Mette skrifaði:
Jeg skal til at strikke bagstykket. Min omgangsstart er i midten af det stykke. Hvornår skal jeg starte indtagningerne, og hvor bliver min nye omgangsstart? Hvis jeg flytter min markør, kommer det første halve stykke jo en omgang foran. Håber mit spørgsmål giver mening.
14.05.2025 - 21:39DROPS Design svaraði:
Hej Mette, du kan gøre det at du strikker frem til den nye omgangsstart, det kan ikke ses om det først halve stykke er en pind foran :)
20.05.2025 - 14:44
Alejandra skrifaði:
Can a girl wear this?
17.03.2025 - 17:28DROPS Design svaraði:
Dear Alejandra, sure, why not? You will find more vest patterns here if you like to get a larger choice. Happy knitting!
18.03.2025 - 09:49
Sue Dillon-Thiselton skrifaði:
Please can you help. After the decrease for the armholes the pattern is unclear. The patterns says work on each part separately and then gives a = sign? I am afraid I do not understand this. Please can you help. FYI I am knitting on ordinary needles. Many thanks.
26.01.2024 - 20:36DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Dillon-Thiselton, after you have cast off the stitches for armhole, you slip the stitches on front piece on a thread/another needle and work now the stitches on back piece only, ie the 46 (50-56-60-64-68-72) stitches (see size) on needle. Happy knitting!
29.01.2024 - 11:31
Elise Christine Fradet-Farago skrifaði:
"Strikk vrangbord (= 2 rett/ 2 vrang) i ca 5 cm (inkludert brettekant). " - betyr det da 10cm? Så det er 5cm halskant når den er bretta og sydd fast på baksiden ?
29.12.2023 - 13:32DROPS Design svaraði:
Hej Elise, Vrangborden är bara 2,5 cm :)
03.01.2024 - 08:15
Malin skrifaði:
Heisann! Når har jeg kommet til ermhullet og lurer på hva jeg skal gjøre med fortykket mens jeg strikker bakstykke😄 Hadde vært fint om det sto i oppskriften, ser at det mangler i flere av oppskriftene deres, så jeg blir ikke riktig klok!🤣 Takk for svar!
13.11.2023 - 20:31DROPS Design svaraði:
Hei Malin, Masker du ikke strikker kan settes på en hjelpepinne (ekstra pinne). God fornøyelse!
14.11.2023 - 06:52
Sylwia skrifaði:
Kupiłam na tę kamizelkę włóczkę Baby Alpaca Silk. Na włóczce polecane druty to 3,5mm. Jaką ilość oczek powinnam użyć na kamizelkę w rozmiarze 12/18 miesięcy?
24.10.2023 - 11:56DROPS Design svaraði:
Witaj Sylwio, musisz wybrać kamizelkę, która jest wykonana z włóczki z grupy włóczek A, do tej grupy należy Baby Alpaca Silk. Możesz wziąć za przykład kamizelkę o numerze Children 28-3. Do dzieła :) Pozdrawiamy!
24.10.2023 - 13:04
Patricia Fuchs skrifaði:
Danke für Ihre Antwort, nun tut sich noch folgende Frage auf: Wenn ich die Schultern mit einem 3-needle-bind-off schließen möchte, ende ich da mit einer Hinreihe oder Rückreihe? Ist das für linke und rechte Schulter bzw. Vorder- und Rückenteil anders? Sorry und herzlichen Dank!
05.05.2023 - 12:49DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Fuchs, die letzte Reihe ist nicht nötig, ob sie eine Hin- oder Rückreihe ist, aber wenn Sie diese 3-Needle-Bind-off sichtbar möchten, soll diese eine Hin-Reihe sein, sollte sie unsichtbar, dann soll es eine Rück-Reihe sein - wie in unserem Video. Viel Spaß beim stricken!
05.05.2023 - 13:11
Patricia Olivia Fuchs skrifaði:
Hallo, Team. Frage zu Rückenteil, Armloch abketten " In der ersten Hin-Reihe je 1 Masche nach den ersten und vor den letzten 2 Maschen, d.h. beidseitig, abnehmen". Wie stricken sie denn die erste und letzte Masche? Das gibt so einen hässlichen Rand - verschwindet der dann beim Auffassen der Maschen aus dem Seitenrand? Machen Sie einen Knötchenrand oder was anderes? Vielen Dank.
03.05.2023 - 18:58DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Fuchs, die Randmaschen stricken Sie, entweder glatt rechts oder Krausrechts, wie Sie möchten; beim Auffassen sieht man diese Maschen dann nichts mehr. Der Rand sollte aber ganz normal aussehen, dh wie ein Strickstück glatt rechts gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
04.05.2023 - 08:04
Victoria skrifaði:
Hej Jeg har lige lukket af til ærmegab og skal til at strikke frem og tilbage på mit bagstykke, men min omgangsstart er jo midt i bagstykket, hvordan skal jeg strikke frem og tilbage uden det bliver skævt?
14.12.2022 - 13:23DROPS Design svaraði:
Hej Victoria, du fortsætter frem og tilbage forbi omgangsstarten :)
15.12.2022 - 09:23
Else Johansen Panagiotaki skrifaði:
Hei Hvis dette er en oppskrift som er gjennomgått i alle størrelser, hvorfor ikke oppgi hvor mange masker man må plukke opp til halskant i hver størrelse? I oppskriften oppgir dere et margin fra 60 - 96 masker og at man må prøve seg frem til hva som passer
29.10.2022 - 08:03DROPS Design svaraði:
Hei Else. Ved å plukke 60-96masker vil du kunne tilpasse det maskeantallet som passer ditt plagg best slik at man ikke blir helt låst om man mangler 1 maske eller 3. Men strikker du den minste str vil 60 masker passe fint og ved den største størrelsene passer 96 masker best, og da er det ikke så vanskelig å finne ut hvilken maskeantall på de andre størrelsene når maskeantallet må være delbart med 4. mvh DROPS Design
31.10.2022 - 11:18
Gledesspreder#gledesspredervest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti / slipover fyrir börn úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð 12 mánaða – 12 ára.
DROPS Baby & Children 38-8 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 10. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 9. og 10. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku fyrir handveg og hálsmál): Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju í byrjun á umferð þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið um 1 lykkju í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp að handveg, síðan er fram- og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Prjónaður er kantur í kringum handvegi og hálsmál í stroffprjóni í lokin. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 120 (128-140-148-156-164-172) lykkjur á hringprjón 3 með Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 = 108 (116-128-136-144-152-160) lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 22 (24-27-30-33-36-39) cm frá uppfitjunarkanti, fellið lykkjur af fyrir handveg þannig: Prjónið 23 (25-28-30-32-34-36) lykkjur slétt (= hálft bakstykki), fellið af næstu 8 lykkjur, prjónið 46 (50-56-60-64-68-72) lykkjur slétt (= framstykki), fellið af næstu 8 lykkjur og prjónið síðustu 23 (25-28-30-32-34-36) lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Prjónið nú til loka hvort stykki fyrir sig. BAKSTYKKI: = 46 (50-56-60-64-68-72) lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2! Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 3 (2-3-3-4-3-3) sinnum = 40 (46-50-54-56-62-66) lykkjur. Þegar stykkið mælist 30 (33-37-41-45-49-53) cm frá uppfitjunarkanti, fellið af miðju 26 (28-30-32-34-34-36) lykkjur fyrir hálsmáli (= 7 (9-10-11-11-14-15) lykkjur eftir á hvorri öxl) og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 6 (8-9-10-10-13-14) lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 33 (36-40-44-48-52-56) cm frá uppfitjunarkanti. FRAMSTYKKI: = 46 (50-56-60-64-68-72) lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2! Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 3 (2-3-3-4-3-3) sinnum = 40 (46-50-54-56-62-66) lykkjur. Þegar stykkið mælist 27 (30-33-37-40-44-47) cm frá uppfitjunarkanti, fellið af miðju 20 (22-24-26-28-28-30) lykkjur fyrir hálsmáli (= 10 (12-13-14-14-17-18) lykkjur eftir á hvorri öxl) og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið um 1 lykkju innan við 2 lykkjur frá hálsmáli alls 4 sinnum = 6 (8-9-10-10-13-14) lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 33 (36-40-44-48-52-56) cm frá uppfitjunarkanti (stillið lengdina af við bakstykki). FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 60 til 96 lykkjur meðfram kanti í hálsmáli innan við 1 lykkju frá réttu á sokkaprjóna 3 með Karisma (stillið af að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 4). Passið uppá að kanturinn í kringum hálsmál dragist ekki saman/verði of laus á stykki, takið e.t.v. upp fleiri eða færri lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 5 cm (meðtalinn kantur með uppábroti). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Brjótið kantinn tvöfaldan og saumið hann laust niður að röngu þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir kant í hálsmáli, passið uppá að saumurinn dragi ekki stykkið saman í hálsmáli. KANTUR Í HANDVEGI: Prjónið upp 48 til 72 lykkjur meðfram kanti í handvegi innan við 1 lykkju frá réttu á sokkaprjóna 3 með Karisma (passið uppá að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 4). Passið uppá að kanturinn í kringum handveg dragi ekki stykkið saman/verði of laus á stykki, takið upp e.t.v. fleiri eða færri lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #gledesspredervest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby & Children 38-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.