ALLEMAND GISELE wrote:
Bonjour, j'ai fini ce sublime gilet les mesures sont toutes bonnes sauf la largeur du bas du gilet, taille xs j'ai 32 cm bord à bord au lieu de 38, j'ai pourtant rajouté les 5 mailles indiqués.je voulais savoir aussi si l'on mesure la largeur d'un gilet une fois boutonné ou bord à bord ?
07.04.2023 - 12:52DROPS Design answered:
Bonjour Mme Allemand, vous devez avoir pour le dos, entre les marqueurs 46 mailles (avant les augmentations des côtes), soit environ 38 cm (si votre tension est juste). Les augmentations avant les côtes viennent légèrement compenser les côtes, toutefois, les côtes vont resserrer un peu le bas du gilet. Mesurez avant les côtes, vous devriez avoir 38 cm (après les diminutions sur les côtés). Bon tricot!
11.04.2023 - 11:59Monika wrote:
Witam. W opisie na wykonanie karczku pisze ze mamy dodać 4 oczka przy każdym markerze i w rzędzie będzie dodane 16 oczek. Natomiast dodając po 4 oczka przy każdym markerze będzie tych oczek 24 w rzędzie a w sumie na koniec 246 oczek zamiast 190. Czy mam dodawać 4 oczka przed każdym marketem czy po 2 oczka? Markerów na karczku jest 4
04.01.2022 - 14:46DROPS Design answered:
Witaj Moniko, w trzecim rozmiarze przed dodawaniem o. na reglany masz 78 o. Dalej przerabiać dżersejem i dodawać oczka na reglan (4 w miejscu każdego markera, czyli 16 o. w 1 rzędzie) w sumie 7 razy co 4 rzędy (tj. co 2 rzędy na prawej stronie robótki) = 78 + (7x16)= 78+112=190. Mam nadzieję, że pomogłam. Pozdrawiam!
04.01.2022 - 17:10Ann wrote:
I’m just about to start this project. My test swatch measures correctly, but it is a very open, lacy looking fabric. It’s pretty! But is it right? Just checking. \r\nThanks
20.09.2021 - 20:45DROPS Design answered:
Dear Ann, if you get the correct tension with Melody, then it's the required fabric for this jacket. You will find other jackets worked with a yarn group D and different tensions here if it can help. Happy knitting!
21.09.2021 - 09:01Hilary wrote:
I think I ended up missing an M1 somewhere before the yoke, but I can't find where. In the yoke section it says, "There are 14-15-16-16-17-17 stitches after last marker on front piece." However I have one fewer. After increasing right after the ribbing, I had 74 for the size small. How do I get to 75 stitches when placing the markers setting up for raglan? Maybe I am misunderstanding raglan set up. This is my first time knitting a Drops pattern.
22.05.2021 - 18:25DROPS Design answered:
Hi Hilary, you should have: 15 sts for first front piece, 1 st with a marker for the raglan line, 10 sts for first sleeve, 1 st with a marker for the raglan line, 20 sts for back piece, 1 st with a marker for the raglan line, 10 sts for 2nd sleeve, 1 st with a marker for the raglan line , 15 sts for back piece = 15+1+10+1+20+1+10+1+15= 74 sts. Happy knitting!
25.05.2021 - 07:43Anna wrote:
Ok , but I thought that was for an extra small? the casting on of 65 is'nt that extra small? what would the increase be for size small ? is it the same?
04.03.2021 - 14:30DROPS Design answered:
Dear Anna, This lesson explains how to increase evenly, this might be able to help you to calculate how to increase. Happy knitting!
04.03.2021 - 15:57Anna wrote:
I want to make the small size , but i tried to figure out the increase numbers in the beginning after the neck rib ,and its not coming out right . can you please help with this?
03.03.2021 - 20:13DROPS Design answered:
Hi Anna, The first increase is just after the rib, increasing 5 stitches evenly on the row -not on the bands, but after each 11th stitch on the body make 1 yarn over . On the next row, work the yarn overs twisted to avoid holes. Happy knitting!
04.03.2021 - 07:38Anna Starkey wrote:
This pattern is too chopped up. It shouldnt be so complicated.
23.02.2021 - 19:28Anna wrote:
I would agree this and the similar cardigan pattern are very hard to follow , Its like your writing them harder than the are , most or all I have knitted in the raglan style tell you when and where you increase and placement of markers. Too bad you cant write them that way.
23.02.2021 - 19:19Sara wrote:
Det må være en feil i oppskriften. Jeg strikket størrelse S La opp 67 masker, øker med 7 = 74 (riktig etter oppskriften) Dele til forstykker 15 m x2, ermer 10 m x2 og bakstykke 20 m = 70 m. Dvs 4 masker for lite. Jeg la ikke merke til dette før jeg skulle dele opp til ermer og bol. Da hadde jeg 166 masker istedenfor 170
22.02.2021 - 11:59
Sweet Melody Cardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð XS - XXL.
DROPS 212-24 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN: Ystu 5 lykkjurnar í hvorri hlið við miðju að framan eru kantlykkjur að framan. Þær eru prjónaðar frá réttu þannig: 1 lykkja garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, 1 lykkja garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, 1 lykkja garðaprjón. Haldið áfram með garðaprjón yfir garðaprjón og sléttprjón yfir sléttprjón. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 65 lykkjur), mínus kanta að framan (= t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 5) = 11. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 11. hverja lykkju, ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi prjónuð 10. og 11. hver lykkja slétt saman. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan. Allar útaukningar eru gerðar frá réttu og aukið út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) eins og útskýrt er í uppskrift. AUKIÐ ÚT UM 4 LYKKJUR ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir lykkju með prjónamerki (laskalínu lykkja), sleppið ekki lykkjunni af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, en bíðið með að lyfta lykkjunni af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, sleppið síðan lykkjunni af vinstri prjóni (= 4 lykkjur fleiri). Setjið 1 prjónamerki í miðju á þessum 5 lykkjum (fyrir næstu útaukningu). AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir lykkju með prjónamerki (laskalínu lykkja), sleppið ekki lykkjunni af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, sleppið síðan lykkjunni af vinstri prjóni (= 2 lykkjur fleiri). Setjið 1 prjónamerki í miðju á þessum 3 lykkjum (fyrir næstu útaukningu – á einungis við um stærð L). ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri við prjónamerki). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju sléttprjón og endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-4-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 9-9½-10-8-9-9 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 65-67-69-73-75-77 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 6 með Melody. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan eins og útskýrt er að ofan. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm – munið eftir HNAPPAGAT á hægri kanti framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 5-7-9-5-7-5 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 70-74-78-78-82-82 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan, í byrjun á umferð mitt að framan. Berustykki er nú mælt frá þessu prjónamerki! Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn í útaukningu er prjónaður snúinn brugðið og kantar að framan halda áfram eins og áður). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Prjónamerkin eru notuð síðar þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 14-15-16-16-17-17 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 10 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 18-20-22-22-24-24 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 10 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 14-15-16-16-17-17 lykkjur eftir síðasta prjónamerki á framstykki. Nú er prjónað og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan: Byrjið frá réttu og prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu, aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Þ.e.a.s. prjónaðar eru fyrst 4 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki í (= alls 16 lykkjur fleiri í umferð). Haldið svona áfram og aukið út fyrir laskalínu í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 5-6-7-7-9-9 sinnum á hæðina = 150-170-190-190-226-226 lykkjur. Haldið áfram með útaukningu í 4. hverri umferð, en nú er einungis aukið út um 2 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki í, eins og útskýrt er að ofan (= alls 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 2 lykkjur við hvert prjónamerki alls 1-1-1-2-0-1 sinnum á hæðina. Eftir síðustu útaukningu eru 158-178-198-206-226-234 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við háls. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 27-30-32-34-38-40 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 30-34-40-40-42-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 44-50-54-58-66-70 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 30-34-40-40-42-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 27-30-32-34-38-40 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 110-122-130-142-158-170 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 30-33-35-38-42-45 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 50-56-60-66-74-80 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8 cm frá skiptingu = 102-114-122-134-150-162 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 13 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 5-5-7-7-7-9 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 107-119-129-141-157-171 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan eins og áður, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan eins og áður. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 40-42-44-46-48-50 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 30-34-40-40-42-42 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 lykkjum undir ermi = 36-40-46-48-50-52 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-3-½-½-½-½ cm millibili alls 2-3-5-5-5-5 sinnum = 32-34-36-38-40-42 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 10-9-7-6-6-6 cm frá skiptingu (nú eru eftir 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2 lykkjur jafnt yfir = 30-32-34-36-38-40 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 14-13-11-10-10-10 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Maaike De Grande wrote:
Hi, ik maak momenteel maat M. Bij het uitzetten van de markeerdraden voor de raglan klopt de telling niet. 16+10+22+10+16= 74 en niet 78 Ik neem de extra steken op in het rugpand 👍 Misschien wisten jullie dit al? In elk geval - ik ben grote fan 😜 Groetjes vanuit België
06.06.2023 - 16:25