Tina skrifaði:
Beautiful! I made this from my homespun wool and for a cardigan it's amazingly flattering! Love it.
09.11.2024 - 07:22
Undine skrifaði:
Ich finde nirgendwo eine Anleitung, wie man bei einer Jacke die Knöpfe richtig annäht. Können Sie mir helfen?
16.07.2021 - 16:37DROPS Design svaraði:
Liebe Undine, Die Knopfnähstellen müssen den Knopflöchern auf dem Kleidungsstück entsprechen und daher passend markiert werden. Dafür die Verschlusskanten Mitte auf Mitte so aufeinander stecken, dass der Übertritt auf dem Untertritt liegt. Strickgarn können Sie benutzen, hier z.B. nur 1 Faden Air. Gerne wird Ihnen Ihr Wollladen noch weiter helfen bzw zeigen. Viel Spaß beim fertigstellen!
19.07.2021 - 07:56
Grete Martinussen skrifaði:
Mangler der ikke vejledninger til både knaphuller og kanterne i retstrikning?
04.03.2021 - 14:25DROPS Design svaraði:
Hej Grete, Så er forklaringen til opskriften også lagt ud, tak for info :)
05.03.2021 - 08:41
Patrizia skrifaði:
Fantastico
04.02.2021 - 23:57
Ingrid Weyhe skrifaði:
Lune Luna
21.01.2021 - 22:21
Patricia skrifaði:
Confort romantique
17.01.2021 - 17:16
Merete Bjørn skrifaði:
Romantic evening
10.01.2021 - 22:15
Carola Wijma skrifaði:
Vesten kan je nooit genoeg hebben
08.01.2021 - 07:00
Sibylle Benzin skrifaði:
Wenn es abends kühler wird
07.01.2021 - 17:16
Way to Happiness Jacket#waytohappinessjacket |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air og DROPS Brushed Alpaca Silk eða DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri, garðaprjóni og ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 221-19 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 57 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 4,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 3½-4 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9½-10-8½-9-9½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 57-59-61-65-67-69 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 7 með 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir) eða 1 þræði Wish. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 12-14-16-16-18-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 69-73-77-81-85-89 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjón 8. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur þannig (1. umferð = frá réttu): 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 þar til 5 lykkjur eru eftir, A.2 yfir næstu lykkju, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstrið fram og til baka og aukið jafnt út í umferð með ör þannig – munið eftir ÚTAUKNING: ÖR-1: Aukið út 24-28-32-32-28-32 lykkjur jafnt yfir = 93-101-109-113-113-121 lykkjur. ÖR-2: Aukið út 24-28-32-28-28-32 lykkjur jafnt yfir = 117-129-141-141-141-153 lykkjur. ÖR-3: Aukið út 22-26-30-24-28-32 lykkjur jafnt yfir = 139-155-171-165-169-185 lykkjur. ÖR-4: Aukið út 24-24-24-20-28-28 lykkjur jafnt yfir = 163-179-195-185-197-213 lykkjur. Nú er útaukningu í stærð S, M og L lokið. Í stærð XL, XXL og XXXL er aukið út einu sinni til viðbótar. ÖR-5: Aukið út 26-29-29 lykkjur jafnt yfir = 211-226-242 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist stykkið ca 21-21-21-26-26-26 cm frá prjónamerki. Prjónið í sléttprjóni og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 27-30-32-36-37-40 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 31-34-38-40-43-45 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 47-51-55-59-66-72 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 31-34-38-40-43-45 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 27-30-32-36-37-40 lykkjur (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 113-123-131-147-156-168 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 24 cm frá skiptingu, aukið út 16-18-18-20-23-25 lykkjur jafnt yfir = 129-141-149-167-179-193 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 31-34-38-40-43-45 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 37-40-44-48-51-53 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 nýjar lykkjur í hvorri hlið á stykki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 0-13-4-2-1½-1 cm millibili alls 1-2-4-5-6-7 sinnum = 35-36-36-38-39-39 lykkjur. Þegar ermin mælist 26-25-23-21-20-18 cm frá skiptingu – eða að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli), auki út 5-6-6-6-5-5 lykkjur jafnt yfir = 40-42-42-44-44-44 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 31-30-28-26-25-23 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #waytohappinessjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.