DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3344.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cooling Creek

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 222-27
DROPS Design: Mynstur as-150
Garnflokkur C + C eða D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200-200-250-250-300 g litur 15, ljós sægrænn
Eða notið:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
200-200-200-250-250-300 g litur 09, ljós sægrænn

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd með gatamynstri (A.1) og 2 þráðum Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði Melody.
15 lykkjur á breidd og 17 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði Melody = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3344.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 4,8.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 5. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca 4. og 5. hver lykkja slétt saman.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni þar til auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur til að prjóna heila mynstureiningu til viðbótar í A.1.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá skiptingunni á milli bakstykkis og hægri ermi, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 68-72-76-80-82-88 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði Melody.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-0-16-24-26-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 68-72-92-104-108-116 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn).
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki hér, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Setjið nú 4 ný prjónamerki í stykkið án þess að prjóna. Prjónamerkin verða að hafa annan lit til að aðgreina þau frá prjónamerki eftir kant í hálsmáli. Setjið prjónamerkin þannig:
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), hoppið yfir næstu 12-12-16-16-16-16 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), hoppið yfir næstu 22-24-30-36-38-42 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), hoppið yfir næstu 12-12-16-16-16-16 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), nú eru 22-24-30-36-38-42 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.
Prjónið nú mynstur A.1 hringinn í umferð og prjónið 1 lykkju slétt hvoru megin við 4 prjónamerkin (= 2 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma). JAFNFRAMT í 2. umferð (þ.e.a.s. í umferð með sléttum lykkjum yfir allar lykkjur) byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 16-18-18-18-20-24 sinnum = 196-216-236-248-268-308 lykkjur.
Haldið áfram þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki eftir kant í hálsmáli.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Setjið fyrstu 44-48-52-52-56-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 54-60-66-72-78-90 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 44-48-52-52-56-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 54-60-66-72-78-90 lykkjur (= bakstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 124-136-148-160-172-196 lykkjur. Haldið áfram hringinn með A.1. Mynstrið á að passa yfir mynstur frá berustykki. Þegar stykkið mælist 22-22-21-21-21-21 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé eftir umferð með sléttum lykkjum, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-20-22-24-26-30 lykkjur jafnt yfir = 142-156-170-184-198-226 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 44-48-52-52-56-64 lykkjur af þræði frá annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5,5.
Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 nýjum lykkjum undir ermi = 52-56-60-60-64-72 lykkjur.
Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 8 lykkjur (= mitt undir ermi). Byrjið umferð hér og prjónið mynstur þannig: 1 lykkja slétt, A.1 eins og áður yfir næstu 50-54-58-58-62-70 lykkjur, 1 lykkja slétt. Haldið svona áfram hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin prjónamerkið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 2-2-2-1½-1½-1 cm millibili alls 4-4-4-4-4-6 sinnum = 44-48-52-52-56-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 25-23-21-20-18-16 cm frá skiptingu. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-8-10-8-10-12 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-44-46-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 29-27-25-24-22-20 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – það eiga að myndast göt
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Annelies Rennert wrote:

Hallöchen, ich möchte mich erstmal für die von Ihnen erteilte Hilfe beim stricken bedanken. Ich denke das ist auch mal notwendig. Habe diesen Pullover in abgewandelter Variante fertiggestellt. Schade das ich Ihnen kein Foto schicken kann. Das lochmuster habe ich nur bis zur brust gestrickt. Dann 2x im Wechsel rechts und lochmuster. Sieht toll aus. Liebe Grüße Annelies

27.04.2023 - 13:51

country flag Annelies Rennert wrote:

Hallo, bekomme das zick zack Muster nicht hin. Durch die zunahme verschiebt sich ja alles. Welche masche muss ich abheben u d welche stricke und welche drüber ziehen Danke

26.02.2023 - 20:46

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rennert, dieses Video zeigt ab ca 06:30 wie so ein Lochmuster gestrickt wird -beachten Sie nur hier, daß das Lochmuster wegen Raglanzunahmen nicht verschoben wird, so daß die 2 Maschen in A.1 immer übereinander gestrickt werden und abwechslungsweise in der Höhe zusammen rechts/mit 1 M abheben, 1 M re und die abgehobene M über die gestrickte M überziehen. Viel Spaß beim stricken!

27.02.2023 - 11:02

country flag Kroner wrote:

Hallo wenn ich das Muster in runden stricke dann geht mir das Muster immer nicht aus.was mache ich falsch?

10.02.2023 - 10:38

DROPS Design answered:

Liebe Frau Kroner, das Muster sollen Sie immer über die selben 2 Maschen in der Höhe wiederholen, dh nach der 1. Zunahmen für den Raglan stricken Sie diese Zunahme rechts, dann stricken Sie das Muster wie zuvor, nach der 2. Zunahmen, können Sie 1 Extra Muster nach den Raglanmaschen + 1 Extra Rapport vor den Raglanmaschen stricken. Viel Spaß beim stricken!

10.02.2023 - 13:16

country flag Wilma wrote:

Even een vraagje, bij dit patroon moet je met dubbele draad brushed silk breien, klopt dan de naald keuze van 4,5 en 5,5 ? Bij een enkele draad is de naaldkeuze nl. Ook 4,5 en 5,5. Ik hoor het graag van je

04.02.2023 - 13:37

DROPS Design answered:

Dag Wilma,

De aanbevolen naalddikte in het patroon is 5,5 en bij het garen staat 5 mm. Het patroon is een combinatie met Kid-Silk. Je zou inderdaad een dikkere naald verwachten, maar soms is dat niet het geval om een bepaald effect te bereiken. Het belangrijkste is dat jouw stekenverhouding overeenkomt met de stekenverhouding zoals aangegeven in het patronen. Dus het is aan te raden om een proeflapje te breien en, indien nodig, de naalddikte aan te passen.

05.02.2023 - 10:53

country flag Evelyne wrote:

Bonjour, les diagrammes portent à confusion. Une case blanche = m. end. Donc sur les rangs pairs (envers du travail) on tricote à l'endroit ? Ou bien "1 maille endroit" signifie sur l'endroit du travail, on voit une maille endroit, donc on tricote du jersey endroit, donc des mailles à l'envers sur les rangs pairs ? Sur la video mentionnée en réponse à Annelies vous tricotez bien à l'envers. D'autres diagrammes sont plus explicites.

31.01.2023 - 13:03

DROPS Design answered:

Bonjour Evelyne, ce pull se tricote entièrement en rond, on n'a donc pas de rangs sur l'envers, et on va tricoter toutes les mailles du diagramme à l'endroit aux rangs impairs. Dans la vidéo, le point fantaisie est tricoté en rangs, donc on tricote à l'envers sur l'envers aux rangs pairs, mais ici on tricote en rond, donc tout à l'endroit comme l'indique le diagramme. Bon tricot!

31.01.2023 - 17:08

country flag Evelyne wrote:

Bonjour, les diagrammes portent à confusion. Une case blanche = m. end. Donc sur les rangs pairs (envers du travail) on tricote à l'endroit ? Ou bien "1 maille endroit" signifie sur l'endroit du travail, on voit une maille endroit, donc on tricote du jersey endroit, donc des mailles à l'envers sur les rangs pairs ? Sur la video mentionnée en réponse à Annelies vous tricotez bien à l'envers. D'autres diagrammes sont plus explicites.

31.01.2023 - 13:03

country flag Ines wrote:

Bitte stellen Sie das Diagramm A 1 zu der Anleitung, Es fehlt! Danke

15.01.2023 - 09:11

DROPS Design answered:

Liebe Ines, das Diagramm A.1 finden Sie neben der Maßskizze, unter dem Ärmel. Viel Spaß beim stricken!

16.01.2023 - 09:02

country flag Annelies Rennert wrote:

Hallöchen, wie muss ich das Diagramm A1 stricken? Ist nicht beschrieben. Danke Annelies Rennert

30.10.2022 - 12:14

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rennert, A.1 finden Sie nehmen der Maßskizze, unter der Ärmel, es wird über 2 Maschen und 4 Reihen gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

31.10.2022 - 09:04

country flag Annelies Rennert wrote:

Hallöchen, das Diagramm ist schlecht erklärt. Sind es immer neue Reihen, zb. 2 MA RECHTS zusammen stricken, dann nächste Reunde 1 MA abheben, 1 MA stricken die abgehoben darüber ziehen, oder wie verstehe ich das? Fehlt bei dem Diagramm etwas. Mfg. Annelies Rennert

09.09.2022 - 17:56

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rennert, 1 Kästchen im Diagram = 1 Masche x 1 Runde so stricken ,Sie A.1: 1. R = (2 M rechts zs, 1 Umschlag), von (-) wiederholen; 2. + 4. R = alle Maschen rechts stricken; 3. R = (1 Umschlag, 1 Masche abheben, die nächste Masche rechts stricken und die abgehobene Masche über die gestrickte Masche ziehen) von (bis) wiederholen. Die 4 Reihen wiederholen. Dieses Video zeigt auch ab ca 06:40 (mit A.4 im Video) wie dieses Diagram (A.1 in dieser Anleitung) gestrickt wird. Viel Spaß beim stricken!

12.09.2022 - 09:09

country flag Claudia wrote:

Hola tienen un diagrama de los puntos? No entiendo cuando debe seguirlo escrito . Me es más fácil a través de un diagrama . Gracias !

01.09.2022 - 19:53

DROPS Design answered:

Hola Claudia, no tenemos un diagrama de puntos de todo el patrón, pero puedes encontrar el diagrama A.1 bajo la manga, en el esquema de medidas.

01.09.2022 - 23:40