endað sé eftir einni af umferð með ör í mynsturteikningu. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 13-13-16-16-19-19 lykkjur jafnt yfir = 99-108-120-129-144-156 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Framstykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Fitjið upp 61-61-64-68-74-74 lykkjur á hringprjón 4 með Sky. Setjið eitt prjónamerki í 10.-10.-10.-12.-14.-14. lykkju inn frá hvorri hlið (= 41-41-44-44-46-46 lykkjur á milli lykkja með prjónamerkja). Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið garðaprjón fram og til baka, jafnframt í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur með prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri í umferð) – sjá LASKALÍNA. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 11-13-15-17-17-19 sinnum = 105-113-124-136-142-150 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt til baka frá röngu á eftir síðustu útaukningu. Stykkið mælist nú ca 5-6-7-8-8-9 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): Fellið laust af fyrstu 21-23-25-29-31-33 lykkjurnar (= handvegur), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 63-67-74-78-80-84 lykkjurnar (fyrsta af þessum lykkjum er nú þegar á hægri prjóni) og aukið jafnframt út 1-0-0-3-7-11 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 og fellið laust af síðustu 21-23-25-29-31-33 lykkjur (= handvegur). Klippið þráðinn frá. Haldið síðan áfram fram og til baka í garðaprjóni (1. umferð frá röngu) yfir 64-67-74-81-87-98 lykkjur fyrir bakstykki í 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið eins margar lykkjur frá mynsturteikningu A.1 (= 3 lykkjur) og pláss er fyrir, jafnframt eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið fyrir handveg þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4-3-2-1-0-0 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-5-5 sinnum og 5-7-7-7-9-11 lykkjur 1 sinni = 86-95-104-113-125-137 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1. Haldið áfram fram og til baka með A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 25-26-27-27-28-29 cm frá handveg – stillið af að endað sé eftir einni af umferð með ör í mynsturteikningu. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 13-13-16-16-19-10 lykkjur jafnt yfir = 99-108-120-129-144-156 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Framstykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Fitjið upp 26-28-28-30-32-32 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með Sky. Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón = 50-54-54-58-62-62 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni). Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, jafnframt í lok hverrar umferðar eru fitjaðar upp lykkjur fyrir handveg þannig: Fitjið upp 1 lykkju 7-10-10-9-18-18 sinnum og 2 lykkjur 5-3-4-5-0-0 sinnum. Í lok næstu umferðar frá réttu eru fitjaðar upp 8-12-12-12-16-20 lykkjur = 92-98-102-108-114-118 lykkjur. Prjónið nú sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist alls 36 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 8-8-9-9-6-7 lykkjur slétt, prjónið næstu 76-82-84-90-102-104 lykkjur slétt saman 2 og 2, 8-8-9-9-6-7 lykkjur slétt = 54-57-60-63-63-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 40 cm ofan frá og niður í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við kantlykkju garðaprjón. Saumið hliðarsaum innan við 1 kantlykkju garðaprjón. Saumið ermar í við handveg innan við affellingarkanta. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerconcertosweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.