Charlotte Hinger wrote:
Should the sweater, Blue Melody, be blocked? I've had wonderful results with this yarn and I extended the pattern into a dress.
22.09.2022 - 23:12DROPS Design answered:
Dear Mrs Hinger, some knitters block some other never block, so that it might be a matter of personnal habits/taste - feel free to ask your DROP Store for their own tips or advices. Happy knitting!
23.09.2022 - 07:55Martine GIDON wrote:
Bonjour, je voulais savoir si les augmentations de chaque côté des raglans comprennent aussi les demi-raglans (je suis juste après le col). Merci.
22.02.2020 - 20:04DROPS Design answered:
Bonjour Mme Gidon, vous devez augmenter pour le raglan 8 mailles à chaque tour d'augmentations, autrement dit, répétez les augmentations de la même façon: après la 1ère m du tour, de chaque côté des 2 m des raglans et avant la dernière m du tour. Bon tricot!
24.02.2020 - 08:37Agnieszka wrote:
Czy dobrze zrozumialam? Tył i przód tego swetra są identyczne?
25.12.2019 - 08:11DROPS Design answered:
Witaj Agnieszko! Dokładnie tak, przód i tył są identyczne. Pozdrawiamy!
30.12.2019 - 00:36Lesley wrote:
I think it looks lovely, and will probably knit this, I love the softness of melody
17.08.2019 - 01:41Ellis wrote:
To thick yarn and to big needles. quick knit for young beginners but I want more challenge and more elegance
09.06.2019 - 19:13Dianne wrote:
It reminds me of something you can cuddle into.
09.06.2019 - 02:05
Blue Melody |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð síð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og kúlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-13 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkju sléttprjón í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ATH: Í mynsturteikningu A.1a og A.3a er aukið út í mynstri eins og mynsturteikning sýnir. Þær lykkjur sem hafa verið auknar út fyrir laskalínu er teiknaðar inn í mynsturteikningu (sjálf útaukningin fyrir laskalínu er ekki teiknuð inn). ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 11 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 2) = 5,5. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 4. og 5. hverja lykkju og 5. og 6. hverja lykkju saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn við 5. og 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kraginn og berustykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar íhring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KRAGI: Fitjið upp 100-105-110-115-120-125 lykkjur á stuttan hringprjón 5 með Melody. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar kraginn mælist 8 cm, fækkið allar 3 lykkjur slétt til 2 lykkjur slétt með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman í byrjun á hverri sléttri einingu = 80-84-88-92-96-100 lykkjur. Haldið áfram með stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til kraginn mælist 25 cm. BERUSTYKKI: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Prjónamerkin merkja laskalykkjur og eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. ATH: Prjónamerkin eru sett án þess að prjóna. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi þegar flíkin er mátuð), teljið 8-10-10-12-12-14 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki, teljið 32-32-34-34-36-36 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 8-10-10-12-12-14 lykkjur (= ermi) og setjið 1 prjónamerki. Nú eru 32-32-34-34-36-36 lykkjur fram að fyrstu lykkju (= bakstykki). Setjið 1 prjónamerki mitt í framstykki. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 1 lykkju slétt (= hálf laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið 6-8-8-10-10-12 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið A.1a yfir næstu lykkju, byrjið á umferð merktri í þinni stærð, prjónið A.2a yfir næstu 28-28-30-30-32-32 lykkjur og prjónið A.3a yfir næstu lykkju (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið 2 lykkjur (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið 6-8-8-10-10-12 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið 2 lykkjur slétt (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið A.1a yfir næstu lykkju, byrjið í umferð merktri í þinni stærð og prjónið A.2a yfir næstu 28-28-30-30-32-32 lykkjur, prjónið A.3a yfir næstu lykkju (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning) og endið með 1 lykkju slétt (= hálf laskalína). Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið. Haldið áfram með MYNSTUR svona – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT heldur útaukning áfram fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalínu í annarri hverri umferð alls 16-19-21-22-24-25 sinnum (meðtalin útaukning sem er útskýrð í fyrstu umferð) – nýjar lykkjur á framstykki og bakstykki eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í A.1a og A.3a. Á ermum eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Þær 20-20-20-20 24-24 umferðir í A.2a eru endurteknar á hæðina til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 208-236-256-268-288-300 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður en án útaukninga fyrir laskalínu þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá þar sem prjónamerki var sett á framstykki, þ.e.a.s. yfir miðju 52-52-54-54-62-62 lykkjur á framstykki og bakstykki er prjónað þannig: Prjónið A.1b yfir síðustu 12-12-12-12-15-15 lykkjur í A.1a (byrjið á umferð merktri með ör í þinni stærð), haldið áfram með A.2b eins og áður yfir næstu 28-28-30-30-32-32 lykkjur og prjónið A.3b yfir fyrstu 12-12-12-12-15-15 lykkjur í A.3a (byrjið á umferð merktri með ör í þinni stærð). Þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá þar sem prjónamerki var sett á framstykki skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 1-1-1-2-3-5 lykkjur (= á bakstykki), setjið næstu 38-46-50-52-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður yfir næstu 66-72-78-82-90-96 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 38-46-50-52-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn og prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður yfir þær 65-71-77-80-87-91 lykkjur sem eftir eru (= á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 148-160-172-184-200-216 lykkjur. Prjónið að miðju í 8-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Nú byrjar umferðin hér og fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Prjónið 11-14-16-19-19-23 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með mynstur A.1b, A.2a og A.3b eins og áður yfir næstu 52-52-54-54-62-62 lykkjur, prjónið 22-28-32-38-38-46 lykkjur sléttprjón (= í hlið), haldið áfram með mynstur A.1b, A.2a og A.3b eins og áður yfir næstu 52-52-54-54-62-62 lykkjur og endið með 11-14-16-19-19-23 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram. Prjónið þar til fram- og bakstykki mælist ca 34 cm frá skiptingu – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina (ef ekki hefur verið náð þessu máli, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur að réttu máli). Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 11-14-16-19-19-23 lykkjur sléttprjón og jafnið jafnframt lykkjufjöldanum út til 9-15-15-21-21-21 lykkjur – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING, prjónið A.1c yfir A.1b (= 12-12-12-12-15-15 lykkjur), prjónið A.2b yfir A.2a (= 28-28-30-30-32-32 lykkjur), prjónið A.3c yfir A.3b (= 12-12-12-12-15-15 lykkjur), prjónið 22-28-32-38-38-46 lykkjur sléttprjón og jafnið jafnframt lykkjufjöldanum út til 21-27-33-39-39-45 lykkjur, prjónið A.1c yfir A.1b (= 12-12-12-12-15-15 lykkjur), prjónið A.2b yfir A.2a (= 28-28-30-30-32-32 lykkjur), prjónið A.3c yfir A.3b (= 12-12-12-12-15-15 lykkjur), prjónið 11-14-16-19-19-23 lykkjur sléttprjón og jafnið jafnframt lykkjufjöldanum út til 12-12-18-18-18-24 lykkjur. Prjónið síðan stroff, þ.e.a.s. haldið áfram með A.1c, A.2b og A.3c eins og áður, þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í stroffi (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) – byrjið með sléttar lykkjur (bæði í byrjun á umferð og eftir A.3c). Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturin verði stífur, er hægt að fella af með hringprjón 6. Peysan mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 38-46-50-52-54-54 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 6 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 46-54-58-62-64-66 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-8-10-10-12 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-1½-1½-1-1-1 cm millibili alls 8-10-11-11-11-11 sinnum = 30-34-36-40-42-44 lykkjur. Þegar ermin mælist 20-19-19-17-16-15 cm frá skiptingu, aukið út um 2-2-4-0-2-4 lykkjur jafnt yfir = 32-36-40-40-44-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til ermin mælist 43-42-41-39-37-36 cm (mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með hringprjón 6. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Maribo wrote:
Super řešení volného roláku, vypadá krásně měkce a pohodlně
15.10.2019 - 16:22