DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cedar Wood

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Polaris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 206-39
DROPS Design: Mynstur po-108
Garnflokkur F eða E + E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS POLARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki F)
1000-1100-1200-1300-1400-1600 g litur 06, ljós beige

PRJÓNFESTA:
7 lykkjur á breidd og 8 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 15: lengd 60 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 12 fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 12: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

LEIÐBEININGAR:
ATH: Í vöruúrvalinu okkar höfum við ekki styttri hringprjóna en 60 cm í prjónastærð 15. Ummálið á stykkinu er minna en 60 cm. Þá er hægt að fitja upp lykkju á sokkaprjóna eða fitja upp lykkjur á hringprjón og prjónið GALDRALYKKJA – sjá útskýringu að neðan, þar til auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur til að nota hringprjón 60 eða 80 cm.

GALDRALYKKJA / MAGIC LOOP:
Ef prjónað er í hring á hringprjón sem er of langur fyrir lykkjufjöldann er hægt að gera það þannig: Hringprjóninn á að vera langur og hafa sveigjanlega snúru.
Færið lykkjurnar að miðju á snúrunni. Deilið lykkjunum í tvennt og dragið snúruna út á milli lykkja fyrir miðju. Færið lykkjurnar að prjónaendanum í hvorri hlið, passið uppá að lykkjurnar verði ekki snúnar. Þráðurinn sem prjóna á með er á aftari prjóni og þú byrjar á að prjóna með fremri prjóni. Dragið út aftari prjóninn til að prjóna lykkjurnar á þeim fremri. Þegar lykkjurnar á fremri prjóni hafa verið prjónaðar, snúið við og færið lykkjurnar til baka á auða prjóninn og prjónið hina hliðina alveg eins. Haldið svona áfram hringinn, passið uppá að draga alltaf út prjóninn í þeirri hlið þar sem þú hefur þráðinn.

ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
ATH: Til að úrtakan komi til skiptis í hægri og vinstri hlið á stykki er lykkjum fækkað þannig:
Fækkið lykkjum til skiptis í byrjun og í lok umferðar sem úrtakan á að vera.
Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum frá röngu þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 34-36-38-40-42-44 lykkjur á sokkaprjóna/hringprjón 12 – sjá LEIÐBEININGAR, með Polaris. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 15. Setji eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Prjónið mynstur mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð S, L og XXL:
Prjónið * A.1, A.2 *, prjónið *-* alls 8-9-10 sinnum, prjónið A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Stærð M, XL og XXXL:
Prjónið * A.1, A.2 *, prjónið *-* alls 9-10-11 sinnum hringinn í umferð.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar allt A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 102-108-114-120-126-154 lykkjur í umferð, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-4-2-8-10-2 lykkjur jafnt yfir = 102-112-116-128-136-156 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 24-26-28-30-32-34 cm frá prjónamerki.

Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 15-16-17-19-20-23 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 21-24-24-26-28-32 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 30-32-34-38-40-46 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 21-24-24-26-28-32 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 15-16-17-19-20-23 lykkjur (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 68-72-76-84-92-104 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notið aðeins síðar þegar auka á út. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju á undan báðum prjónamerkjum – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið síðan út þannig:
Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki.
Þegar stykkið mælist 11 cm er aukið út um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki.
Þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki.
Í stærð M og XXXL heldur útaukningin áfram þannig:
Þegar stykkið mælist 17 cm er aukið út um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki.
Þegar stykkið mælist 20 cm er aukið út um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki.

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 76-84-84-92-100-116 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram hringinn í sléttprjóni með litnum milligrár þar til stykkið mælist 25 cm frá skiptingu. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón og saumaðar saman í lokin.
Setjið 21-24-24-26-28-32 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón 15 og fitjið upp 2-2-2-2-3-3 nýjar lykkjur í hvorri hlið = 25-28-28-30-34-38 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka, jafnframt í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1-0-0-0-0-0 lykkjur (einungis er lykkjum fækkað í stærð S) með því að prjóna 2 ystu lykkjur slétt saman = 24-28-28-30-34-38 lykkjur. Þegar stykkið mælist 4-4-2-4-4-2 cm fækkið um 1 lykkju í hægri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA. Fækkið til skiptis lykkjum vinstra og hægra megin á stykki í annarri hverri – annarri hverri – hverri – hverri – hverri umferð alls 8-12-12-14-14-18 sinnum (= 4-6-6-7-7-9 sinnum í hvorri hlið) = 16-16-16-16-20-20 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 34-33-32-30-28-26 cm frá skiptingu. (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Skiptið yfir á hringprjón 12. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saum undir ermum í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.03.2022
FRAM- OG BAKSTYKKI:..Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Sharon wrote:

Hi! Good morning. I have the sleeves of this sweater so am almost done. Polaris is a thick yarn which make this sweater very heavy. It will be however very warm. Can I wash this on the wool program. It is impossible to wash this by hand per ball band instruction. Just knitting the sleeves make my shoulder hurts. Love this sweater though and do not want to damage it, but I must wash it som how. Thanks for all your help and responses to my many questions. Sharon

29.08.2023 - 09:21

DROPS Design answered:

Hi Sharon, The recommendation for this yarn is hand-washing at max 30 degrees. You could try a cool machine wash, if hand washing is difficult. Always dry the garment flat and shape it while it is still wet. Good luck!

30.08.2023 - 06:52

country flag Sharon Hunt wrote:

Hi\r\nWorking on the sleeves. Just checking to make sure that the increases on the sleeves are done every 4th row. Is my calculation correct? Thanks for your help. \r\nS

11.08.2023 - 18:45

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hunt, when working sleeves you will only decrease - read decrease tip - alternately at the beg and at the end of the row on every other row: first decrease at the end of the row, then on next row from RS decrease at the beg of the row and repeat these 2 decreases as many time as required in your size, so that the decrease will be worked on every 4th row at the beg/end of the row. Happy knitting!

14.08.2023 - 08:31

country flag Sharon Hunt wrote:

Hi and good day. Thanks 🙏 for answering my previous question. I tried on my sweater and must admit that I like my sweaters longer. Is this doable without it affecting the overall sweater? How many more balls should I purchase. Thank you for your response . Sharon.

17.07.2023 - 18:38

DROPS Design answered:

Hi Sharon, of course you can do it. Do not forget to increase 1 stitch after each marker thread every few centimetres. You will need at least 2 more balls of yarn but it depends on the total lenght of your sweater. Happy knitting!

17.07.2023 - 22:07

country flag Sharon Hunt wrote:

Hi! Can I work the sleeves in the round? Can I work k2 tog on the right side and ssk on the left side. I hate sewing . Sharon

16.07.2023 - 08:20

DROPS Design answered:

Dear Sharon, yes, you could work them in the round. And yes, you could for ssk on the left side, just make sure that no holes are left in the sleeves. Happy knitting!

17.07.2023 - 11:55

country flag Sharon Hunt-Edwards wrote:

Hi Started the Cedar sweater and I have completed the first round of the chart A1 and A2 for Size XXL. I have 2 stitches left at the end of round one. Have I done something wrong her as I expected that there would be 4 stitches to complete the round. Please explain this and let me know what I should do to correct this. Thank you.

07.07.2023 - 20:00

DROPS Design answered:

Dear Sharon, you have 42 initial stitches. Work A.1 and A.2 10 times (= 40 stitches) and A.1 once more (= 2 stitches). You will have 42 stitches and 10 increases. Happy knitting!

10.07.2023 - 16:32

country flag Sharon Hunt wrote:

Hi! Got cold feet after my question about this sweater. I have the yarn so I have no choice. I was looking at the schematics and it seem if I make the size 52 I would get a finished size 60. Not what I want, however if I choose size 47 I would have a finished size of 51. Close enough? Am not sure about this and need some help not to redesign the sweater, but to avoid making a sweater that is way too big. Thanks for your help.

09.03.2023 - 18:51

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hunt, make first sure you have the correct tension so that you will have the finished measurements as in the chart, then take a similar garment you have and like the size and compare them to the ones in the chart, if you are between 2 sizes, choose the smaller one for a tighter fit and the larger one for a looser fit. read more here. Happy knitting!

10.03.2023 - 09:26

country flag Gabi wrote:

Hallo, die Polaris wird als Filzwolle bezeichnet. Wie kann ich den Pullover waschen?

13.09.2022 - 18:52

DROPS Design answered:

Liebe Gabi, DROPS Polaris waschen Sie wie an der Banderolle bzw Farbekarte erklärt; mehr über Pflegehinweise lesen Sie hier. Viel Spaß beim stricken!

14.09.2022 - 09:01

country flag Sharon Hunt wrote:

Hi! Am preparing to make this sweater and I have a question. I am making size (xxl) which gives a finished size 52. My question so far relates to the diagram. Reading from left to write I would start A2 then A1, or should I start reading right to left in that case I would Start with A1 as stated in the pattern. What does the number 6 at the top indicates? Thanks for your response.\r\nSharon

02.08.2022 - 12:09

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hunt, the jumper is worked top down and the diagrams are read bottom up; this means you will read every round from the right towards the left and repeat (A.1, A.2) all the round. Each diagram (A.1 and A.2) starts with 2 sts and finish with 6 sts (you increase 4 sts in each diagram). Can this help? Happy knitting!

02.08.2022 - 13:06

country flag Sharon wrote:

Would i cast on 136 sts to make a size 52? I hsve never made a sweater top down so there will be a few questions.

20.01.2022 - 12:04

DROPS Design answered:

Dear Sharon, in size S you will cast on 34 sts for neck edge; look at this lesson, it shows how to work a jumper top down (this one is worked with a circular yoke but the lesson may help you to understand how to work here from top down) and maybe also this lesson for the diagrams. Happy knitting!

20.01.2022 - 17:00

country flag Bianca wrote:

P.S. I found your tutorial on how to read knitting diagrams but I could not find a video tutorial. If you have one, I'd appreciate you post the link.

01.12.2019 - 08:00