DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 205-17
DROPS Design: Mynstur ne-319
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
750-850-900-1000-1100-1200 g litur 7120, ljós grágrænn

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 50 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 8,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 8. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi prjónuð ca 7. og 8. hver lykkja slétt saman.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Sjá mynsturteikningu fyrir þín stærð í A.2 og A.5.

ÚTAUKNING (á við um ermi):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Bakstykki er prjónað 8 cm lengra en framstykki og það er klauf í hliðum neðst niðri. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 104-112-120-128-144-152 lykkjur á hringprjón 4,5 með Nepal. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 20-24-24-28-32-36 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, A.1 (= 17 lykkjur), A.2 (sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð = 20-20-28-28-36-36 lykkjur), A.3 (= 17 lykkjur), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 20-24-24-28-32-36 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur þar til A.1, A.2 og A.3 hefur verið prjónað til loka (= 108-116-124-132-148-156 lykkjur). Skiptið yfir á hringprjón 5,5. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 3 lykkjur garðaprjón, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 22-26-26-30-34-38 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 4-5-5-5-7-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA, prjónið A.4 yfir lykkjur í A.1, A.5 yfir lykkjur í A.2 og A.6 yfir lykkjur í A.3, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 22-26-26-30-34-38 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 4-5-5-5-7-6 lykkjur yfir þessar lykkjur, prjónið 3 lykkjur garðaprjón = 100-106-114-122-134-144 lykkjur. Haldið áfram með garðaprjón í hvorri hlið, sléttprjón og A.4, A.5 og A.6. Þegar stykkið mælist 18 cm, fitjið upp 1 kantlykkju í hvorri hlið, nú er prjónaðar áfram einungis 2 umferðir garðaprjón í hvorri hlið, sléttprjón og A.4, A.5 og A.6 eins og áður = 102-108-116-124-136-146 lykkjur. Þegar stykkið mælist 52-53-54-55-56-57 cm, fækkið um 1 kantlykkju í hvorri hlið = 100-106-114-122-134-144 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm, setjið miðju 46-48-52-54-58-58 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ATH! Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstur, halda áfram í sléttu og brugðið eins og í A.4, A.5 og A.6 (án kaðla). Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju við háls = 26-28-30-33-37-42 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm, fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 104-112-120-128-144-152 lykkjur á hringprjón 4,5 með Nepal.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 3 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 20-24-24-28-32-36 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, A.1 (= 17 lykkjur), A.2 (sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð = 20-20-28-28-36-36 lykkjur), A.3 (= 17 lykkjur), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 20-24-24-28-32-36 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur þar til A.1, A.2 og A.3 hefur verið prjónað til loka (= 108-116-124-132-148-156 lykkjur). Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 3 lykkjur garðaprjón, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 22-26-26-30-34-38 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 4-5-5-5-7-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.4 yfir lykkjur í A.1, A.5 yfir lykkjur í A.2 og A.6 yfir lykkjur í A.3, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 22-26-26-30-34-38 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 4-5-5-5-7-6 lykkjur yfir þessar lykkjur, prjónið 3 lykkjur garðaprjón = 100-106-114-122-134-144 lykkjur. Haldið áfram með garðaprjón í hvorri hlið, sléttprjón og A.4, A.5 og A.6. Þegar stykkið mælist 10 cm, fitjið upp 1 kantlykkju í hvorri hlið, prjónið nú áfram einungis 2 umferðir garðaprjón í hvorri hlið, sléttprjón og A.4, A.5 og A.6 eins og áður = 102-108-116-124-136-146 lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm, fækkið um 1 kantlykkju í hvorri hlið = 100-106-114-122-134-144 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm setjið miðju 40-42-46-48-52-52 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ATH! Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstur, halda áfram í slétt og brugðið eins og í A.4, A.5 og A.6 (án kaðla). Fækkið nú lykkjum við háls: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 26-28-30-33-37-42 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, neðan frá og upp.
Fitjið upp 44-44-44-52-52-52 lykkjur á hringprjón 4,5 með Nepal.
Prjónið 1 umferð slétt, næsta umferð er prjónuð þannig: 1 lykkja slétt, prjónið stroff 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 lykkju slétt. Skiptið yfir á sokkaprjón/stuttan hringprjón 5,5 þegar stykkið mælist 6 cm og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 17-17-17-21-21-21 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 3-2-2-5-4-3 lykkjur jafnt yfir þessar. Prjónið A.7, prjónið síðustu 17-17-17-21-21-21 lykkjur slétt, JAFNFRAMT er fækkað um 3-2-2-5-4-3 lykkjur jafnt yfir þessar = 38-40-40-42-44-46 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Þegar stykkið mælist 7 cm byrjar útaukning mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING, aukið út 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í byrjun á umferð, aukið út með 4-4-3-3-2½-2½ cm millibili alls 10-10-12-13-13-14 sinnum = 58-60-64-68-70-74 lykkjur. Þegar stykkið mælist 47-46-45-44-42-40 cm, fækkið 2 lykkjur yfir kaðal í A.7 = 56-58-62-66-68-72 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-47-46-45-43-41 cm fellið af allar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt, en prjónið A.8 í stað A.7.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju, neðstu 10/18 cm = klauf. Bakstykkið er lengra en framstykkið. Saumið ermar í.

KRAGI:
Prjónið upp ca 100-120 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði mitt að framan og mitt að aftan) á stuttan hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælst 10 cm, aukið út allar 2 lykkjur slétt til 3 lykkjur slétt = 125-150 lykkjur. Haldið áfram þar til stroffið mælist 16 cm í öllum stærðum, fellið af með sléttar lykkju yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, það eiga ekki að myndast göt

symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir 2 lykkjurnar sem voru prjónaðar
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga að myndast göt
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Susann Tångeryd wrote:

I diagrammen står det att ärmmönstren A7 och A8 ska innehålla 19 maskor, men räknar man rutorna så är det 10 st! Alltså är diagrammen 10 maskor breda, inte 19. Kanske dags att korrigera mönstret?

30.12.2022 - 16:34

DROPS Design answered:

Hei Susann. Her er det bare en tastefeil (skal stå 10, ikke 19), dette skal vi få ordnet. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. mvh DROPS Design

05.01.2023 - 13:21

country flag Laura wrote:

Estoy haciendo la parte delantera y no entiendo la disminución de los puntos en las mangas: ¿Qué quiere decir rematar los puntos hacia el escote? ¿Tengo que rematarlos en el lado del escote o el de la manga? ¿Y como se haría 2 puntos 1 vez y un 1 punto dos veces? Gracias

27.11.2022 - 13:06

DROPS Design answered:

Hola Laura, para rematar puntos hacia el escote tienes que rematar puntos en el lado del escote, para dar forma al escote. Para rematar 2 puntos 1 vez, rematas 2 puntos (no juntos, sino que uno por uno) en la misma fila. Cuando rematas 1 punto 2 veces, tienes que cerrar 1 punto en la primera fila desde el escote y 1 punto en la siguiente fila desde el escote.

27.11.2022 - 13:21

country flag Barbara Krause wrote:

Danke jetzt habe ich verstanden! Danke

29.09.2022 - 10:28

country flag Barbara Krause wrote:

In a4/6 soll ich 1 Masche abheben die nächsten 2 Stricken die abgehobene rüberziehen? Da bleibt nur 1 Masche übrig es sollen 2 sein da dazwischen ein Umschlag nächste Reihe sollen das 3 Maschen sein sind es nicht nur 2

28.09.2022 - 19:44

DROPS Design answered:

Liebe Frau Krause, ja genau aber so sind noch 2 Maschen übrig: 1 Masche abheben, die 2 nächsten Maschen stricken (nicht zusammen, aber separat stricken), dann die abgehobene Masche über die 2 gestrickten Maschen überziehen; bei der nächsten Runde/Reihe machen Sie 1 Umschlag, so sind es wieder 3 Maschen. Dieses Video zeigt, wie man so einen Zopf strickt. Viel Spaß beim stricken!

29.09.2022 - 08:31

country flag Andrée wrote:

Merci pour cette réponse rapide! Bonne journée!

13.01.2022 - 12:44

country flag Andrée wrote:

Bonjour, Je souhaite réaliser le modèle DROPS 205-17 avec le fil DROPS LOVES YOU8 en remplacement du fil NEPAL pour une taille L. NEPAL demande 900 gr, soit 18 pelotes de 75 mm, soit 1350 mètres. Suis-je dans le bon en commandant 16 pelotes de LOVES YOU8? En essayant le convertisseur, LOVES YOU8 n'apparaît pas. Pourriez-vous m'éclairer? Merci par avance.

12.01.2022 - 14:41

DROPS Design answered:

Bonjour Andrée, DROPS Loves You 8 a été ajoutée dans le convertisseur, ainsi vous pouvez l'utiliser tranquillement pour calculer la nouvelle quantité, merci pour votre retour. Bon tricot!

13.01.2022 - 10:52

country flag Amanda wrote:

The sleeves include instructions for the rib but they are not included in the instructions for the Front or Back sections. The picture shows the Front beginning with a rib for a few centimetres. Am I missing something? Thanks

10.04.2021 - 02:52

DROPS Design answered:

Dear Amanda, the second sentence says "then work as follows from right side", and from the third sentence (Work 3 stitches in GARTER STITCH - see explanation above, * knit 2, purl 2 *, repeat from *-* over the next 20-24-24-28-32-36 stitches, knit 2, A.1 (= 17 stitches), A.2 (see diagram for your size = 20-20-28-28-36-36 stitches), A.3 (= 17 stitches), * knit 2, purl 2 *, repeat from *-* over the next 20-24-24-28-32-36 stitches, knit 2, 3 stitches in garter stitch.) it tells you how to set up the rows for a ribbed pattern that could be continued kind of seamlessly into the cabled pattern. Happy Knitting.

10.04.2021 - 05:18

country flag RJ wrote:

Ik ben net begonnen met het rugpand. Wat doe ik op de verkeerde kant van het werk? het patroon volgen? of 'gewoon' alle steken net anders om breiden als aan de voorkant? Ik kan dat niet helemaal terug vinden in het patroon. iemand een tip?

29.03.2020 - 16:47

DROPS Design answered:

Dag RJ,

Op de verkeerde kant brei je de steken zoals ze zich voordoen, dus waar je aan de goede kant recht breid, brei je aan de verkeerde kant averecht en vice versa. Dit staat ook aangegeven bij de telpatronen. (In de telpatronen staan alle naalden aangegeven, dus zowel aan de goede als aan de verkeerde kant.)

29.04.2020 - 10:14

country flag Geeske Plaisier wrote:

Bedankt voor uw reactie, nu kan ik met een gerust hart verder breien:-) Met vriendelijke groet, Geeske

26.03.2020 - 08:37

country flag Geeske Plaisier wrote:

Goedendag, Ik brei maat L, met Drops Nepal. De boord is 72 cm breed i.p.v. 58 cm. Mijn stekenproeflapje klopte precies met de beschrijving. Het lijken me zoveel steken voor zulke dikke wol. Moet het zo'n wijde trui worden? Nog een vraag: Is er een vertaalfunctie op de site, zodat ik de vragen van andere breisters kan lezen? Alvast bedankt voor uw reactie. Vriendelijke groet, Geeske Alvast dank

24.03.2020 - 07:56

DROPS Design answered:

Dag Geeske,

In dit patroon is de boord redelijk wijd, dus niet aansluitend. Dat zal bij gaan trekken wanneer je met de kabel begint, omdat het breiwerk daardoor samen gaat trekken. Als de stekenverhouding klopt kun je de stekenaantallen gewoon aanhouden.

We hebben geen vertaalfunctie op de site, maar je kan google translate hiervoor gebruiken.

25.03.2020 - 10:53