DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1914.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Holiday Hearts

Prjónaðir sokkar með hjörtum úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með lettneskum kaðli og norrænu mynstri. Stærð 35 - 43. Þema: Jól.

DROPS Extra 0-1464
DROPS Design: Mynstur fa-445
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: Ca 22-24-27 cm.
Hæð á sokk: Ca 13-16-16 cm.

EFNI:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100 g litur 106, rauður
50-50-50 g litur 100, natur

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1914.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

LETTNESKUR KAÐALL:
Kaðallinn samanstendur af 3 umferðum – allar umferðir eru teiknaðar inn í A.1 og merktar með A.x. Þessar 3 umferðir eru prjónaðar þannig:
UMFERÐ 1: * prjónið 1 lykkju slétt með litnum rauður, 1 lykkja slétt með litnum natur *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 2: Leggið báða þræðina á framhlið á stykki (að þér). Færið þráðinn með litnum rauður yfir að bakhlið, prjónið 1 lykkju brugðið og færið þráðinn til baka að framhlið. Dragið þráðinn með litnum natur undir þráðinn með litnum rauður og síðan yfir að bakhlið, prjónið 1 lykkju brugðið og færið þráðinn til baka að framhlið. Haldið svona áfram með brugðnar lykkjur til skiptis litur rauður og litur natur, en færið þráðinn alltaf UNDIR þráðinn frá síðustu lykkju sem þú prjónaðir.
UMFERÐ 3: Prjónaðu eins og umferð 2, en nú færist þráðurinn alltaf yfir þráðinn frá síðustu lykkju sem þú prjónaðir.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 64 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 16. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 15. og 16. hverja lykkju slétt saman.

LEIÐBEININGAR-1:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir í hálft númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

LEIÐBEININGAR-2 (á við um hæl):
Til að styrkja hælinn er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan í og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 8-8-9 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 8-8-9 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu.
Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 15-15-17 lykkjur eru eftir á prjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKUR – UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

SOKKUR:
Sjá LEIÐBEININGAR-1!
Fitjið upp 64-64-74 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum rauður. Prjónið A.1 hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 1 umferð slétt með litnum rauður þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 60-60-70 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Stærð 35/37 og 38/40: Prjónið A.2A (= 4 lykkjur), prjónið A.2B yfir næstu 50 lykkjur (= 5 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.2C (= 6 lykkjur).
Stærð 41/43: Prjónið A.2B yfir allar 70 lykkjur (= 7 mynstureiningar með 10 lykkjum).
ALLAR STÆRÐIR:
Haldið svona áfram með mynstur (athugið að það er alltaf prjónuð 1 umferð með litnum rauður yfir allar lykkjur á eftir umferð með hjörtum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Endurtakið A.2 alls 4-5-5 sinnum á hæðina, en endið þegar 1 umferð er eftir með litnum rauður yfir allar lykkjur. Stykkið mælist nú ca 13-16-16 cm frá uppfitunarkanti.
Prjónið síðan hæl eins og útskýrt er að neðan:
Haldið eftir fyrstu 14-14-17 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 31-31-37 lykkjur á þráð án þess að prjóna lykkjurnar (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 15-15-16 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 29-29-33 lykkjur á prjóni fyrir hæl.
Sjá LEIÐBEININGAR-2 og prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjurnar með litnum rauður í 5-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð, prjónamerkið er notað síðar þegar mæla á lengd fótar frá.
Prjónið HÆLÚRTAKA með litnum rauður – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð með litnum rauður þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 15-15-17 hællykkjurnar, prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttar lykkjur með litnum rauður yfir 31-31-37 lykkjur frá þræði á fæti og prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hælnum = 72-74-86 lykkjur í umferð. Prjónið mitt undir hæl, núna byrjar umferðin hér.
Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 41 miðjulykkjur á fæti (þ.e.a.s. hvoru megin við A.4). Nú eru 31-33-45 lykkjur undir fæti. Setjið 1 prjónamerki mitt undir fæti þannig að það verða 15-17-23 lykkjur á eftir prjónamerki (þ.e.a.s. vinstra megin við prjónamerki) og 16-16-22 lykkjur á undan prjónamerki (þ.e.a.s. hægra megin við prjónamerki).
Byrjið umferð við prjónamerki (= mitt undir fæti) og prjónið fyrstu umferð þannig:
Prjónið A.3A yfir fyrstu 14-16-22 lykkjur (= 7-8-11 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið A.3B (= 1 lykkja), prjónið A.4 (= 41 lykkjur), prjónið A.3A yfir næstu 16-16-22 lykkjur (= 8-8-11 mynstureiningar með 2 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir hringinn yfir allar lykkjur, fækkið lykkjum hvoru megin við miðju 39 lykkjur á fæti þannig (úrtökulykkjur eru alltaf prjónaðar með litnum rauður):
Fækkið lykkjum á undan fyrra prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, prjónið þessa lykkju (= síðasta lykkjan í A.3) slétt saman við fyrstu lykkjuna á eftir prjónamerki (= fyrsta lykkja í A.4).
Fækkið lykkjum á eftir síðasta prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, prjónið þessa lykkju (= síðasta lykkjan í A.4) snúna slétt saman við fyrstu lykkjuna á eftir prjónamerki (= fyrsta lykkjan í A.3).
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-8-12 sinnum = 56-58-62 lykkjur eftir (A.4 kemur alltaf til með að prjónast yfir miðju 41 lykkjurnar á fæti, en það verða færri og færri lykkjur í A.3 undir fæti).
Prjónið síðan án úrtöku þar til stykkið mælist ca 18-19-21 cm frá prjónamerki á hæl, en endið eftir heila röð með hjörtum. Prjónið síðan sléttprjón með litnum rauður til loka.
Þegar stykkið mælist 18-19-21 cm frá prjónamerki á hæl, nú eru eftir ca 4-5-6 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd.
Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum, þannig að það verða 28-29-31 lykkjur bæði ofan á og undir fæti.
Prjónið síðan sléttprjón með litnum rauður og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman), prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er mitt á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið úrtöku við hitt prjónamerkið (= 4 lykkjur færri í umferð).
Fækkið lykkjum svona hvoru megin við bæði prjónamerkin í annarri hverri umferð alls 3-5-7 sinnum og síðan í hverri umferð alls 8-7-6 sinnum = 12-10-10 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27 cm frá prjónamerki á hæl.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = brugðin lykkja með rauður
symbols = slétt lykkja með rauður
symbols = slétt með natur
symbols = prjónið LETTNESKUR KAÐALL – sjá útskýringu í uppskrift að ofan, með þráðinn undir þann sem þú prjónaðir síðast með
symbols = Prjónið LETTNESKUR KAÐALL – sjá útskýringu í uppskrift að ofan, með þráðinn yfir þann sem þú prjónaðir síðast með

symbols = byrjið hér
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1464

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Clare wrote:

Thank you for this lovely pattern! I've adapted it to knit a Christmas stocking for myself using DK wool - I added a band with my initials between the two cables and adjusted the proportions of the heel and foot. It turned out beautifully! I'm now casting on another stocking for my son with snowflake motifs instead of hearts.

03.09.2021 - 12:06

country flag Maria wrote:

Buongiorno. Non riesco a capire il suggerimento per il tallone rinforzato. Cosa significa lavorare una maglia in modo alternato con un capo dall'interno e dall'esterno del gimitolo? Cosa devo fare esattamente? Grazie mille.

23.11.2020 - 15:35

DROPS Design answered:

Buonasera Maria, deve lavorare il tallone con entrambi i capi del gomitolo, quindi sia quello interno che quello esterno. Deve lavorare una maglia con un capo e una maglia con l'altro capo. Buon lavoro!

23.11.2020 - 21:53

country flag Anni Larsen wrote:

🌹Er det på nogen måde muligt at i laver et katalog udelukkende med strømper med mønster og sokker og futter 🌹

20.05.2020 - 11:05

DROPS Design answered:

Hei Anni. Vi har sluttet med kataloger med oppskrifter, kun brosjyrer med bilder. Vi legger ut alle våre oppskrifter gratis på vår nettside og her kan du enkelt søke på f.eks strømper. mvh DROPS design

25.05.2020 - 14:25

country flag Catherine wrote:

Bonjour, il me semble qu'il manque les diagrammes A1 et A3 car ils sont cités dans les explications mais n'apparaissent pas dans la partie diagrammes. Merci pour votre réponse.

07.12.2019 - 10:53

DROPS Design answered:

Bonjour Catherine, effectivement, merci pour votre retour, nous allons faire le nécessaire le plus rapidement possible. Bon tricot!

09.12.2019 - 08:18

country flag Lina wrote:

Bonjour, je ne vois pas le sigle de la tresse lettone A.x sur les diagrammes ? Merci pour la réponse ..

07.12.2019 - 07:56

country flag Rena wrote:

Hallo, es fehlen die Anleitung A1 und A3 sowie die Angabe, wie breit A1 ausgeführt werden sollte - oder habe ich es einfach überlesen?

07.12.2019 - 06:41

DROPS Design answered:

Liebe Rena, Sie sind ja rechts, die felhende Diagramme hochladen wir so schnell wie möglich, Danke für den Hinweis, Viel Spaß beim stricken!

09.12.2019 - 08:06