Lara wrote:
Please clarify the pattern instructions for working the Body. The last line of working the Yoke finishes with 1/2 of back piece. The first line of Body then says to put marker at beginning of round (middle of back piece) and another after 50 stitches (I'm working the XS small). It says that decreases will be worked at these markers but they are in mid-back and mid-front, and not sides of body mentioned in the pattern. How should I proceed?
07.08.2023 - 03:40DROPS Design answered:
Dear Lara, after you have divided piece (rounds ended on mid back), work the stitches at the beg of the round (1st half back piece) until the middle of the new stitches cast on mid under sleeve - the rounds now start here. Continue in the round from here. Happy knitting!
07.08.2023 - 11:09Elah wrote:
I have a wool sensitivity, is there a substitute for the melody yarn thats as affordable?
25.04.2022 - 11:21DROPS Design answered:
Dear Elah, use our yarn converter to see suggested Alternatives - read even more about yarn alternatives here and do not hesitate to contact your DROPS store, even per mail or telephone for any further individual assistance choosing the best matching alternatives. Happy knitting!
25.04.2022 - 12:15Karien wrote:
Bij het breien van de pas start ik met 64 steken voor maat M. \r\nAls ik de markers goed plaats in deze maat, houd ik vier steken over. Immers: 20 steken voor voor- en achterpand maakt 40. \r\nTwee keer 10 steken voor mouwen maakt 20. Totaal 60. \r\nWaar verdeel ik de vier over gebleven steken in?
22.02.2022 - 21:48DROPS Design answered:
Dag Karien,
Je plaatst de markeerdraden in de steken en niet tussen de steken. Wellicht ontstaat hierdoor het verschil van 4 steken?
26.02.2022 - 13:35Helga wrote:
Hei, jeg hadde et spørsmål om felling under armen på størrelse s. Det skal felles første gang etter 2 cm, etter hvor mange cm skal man felle 2 og 3 gangen?
17.02.2022 - 10:48DROPS Design answered:
Hej Helga, det kommer an på hvilken størrelse du strikker: sådan her står det: Fell slik på hver 5.-3.-½.-½.-½.-½.cm totalt 2-3-5-5-5-5 ganger = 32-34-36-38-40-42 masker. God fornøjelse!
18.02.2022 - 13:47Aleksandra wrote:
Dzień dobry. Mam pytanie do tego wzoru. Planuję zrobić rozmiar M, czyli nabieram na druty nr 6 60 oczek włóczki i na reglan mam dodac równomiernie 8 oczek, według wskazówek wychodzi mi co 7.5 oczka. Jak to zrobić przecież nie ma 7.5 oczka? I jeśli dodam 8 oczek będę miała na drucie 68 oczek... Przy dzieleniu karczka 4 markerami 22 na tył, 22 na przód po 20 oczek na rekawy zostaje mi 4 oczka z tych 68. Co mam z nimi zrobić?
07.02.2022 - 22:14DROPS Design answered:
Witaj Olu, dodajesz równomiernie 8 oczek, tj. na przemian za każdym 6tym i 7mym oczkiem (ok.). 4 oczka nie zostaną, ponieważ markery są wkładane w oczka, a nie między oczkami. Miłej pracy!
07.02.2022 - 23:30Victoria wrote:
Hei. Jeg strikker i str S, og Jeg har kommet til der hvor jeg skal øke til raglan. Det står at jeg skal øke på hver 4 omgang og 6 ganger i høyden? Betyr det at jeg skal strikke glattstrikk uten noe økninger i 4 omg, også øke etter 4 og? Også skal det skje 6 ganger til jeg har fått 160 m? Stemmer det?
06.05.2021 - 17:29DROPS Design answered:
Hei Victoria, Du skal øke til raglan på den 1. omgangen, deretter strikke 3 omganger til før du øker til raglan på den 4. omgangen. Og økninger skal skje 6 ganger, som du sier. God fornøyelse!
07.05.2021 - 07:40Nelli wrote:
Een kleinigheidje: de stekenaantallen zoals genoemd in de werkbeschrijving voor de pas kloppen niet met de stekenaantallen na de boord (is opzet plus de meerdering direct na de boord). Dit geldt i.i.g. voor de maten L en XL, voor de andere maten heb ik het niet nagegaan. Vriendelijke groet!
02.05.2021 - 22:24Caroline wrote:
Når man lukker kanten til sidst, anbefaler I at bruge større str pinde så man sørger for at den ikke bliver lukket for stramt. Hvor meget større anbefaler I?
11.04.2021 - 17:03Kristina Griksaite wrote:
Hei, tror du det er mulig å lage genseren med lange armer?
17.03.2021 - 11:43DROPS Design answered:
Hej Kristina, ja du fortsætter bare ærmet så langt du vil. Prøv blusen undervejs, så du får dine personlige mål :)
17.03.2021 - 14:40
Sweet Melody |
|
|
|
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð XS - XXL.
DROPS 212-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 56 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 14. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 14. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi prjónuð 13. og 14. hver lykkja slétt saman. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan og aukið svona út í 4. hverri umferð eins og útskýrt er í uppskrift. AUKIÐ ÚT UM 4 LYKKJUR ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir lykkju með prjónamerki (laskalínu lykkja), sleppið ekki lykkjunni af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, en bíðið með að lyfta lykkjunni af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, sleppið síðan lykkjunni af vinstri prjóni (= 4 lykkjur fleiri). Setjið 1 prjónamerki í miðju á þessum 5 lykkjum (fyrir næstu útaukningu). AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir lykkju með prjónamerki (laskalínu lykkja), sleppið ekki lykkjunni af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, sleppið síðan lykkjunni af vinstri prjóni (= 2 lykkjur fleiri). Setjið 1 prjónamerki í miðju á þessum 3 lykkjum (fyrir næstu útaukningu – á einungis við um stærð L). ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri við prjónamerki). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 56-58-60-62-64-68 lykkjur á stuttan hringprjón 6 með Melody. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið eina umferð slétt þar sem aukið er út um 4-6-8-6-8-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 60-64-68-68-72-72 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að framan). Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn í útaukningu er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Prjónamerkin eru notuð síðar þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 9-10-11-11-12-12 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 10 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 18-20-22-22-24-24 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 10 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 9-10-11-11-12-12 lykkjur eftir á bakstykki á eftir síðasta prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í fyrstu umferð, aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Þ.e.a.s. prjónaðar eru fyrst 4 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki í (= alls 16 lykkjur fleiri í umferð). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu í 4. hverri umferð alls 5-6-7-7-9-9 sinnum á hæðina = 140-160-180-180-216-216 lykkjur. Haldið áfram með útaukningu í 4. hverri umferð, en nú er einungis aukið út um 2 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki í, eins og útskýrt er að ofan (= alls 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 2 lykkjur við hvert prjónamerki alls 1-1-1-2-0-1 sinnum á hæðina. Eftir síðustu útaukningu eru 148-168-188-196-216-224 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón án útaukningar þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við háls. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig: Prjónið 22-25-27-29-33-35 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 30-34-40-40-42-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 44-50-54-58-66-70 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 30-34-40-40-42-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 22-25-27-29-33-35 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 100-112-120-132-148-160 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 50-56-60-66-74-80 lykkjur (= í hliðar á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð í hlið við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8 cm frá skiptingu = 92-104-112-124-140-152 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 13 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-6-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 96-110-118-130-148-160 lykkjur. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 40-42-44-46-48-50 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 30-34-40-40-42-42 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-10 lykkjum undir ermi = 36-40-46-48-50-52 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-3-½-½-½-½ cm millibili alls 2-3-5-5-5-5 sinnum = 32-34-36-38-40-42 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 10-9-7-6-6-6 cm frá skiptingu (nú eru eftir 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2 lykkjur jafnt yfir = 30-32-34-36-38-40 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 14-13-11-10-10-10 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Lorna Strombeck wrote:
Thank you for taking this question: The style is perfect for my kidsilk mohair cropped elbow-length raglan seamless top down sweater. I would like, however, to rouche at the sleeve shoulder for a puffed rather than the fitted shape. How do I achieve the rouche incorporated into the raglan pattern?
08.08.2022 - 17:57