Mona Ruth Østby wrote:
Hvordan kan jeg utvide mønsteret med flere masker slik at jakken blir bredere?
10.03.2022 - 15:42DROPS Design answered:
Hei Mona, Hvis du har riktig strikkefasthet kan du regne ut hvor mange ekstra masker du trenger for den utvidelsen du ønsker. 7 masker gir 10 cm, så hvis du vil ha 5 cm bredere for eksempel, må du øke 3 eller 4 masker, osv. God fornøyelse!
11.03.2022 - 07:06Renders-Koninckx wrote:
Zou het mogelijk zijn om mij dit patroon van de onder kant te beginnen door te sturen? Met dank
23.02.2020 - 16:27DROPS Design answered:
Dag Renders-Koninckx,
Helaas is dit patroon er alleen met beschrijving van boven naar beneden. Je zou hem zelf kunnen omzetten door alles a.h.w. omgekeerd te doen. Het aantal steken dat je afkant zet je op, het aantal minderingen, enzovoort.
23.02.2020 - 16:51Veronique31 wrote:
Proposé au mois de juin et toujours pas d'explications... Normalement un ouvrage realiséen été se porte en automne ...
07.10.2019 - 10:50Rosemary Gallagher wrote:
This is gorgeous, my next make for myself!
18.08.2019 - 20:15Rossi Marie Jeanne wrote:
J' adorerais le faire pour m'enveloppé dedans un monde de douceur et de chaleur
22.07.2019 - 18:15Laperrière wrote:
Il est superbe ce modèle j adore tout le travail qu' il y a dedans.
10.06.2019 - 11:03Olga Visser wrote:
Deze is prachtig
09.06.2019 - 21:49Ellis wrote:
Again snowwoman ;-)
09.06.2019 - 20:21Beatrice DELEPINE wrote:
Je l'aime beaucoup et plus encore en pull.
08.06.2019 - 12:58
Powder Perfect |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROSP Polaris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldu perluprjóni á hæðina, köðlum og sjalkraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-35 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI (á við þegar prjónað er með Polaris): Þegar skipt er um dokku af Polaris þá er endanum skipt í tvo hluta á þræðinum sem er að ljúka ca 15 cm. Klippið af annan endann og það sama er gert við nýja þráðinn. Leggið endana saman yfir hvorn annan svo að þykktin verði sú sama og áður. Prjónið áfram. Með þessu er komið í veg fyrir að samskeytin sjáist. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.4 (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur A.3. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru prjónaðir 2 laus stykki fyrir kraga. Þessi stykki eru síðan sett inn á hringprjón þegar lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli eins og útskýrt er í uppskrift (kraga stykkin eru síðar saumuð saman við miðju að aftan og síðan saumuð við hálsmál aftan í hnakka). Síðan er berustykkið prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður og saumaðar saman í lokin. Lesið BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI. VINSTRI KRAGI: Fitjið upp 8 lykkjur á hringprjón 15 með Polaris. Prjónið stuttar umferðir fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur, snúið. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið slétt til baka, snúið. UMFERÐ 3: Prjónið slétt yfir fyrstu 5 lykkjur, snúið. UMFERÐ 4: Prjónið slétt til baka, snúið. Endurtakið umferð 1-4 þar til stykkið mælist 7 cm meðfram stystu hliðinni á kraganum – stillið af að næsta umferð sé frá réttu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú A.2a yfir allar lykkjur (= 1 lykkja fleiri) = 9 lykkjur. Þegar A.2a hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2b yfir lykkjur þar til kraginn mælist 10 cm frá garðaprjóni á kraga – og stillið af að endað sé eftir umferð frá réttu. Setjið lykkjur á þráð. Prjónið hægri kraga. HÆGRI KRAGI: Fitjið upp 8 lykkjur á hringprjón 15 með Polaris. Prjónið stuttar umferðir fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur, snúið. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið slétt yfir 5 fyrstu lykkjur á prjóni, snúið. UMFERÐ 3: Prjónið slétt til baka yfir fyrstu 5 lykkjurnar, snúið. UMFERÐ 4: Prjónið slétt yfir allar lykkjur í umferð, snúið. Endurtakið umferð 1-4 þar til stykkið mælist 7 cm meðfram stystu hliðinni á kraganum – stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Prjónið nú A.1a yfir allar lykkjur (= 1 lykkja fleiri) = 9 lykkjur. Þegar A.1a hefur verið prjónað til loka, prjónið A.1b þar til kraginn mælist 10 cm frá garðaprjóni á kraga – og stillið af að prjónaðar séu jafn margar umferðir í mynstri og á vinstri kraga og að endað sé eftir umferð frá réttu KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið nú stykkin saman frá röngu þannig: Prjónið A.1b eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjur í hægri kraga, fitjið upp 36-36-38-44-46-52 nýjar lykkjur á prjóni og prjónið A.2b eins og áður yfir 9 lykkjur af þræði á vinstri kraga = 54-54-56-62-64-70 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur frá réttu þannig: Prjónið A.2b yfir fyrstu 9 lykkjurnar, prjónið A.3 yfir næstu 2-2-2-4-4-6 lykkjur (= vinstra framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.4 (= 4 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.3 yfir næstu 2 lykkjur (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.4 (= 4 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.3 yfir næstu 12-12-14-16-18-20 lykkjur (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.4 (= 4 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.3 yfir næstu 2 lykkjur (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.4 (= 4 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.3 yfir næstu 2-2-2-4-4-6 lykkjur og endið með A.1b yfir síðustu 9 lykkjurnar (= hægra framstykki). Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið. Haldið áfram með mynstur svona fram og til baka og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 9-10-11-11-12-13 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning eins og útskýrt er að ofan). Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 126-134-144-150-160-174 lykkjur í umferð. Prjónið áfram án útaukningar þar til berustykkið mælist 23-25-28-29-31-33 cm frá prjónamerki. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið 22-23-24-26-27-30 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 24-26-28-28-30-32 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 34-36-40-42-46-50 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 24-26-28-28-30-32 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 22-23-24-26-27-30 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 86-90-96-102-112-122 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður, þ.e.a.s. A.1b/A.2b er prjónað yfir ystu 9 lykkjur í hvorri hlið og mynstur A.3 er prjónað yfir þær lykkjur sem eftir eru. Prjónið þar til fram- og bakstykki mælist 35-35-34-35-35-35 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu af A.1b/A.2b á hæðina. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjón og saumuð saman í lokin. Setjið 24-26-28-28-30-32 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á hringprjón 15 og fitjið upp 2-2-2-2-3-3 nýjar lykkjur í hvorri hlið = 28-30-32-32-36-38 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka eftir mynstri A.3. Prjónið þar til ermin mælist ca 38-36-34-33-32-30 cm frá skiptingu (mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd) – stillið af þannig að endað sé eftir umferð frá röngu. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saum undir ermum í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki þykkur. Saumið kragann saman mitt að aftan þannig að saumurinn snúi inn þegar kraginn er brotinn niður og saumið kragann við hálsmál aftan í hnakka. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Fuhrer wrote:
Bonjour, quand allez vous mettre les explications ??? gilet trop beau hate de le faire ..j espere avant l'été prochain !!! lol merci
18.10.2019 - 16:41