Deni wrote:
Thanks for your prompt reply however I didn't quite understood :(. Is it possible to maybe elaborate simpler with sketch maybe?
05.01.2023 - 18:08DROPS Design answered:
Dear Deni, the increases will let the pattern grow in width, ie when you increase before A.1 you have to work the new stitch either K or P depending of the next stitch: if the first st in A.1 is a P stitch (like 1st stitch then work the new st before A.1 with P and after A.1, if the last st worked is a P st, then work the new st as a K. the pattern should grow on each side incorporating new sts in the pattern. Happy knitting!
06.01.2023 - 08:41Deni wrote:
Hi,I'm knitting size xxl and need assistance with the increasing part of raglan,how do I knit newly increased stitches so that pattern outside of A1 section is maintained?
04.01.2023 - 16:12DROPS Design answered:
Dear Deni, the new stitches increased are worked following A.1, ie the new stitch before A.1 is worked like the last stitch of the next repeat and the new stitch after A.1 is worked like the first stitch of the next repeat, after 2nd increase, work the new sts as the next to last st before A.1 and like the 2nd st next repeat after A.1 and continue like this so that the pattern is growing on the sides but continue in the middle. Happy knitting!
05.01.2023 - 10:46Anna wrote:
Il gettato nel ferro successivo va lavorato esclusivamente a diritto ritorto o può essere lavorato anche a rovescio ritorto a seconda di quello che dice A1 (quando A1 comincia con un rovescio)?Cioè, A1 comincia dopo i nuovi gettati o questi fanno parte del motivo?
24.01.2022 - 08:42DROPS Design answered:
Buonasera Anna, i gettati si lavorano a diritto ritorto sul ferro successivo. Buon lavoro!
24.01.2022 - 22:42Mel wrote:
Thank you for your reply. Another question I have is, does that k1 overlap with the knit stitches involved in raglan increases? Because the increase is yo, k1, slip marker, k1, yo. Then do we k1 and do A1 or just A1? Thank you so much for your help
10.01.2022 - 08:48DROPS Design answered:
Dear Mel, this knit 1 on either side of A.1 is one of the raglan stitches, ie you should always have 2 knitted stitches on each raglan with the marker thread between these stitches and increase then on either side of these 2 sts. (as explained under RAGLAN). Happy knitting!
10.01.2022 - 09:16Mel wrote:
Hi, I'm knitting a size S and I'm confused by the yoke section. It says to K1, A1, K1, stocking stitch over, K1, A1, k1, stocking stitch. And then we continue this pattern while increasing every 2nd round. Do we always do K1, or does that sometimes become a P1 depending on what A1 says? Thank you!
09.01.2022 - 19:02DROPS Design answered:
Hi Mel, You knit 1 before and after each A.1, then work A.1 according to the diagram. Happy knitting! Happy knitting!
10.01.2022 - 08:29Chiara wrote:
Penso di aver risolto: inizio il motivo A1 con il dritto e non con il rovescio. In qst modo entrami i lati del REGLAN saranno uguali. Speriamo, è la terza volta che disfo.
14.02.2021 - 12:46DROPS Design answered:
Buonasera Chiara, il diagramma A.1 inizia con 1 maglia rovescio: probabilmente sbaglia a lavorare il gettato prima del rovescio. Buon lavoro!
14.02.2021 - 19:44Chiara wrote:
Buongiorno, ma dopo il primo marcapunti, faccio dritto, un gettato e un rovescio dello schema ma mi si crea un “buco” maggiore a quello che esce se faccio dritto gettato dritto, nonostante al giro successivo il li lavori a dritto ritorto. Forse sbaglio a entrare nel rovescio quando faccio gettato. Spero sia comprensibile la mia problematica
12.02.2021 - 00:54DROPS Design answered:
Buonasera Chiara, sbaglia la lavorazione del gettato prima del rovescio, deve avvolgere 2 volte il filo prima del rovescio. Buon lavoro!
12.02.2021 - 23:06Ans Wisselink wrote:
Als ik dit wil breien met enkele draad, hoeveel meter heb ik dan nodig.
13.12.2020 - 11:37DROPS Design answered:
Dag Ans,
Je hebt dan hetzelfde aantal meters nodig. M.a.w.: je kunt één van de draden weg laten. De stekenverhouding verandert dan wel in de stekenverhouding zoals aangegeven bij het betreffende garen, dus zul je het patroon op basis daarvan ook om moeten rekenen.
17.12.2020 - 23:26Lisbet Hjelmaas wrote:
Er det bare på vrangborden det skal brukes dobbel trå, har lest oppdriften noen ganger, ser at det starter med dobbel trå men ser ikke hvor det slutter. En som lurer
07.08.2020 - 11:53DROPS Design answered:
Hei Lisbeth, Hele plagget skal strikkes med 1 tråd av hver kvalitet. God fornøyelse!
10.08.2020 - 06:56
Remember When |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa með laskalínu og áferð úr DROPS Nepal og DROPS Brushed Alpaca Silk (2 þræðir) eða 1 þræði DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með uppábroti í hálsmáli. Stærð S – XXXL.
DROPS 205-23 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 53 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 14. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 14. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við hvert prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð) þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni á ermum og í mynstri A.1 á framstykki og bakstykki. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 56-58-60-64-64-68 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Nepal + 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir) eða 1 þræði Wish. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9 cm (= uppábrot). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-2-0-0-4-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 60-60-60-64-68-72 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið nú mynstur þannig: Setjið 1 prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), 1 lykkja slétt, A.1 yfir næstu 19-19-19-21-23-25 lykkjur, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), sléttprjón yfir næstu 9 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), 1 lykkja slétt, A.1 yfir næstu 19-19-19-21-23-25 lykkjur, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), sléttprjón yfir næstu 9 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú eru 4 prjónamerki í stykki. Prjónamerkin fylgja með í stykkinu og sýna skiptinguna á milli fram- og bakstykkis og erma. Haldið svona áfram með mynstur hringinn, jafnframt í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 15-17-18-19-19-21 sinnum = 180-196-204-216-220-240 lykkjur. Haldið síðan áfram með sömu útaukningu á fram- og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri í hverri umferð með útaukningu) 1-1-1-2-3-3 sinnum til viðbótar. Nú hefur verið aukið út alls 16-18-19-21-22-24 sinnum á fram- og bakstykki og 15-17-18-19-19-21 sinnum á ermum = 184-200-208-224-232-252 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka mælist berustykki ca 21-24-25-28-29-32 cm frá prjónamerki og niður mitt að framan. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón þar til stykki mælist 22-24-26-28-30-32 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 53-57-59-65-69-75 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 39-43-45-47-47-51 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 5-5-7-7-9-9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 53-57-59-65-69-75 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 39-43-45-47-47-51 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 5-5-7-7-9-9 nýjar lykkjur undir ermi. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 116-124-132-144-156-168 lykkjur. Prjónið mynstur A.1 hringinn eins og áður. ATH: Mynstrið á að halda áfram eins og áður yfir lykkjur frá berustykki og mynstur gengur jafnt upp alla leiðina hringinn í umferð. Haldið svona áfram hringinn þar til stykkið mælist ca 20 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-24-26-26-30-34 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 136-148-158-170-186-202 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 39-43-45-47-47-51 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5-5-7-7-9-9 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 44-48-52-54-56-60 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 35-33-32-30-29-27 cm aukið út um 8-8-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir = 52-56-62-64-66-70 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 39-37-36-34-33-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið uppá stroffið efst í hálsmáli innan að stykkinu. Saumið stroffið niður þannig að það brotni uppá kantinn. Til að koma í veg fyrir að hálsmálið verði of stíft og snúi út þá er mikilvægt að saumurinn verði teygjanlegur og ekki stífur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Chiara wrote:
Anche così il punto di aumento davanti sinistro (guardando frontalmente) è diverso, più largo da quello di destra. Io faccio (dopo il marcapunti che separa spalla destra dal davanti): una maglia dritto gettato girando due volte, poi rovescio e dritto fino alla penultima maglia, poi gettato, lavoro ultima maglia a dritto, passo segnapunti e passo alla spalla sinistra. Facendo così, il primo aumento è più largo del secondo e risultano diversi. Sto facendo corretto? Grazie!
13.02.2021 - 21:16