Elżbieta skrifaði:
Czy wzór fantazyjny można robic na drutach pończoszniczych? Jak wtedy wyglada lewa strona robótki - pytam jak przerabiać
27.01.2024 - 13:13DROPS Design svaraði:
Witaj Elu, wzór fantazyjny jak i cały sweter będzie przerabiany na okrągło, czyli zawsze na prawej stronie robótki - możesz przerabiać na drutach pończoszniczych, a gdy będzie więcej oczek zmienić na druty z żyłką. W nieparzystych rzędach schematu będą oczka prawe i narzuty (patrz legenda), a w parzystych przerabiasz tak jak na filmie video poniżej pt. Jak wykonać szeroki luźny warkocz. Pozdrawiamy!
29.01.2024 - 15:14
Susanne skrifaði:
Hallo, bei der Strickschrift A1 habe ich in der ersten Reihe 8 rechte Maschen und 4 Umschläge, somit insgesammt 12 Maschen. In Reihe zwei habe ich eine rechte Masche, 2 Umschläge, 8 rechte Maschen, 2 Umschläge und eine rechte Masche. Das sind aber nur 10 gestrickte Maschen. Was mache ich falsch oder wo liegt mein Denkfehler.
15.10.2023 - 17:18DROPS Design svaraði:
Liebe Susanne, bei der 2. Reihe stricken Sie 2 Umschläge + 1 Masche rechts, nicht nur 2 Umschläge - siehe 3. Symbolerklärung. Viel Spaß beim stricken!
16.10.2023 - 10:01
Sig-Britt Larsson skrifaði:
Hej! Är det omslagen i flätan som är ökningen av maskorna. Mvh Sig-Britt Larsson
11.11.2022 - 15:36DROPS Design svaraði:
Hei Sig-Britt. Du strikker bare 1. rad av A.1 på 1. omgang. Da viser O at det gjøres et kast = 1 økning. Når du strikker 1. omgang strikkes A.1 4 ganger, slik at du øker med 16 masker på denne omgangen. Nå du så strikker videre etter diagram A.1 er det ingen flere økninger i diagrammet. Da økes det etter forklaringen under RAGLAN i oppskriften. mvh DROPS Design
14.11.2022 - 12:01
Sig-Britt Larsson skrifaði:
Hej! Har en fråga angående mönster 222-29.Jag undrar hur man stickar mönstret på den tröjan.Vore bra med en video på det. Mvh Sig-Britt Larsson
17.10.2022 - 12:11DROPS Design svaraði:
Hei Sig-Britt. Takk for din tilbakemelding. Vi setter opp ditt ønske på vår liste. mvh DROPS Design
17.10.2022 - 13:23
Véronique Lille skrifaði:
Bonjour, je ne trouve pas où je dois faire les augmentations entre les A.1 de chaque épaule. Je suis rendu à mon 15 ième tour et je n’ai que 4 mailles entre mes deux motifs. Pourriez vous m’indiquer ce que j’ai oublié? Je vous remercie. Ps: La laine drop wish est super agréable à tricoter et le modèle est tellement beau!
05.01.2022 - 04:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lille, vous devez augmenter de chaque côté de chaque A.1 comme indiqué sous RAGLAN tous les 2 tours, autrement dit, tricotez jusqu'au premier A.1, faites 1 jeté, tricotez les 12 mailles de A.1, faites 1 jeté et répétez aux 3 autres A.1, vous allez ainsi augmenter 8 mailles au total; tricotez les jetés torse au tour suivant pour éviter les trous et augmentez ainsi tous les 2 tours 13 à 18 fois selon la taille. Bon tricot!
05.01.2022 - 08:06
Natacha skrifaði:
Toutes mes excuses ,pas de problème avec A1 et le schéma de l'ouvrage. Merci.
27.02.2021 - 09:11
Natacha skrifaði:
Bonjour , il semble que A1 n'apparait pas dans les explications, ainsi que le schéma de l'ouvrage.Merci .
27.02.2021 - 09:03DROPS Design svaraði:
Bonjour, le diagramme A.1 se trouve a la la fin du modele, a droite du schema des mesures. Bon tricot!
28.02.2021 - 22:09
Arndt skrifaði:
Evening stroll
09.01.2021 - 10:47
Marta skrifaði:
Airy baloon
07.01.2021 - 21:51
Anna skrifaði:
This sleeves are just asome
07.01.2021 - 19:36
Just Right#justrightsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Air eða 1 þræði DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-29 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 48 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 5. og 6. hver lykkja slétt saman. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 48-48-52-52-56-60 lykkjur á stuttan hringprjón 8 með 2 þráðum Air eða 1 þræði Wish. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 6 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-12-12-12-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTKA/ÚTAUKNING = 56-60-64-64-64-68 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Skiptið yfir á hringprjón 9. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur þannig: 5-6-7-7-7-8 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), A.1 yfir næstu 8 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri), 2 lykkjur slétt (= ermi), A.1 yfir næstu 8 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri), sléttar lykkjur yfir næstu 10-12-14-14-14-16 lykkjur (= framstykki), A.1 yfir næstu 8 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri), 2 lykkjur slétt (= ermi), A.1 yfir næstu 8 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri), 5-6-7-7-7-8 sléttar lykkjur (= ½ bakstykki) = 72-76-80-80-80-84 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram hringinn, JAFNFRAMT í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 13-14-14-16-17-18 sinnum = 176-188-192-208-216-228 lykkjur. Haldið áfram án útaukningar fyrir laskalínu þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir hvert A.1 (= alls 16 lykkjur færri) = 160-172-176-192-200-212 lykkjur. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 23-24-25-28-30-33 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið næstu 34-38-38-40-40-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 46-48-50-56-60-66 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 34-38-38-40-40-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 23-24-25-28-30-33 lykkjur. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 100-104-112-124-136-148 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 25 cm frá skiptingu, aukið út um 16-16-16-20-20-24 lykkjur jafnt yfir = 116-120-128-144-156-172 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 34-38-38-40-40-40 lykkjur af þræði frá annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 9 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-6-6-8-8 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 38-42-44-46-48-48 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 2-2-3-3-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-2-2-2-2-1 sinnum = 34-38-40-42-44-46 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 11-12-12-12-10-8 cm. Aukið nú út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3-3½-3½-4-4-4 cm millibili alls 8-6-6-5-5-5 sinnum = 50-50-52-52-54-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 39-38-36-35-33-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-10-4-4-6-0 lykkjur jafnt yfir = 40-40-48-48-48-56 lykkjur. Prjónið 1 umferð þar sem 2 og 2 lykkjur eru prjónaðar saman = 20-20-24-24-24-28 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-44-42-41-39-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #justrightsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.