Anastasiya skrifaði:
I'm knitting the L size, but I'm a bit confused with the raglan. The total amount of stitches when starting the raglan are 75. Minus the two 4 stitches bands is 67, but the pattern says fronts are 16 stitches, sleeves 8 and back 23, which make 71 in total, without the bands. Am i wrong or there's a mistake in the pattern.
28.02.2021 - 15:27DROPS Design svaraði:
Hi Anastasiya, 1st front (4 stitches bands included) is 16 sts, marker 1 is in 17th st, 1st sleeve 8 sts, marker 2 in 26th st, back 23 sts, marker 3 in 50th st, 2nd sleeve 8 sts, marker 3 in 59th st and 2nd front (4 stitches bands included) is 16 sts> in total 75 sts. Happy knitting!
28.02.2021 - 18:59
Marcie skrifaði:
I would like to buy the yarn and pattern. I see that yarn is doubled, can you tell me how many balls in total of Drops Air?
20.02.2021 - 00:03DROPS Design svaraði:
Dear Marcie, the piece is knitted with two different color. Depending on the size, you will need 4-5 balls of EACH color (8-10 balls if you want to knit it from one color, doubled up.) Happy Knitting!
20.02.2021 - 11:58
Sara skrifaði:
I look forward to making this. Exactly what I am looking for!
05.02.2021 - 02:02
Helen skrifaði:
Rose Cloud Cardigan
11.01.2021 - 10:29
Maria skrifaði:
CandyFloss
10.01.2021 - 23:28
Santos skrifaði:
Soft feel good sweater..... love it!
10.01.2021 - 08:23
Joana Pérez skrifaði:
De este modelo me gustan las mangas, muy adecuadas para un día fresquito...
09.01.2021 - 20:34
Karin skrifaði:
Kuscheljacke
09.01.2021 - 10:41
Ruxandra skrifaði:
Pinknic
09.01.2021 - 10:09
Marnia Sansbury skrifaði:
I just love this easy to wear cardigan, looks so snuggly. Could wear any time
08.01.2021 - 20:29
Cosy Rosy Cardigan#cosyrosycardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Air eða 1 þræði DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og ¾ -löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-12 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 61 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið þeim 53 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 8,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 9. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki - í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í útaukningsumferð) þannig. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 9½-9½-8½-9-9-9½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 61-63-65-69-71-73 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 7 með 1 þræði í hvorum lit (= 2 þræðir) í DROPS Air eða 1 þræði DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 6-8-10-10-16-18 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 67-71-75-79-87-91 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjón 8. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að framan. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Setjið 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert prjónamerki er sett í lykkju. Þessi 4 prjónamerki eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu og prjónamerkin verða að hafa annan lit en prjónamerki við háls til að aðskilja þau. Teljið 15-16-16-17-18-19 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 6-6-8-8-10-10 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 21-23-23-25-27-29 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 6-6-8-8-10-10 lykkjur (= ermi) og setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 15-16-16-17-18-19 lykkjur eftir á framstykki eftir síðasta prjónamerki. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 12-13-15-16-17-19 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 163-175-195-207-223-243 lykkjur í umferð. Prjónið áfram eins og áður án útaukningar þar til stykkið mælist 19-21-22-24-25-27 cm frá prjónamerki við hálsmál. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 29-31-33-35-38-42 lykkjur (= framstykki), setji næstu 28-30-36-38-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 49-53-57-61-67-75 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 28-30-36-38-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi (= ermi), fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 29-31-33-35-38-42 lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað áfram hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 119-127-135-147-159-175 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 28 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff, þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjóni, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 28-30-36-38-40-42 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 34-36-42-46-48-50 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 24-22-23-21-21-19 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 7. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist 28-26-27-25-25-23 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cosyrosycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.