DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Holiday in Rome

Prjónuð vafningspeysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S-XXXL.

DROPS 199-48
DROPS Design: Mynstur z-850
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-200-200-250-250 g litur 7120, ljós grágrænn
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-75-100-100-100-125 g litur 06, blá þoka

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: Lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (á við um handveg):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (á við um hálsmál að framan):
Aukið út fyrir hálsmáli innan við 17 lykkjur í A.1/A.2. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VAFNINGSPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkin og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Að lokum eru lykkjur prjónaðar upp fyrir snúru.
Ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á hringprjón/sokkaprjóna ofan frá og niður.

HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 22-22-22-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5 og haldið áfram í garðaprjón þar til stykkið mælist ca 2 cm, í síðustu umferð frá röngu eru fitjaðar upp 16-18-18-20-22-24 nýjar lykkjur á prjóninn = 38-40-40-42-44-46 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl að aftan.

VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 22-22-22-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5 og haldið áfram í garðaprjón þar til stykkið mælist ca 2 cm, stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá röngu.
Setjið nú stykkin saman og prjónið bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Setjið inn hægri öxl og vinstri öxl á sama hringprjón 5 = 60-62-62-64-66-68 lykkjur. Byrjið frá réttu og prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg.
Þegar stykkið mælist 17-14-8-11-9-7 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í 4.-4.-2.-2.-2. hverri umferð alls 2-4-8-11-15-19 sinnum í hvorri hlið. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm. Fitjið nú upp 3 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok 2 næstu umferða = 70-76-84-92-102-112 lykkjur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón með 6 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm frá handveg, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-1 (= 2 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8 cm og 12 cm = 64-70-78-86-96-106 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm frá handveg, jafnframt eru lykkjurnar jafnaður út til 64-70-79-85-97-106 lykkjur í síðustu umferð frá röngu (bakstykki mælist nú ca 35-37-39-41-43-45 cm frá öxl). Skiptið yfir í hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Bakstykki mælist ca 38-40-42-44-46-48 cm frá öxl.

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 22-22-22-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg, 2-2-2-2-2-2-2 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 17 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út fyrir hálsmáli innan við A.1 við miðju að framan – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 8-8-9-11-12-13 sinnum og síðan í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 17-18-17-16-16-16 sinnum. Jafnframt þegar stykkið mælist 17-14-8-11-9-7 cm aukið út um 1 lykkju í hlið fyrir handveg – haldið áfram að auka út alveg eins og á bakstykki.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm og fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok næstu umferða frá röngu. Haldið áfram eins og áður með A.1 við miðju að framan, útaukningu fyrir hálsmáli og sléttprjón, en yfir ystu 6 lykkjurnar að hlið eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón (þ.e.a.s. þetta er gert í 4 næstu umferðum). Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið og A.1 við miðju að framan (útaukning heldur áfram eins og áður). Þegar stykkið mælist 4 cm frá handveg, fækkið um 1 lykkju í hlið – sjá ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 og 12-13-14-15-16-17 cm. Eftir allar útaukningar og úrtökur eru 49-52-56-60-65-70 lykkjur í umferð.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm frá handveg og jafnframt er lykkjufjöldinn jafnaður út til 49-52-58-61-64-70 lykkjur í síðustu umferð frá röngu (35-37-39-41-43-45 cm frá öxl). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (að miðju að framan), prjónið 1 lykkju slétt og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – ATH: Stroffið á að passa fallega yfir A.1. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Framstykkið mælist ca 38-40-42-44-46-48 cm frá öxl.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 22-22-22-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið A.2 (= 17 lykkjur), prjónið 2 lykkjur sléttprjón og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út fyrir hálsmáli innan við A.2 við miðju að framan – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 8-8-9-11-12-13 sinnum og síðan í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 17-18-17-16-16-16 sinnum. Jafnframt þegar stykkið mælist 17-14-8-11-9-7 cm aukið út um 1 lykkju í hlið fyrir handveg – haldið áfram að auka út alveg eins og á bakstykki og hægra framstykki.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm og fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok næstu umferða frá réttu. Haldið áfram eins og áður með A.2 við miðju að framan, útaukningu fyrir hálsmáli og sléttprjón, en yfir ystu 6 lykkjurnar að hlið eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón (þ.e.a.s. þetta er gert í 4 næstu umferðum). Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið og A.2 við miðju að framan (útaukning heldur áfram eins og áður). Þegar stykkið mælist 4 cm frá handveg, fækkið um 1 lykkju í hlið – sjá ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 og 12-13-14-15-16-17 cm. Eftir allar útaukningar og úrtökur eru 49-52-56-60-65-70 lykkjur í umferð.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm frá handveg og jafnframt er lykkjufjöldinn jafnaður út til 49-52-58-61-64-70 lykkjur í síðustu umferð frá röngu (35-37-39-41-43-45 cm frá öxl). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjón mitt að framan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – ATH: Stroffið á að passa fallega yfir A.2. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Framstykkið mælist ca 38-40-42-44-46-48 cm frá öxl.

ERMI:
Fitjið upp 22-24-26-28-24-26 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk. Prjónið sléttprjón fram og til baka fyrir ermakúpu og fitjið jafnframt upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið, 1 lykkja 0-1-2-3-3-5 sinnum í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið og að lokum 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið = 58-62-66-70-74-80 lykkjur. Tengið stykkið saman og prjónið síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Setjið 1 prjónamerki þegar sem stykkið var sett saman = mitt undir ermi. Prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem stykkið var sett saman, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 4-3-2-1½-1-1 cm millibili alls 3-4-5-6-7-9 sinnum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-18-18-17-16-14 cm frá þar sem stykkið var sett saman. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm, jafnframt er lykkjufjöldinn jafnaður út til 54-54-57-57-60-63 í fyrstu umferð. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 29-29-30-30-31-31 cm frá uppfitjunarkanti og niður.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju, en skiljið eftir smá op í hvorri hlið til að þræða snúruna í gegn – opin eru einnig staðsett yfir stroff í hvorri hlið og 2½–3 cm upp að handveg.
Leggið ermarnar inn undir kant með garðaprjóni meðfram handveg og saumið fallega niður frá réttu (kanturinn á ekki að vera laus þegar saumað er og saumað er í ystu lykkju í garðaprjóni frá réttu, þannig að kantur í garðaprjóni liggi fallega ofan á ermi).

SNÚRA:
Prjónið upp á prjón 4 með 1 þræði af hvorri tegund: ca 6-7 lykkjur meðfram kanti með stroffi að framan. Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til snúran mælist ca 75-100 cm, fellið af. Prjónið alveg eins snúru á hinu framstykkinu.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Holiday in Rome

Tianzi Cai, United States

Holiday in Rome

@_veerle_

Holiday in Rome

Zivile, Estonia

Holiday in Rome

Christina Kjær, Denmark

Holiday in Rome

Anke, Germany

Holiday in Rome

Therese Lundberg, Sweden

Holiday in Rome

Kimberly, Norway

Holiday in Rome

Kimberly, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-48

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Riviere wrote:

Merci je viens de comprendre. J ai utilisé la laine air et ça donne un résultat très joli !

13.11.2023 - 16:18

country flag Riviere wrote:

Ma question est : doit on relever les 7 mailles des liens dans l emplacement des 3 cm non cousu des côtés soit au dessus des côtes Merci

13.11.2023 - 16:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Riviere, non, cet espace est prévu pour pouvoir y passer les liens, vous relevez les mailles des lien le long du bas des côtes, en bas des devants, autrement dit à droite du devant droit, vu sur l'endroit et à gauche du devant gauche, vu sur l'endroit, cf schéma où ces liens (au moins celui du devant droit) a été dessiné. Bon tricot!

14.11.2023 - 10:08

country flag Riviere wrote:

Bonjour, j en suis aux liens. Dans l assemblage on laisse une ouverture de 3cm au dessus des cotes. Et au liteau des explications des lien, on relève 7 mailles le long des côtes. L espace dans les côtés ne doivent ils pas êtres au niveau des liens ? Merci

13.11.2023 - 13:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Riviere, on relève les mailles des liens le long des rangs des côtes, le long de chacun des devants pour tricoter les liens, et, lors de l'assemblage des côtés, laissez une ouverture d'environ 2,5 à 3 cm pour y passer les liens, vous pouvez attendre d'avoir terminé les liens pour faire les coutures, ce sera plus facile de visualiser où prévoir cette ouverture. Bon tricot!

13.11.2023 - 16:12

country flag Alyssa wrote:

Is the indicated knitting gauge (of 17 stitches in width and 22 rows vertically) the knitting gauge for the 4 mm or 5 mm needles, as both are used in the pattern? Thank you!

17.09.2023 - 12:37

DROPS Design answered:

Dear Alyssa, you use the 5mm for the stocking stitch in the pattern. Since the gauge is worked in stocking stitch then you should use the 5mm needles. Happy knitting!

17.09.2023 - 21:29

country flag Micaela wrote:

Hei, en ymmärrä mitä tämä tarkoittaa: "Samanaikaisesti kun työn pituus on 17-14-8-11-9-7 cm, lisää sivuun kädentietä varten 1 silmukka. Toista kädentien lisäykset kuten takana. " Eli mitä toistetaan ja miten? Missä takana? Kiitos!

18.05.2023 - 13:31

DROPS Design answered:

Hei, kädentien lisäykset toistetaan kuten takakappaleessa. Eli lisää kädentien reunaan 1 silmukka ja toista lisäys joka 4.-4.-4.-2.-2.-2. kerros yhteensä 2-4-8-11-15-19 kertaa.

18.05.2023 - 16:21

country flag Kat wrote:

Hallo! Ich stricke gerade das Modell und bin ganz begeistert. Auf den Bildern der anderen Strickerinnen hat die Jacke lange Ärmel. Wie geht das? Gibt es vielleicht Tipps dazu/eine Vorlage oder ein anderes Modell, von dem ich die Ärmel übernehmen könnte? Vielen Dank!

12.09.2022 - 11:12

DROPS Design answered:

Liebe Kat, Sie können sich von ähnlichn Modellen mit langen Ärmeln und die gleiche Maschenprobe inspirieren. Viel Spaß beim stricken!

12.09.2022 - 12:10

country flag Laplus wrote:

Bonjour, pourquoi vos modèles sont-ils tjrs aussi compliqués à comprendre même pour une tricoteuse avertie? ! C'est décourageant malgré les beaux modèles proposés....je vais tenter à ma mode et si pas j'abandonnerai , le tricot doit resté un plaisir et pas une casse-tête... Dommage Belle journée!

04.06.2022 - 09:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Laplus, les modèles sont écrits par des stylistes scandinaves qui ont probablement une façon différente d'écrire que celle à laquelle vous êtes habituée, mais si vous suivez bien les indications pas à pas, vous y arriverez, et au pire, posez votre question ici ou bien demandez conseil à votre magasin, on vous aidera, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

07.06.2022 - 10:37

country flag Freya wrote:

Hi! I want to ask about the ribbon tie. Is it right that the ribbon in on the each side of the front piece?

07.04.2022 - 06:37

DROPS Design answered:

Hi Freya, Yes, the ribbon tie comes from the sides of the front pieces and around the waist to the front. Happy knitting!

07.04.2022 - 06:55

country flag Anna wrote:

"Increase inside 3 edge stitches in garter stitch. Increase 1 stitch by making 1 yarn over. On next row (wrong side) purl yarn over twisted to avoid holes. Then work the increased stitches in stocking stitch." Can you help me explain this part?

06.04.2022 - 13:44

DROPS Design answered:

Dear Anna, when working the increases for the armholes, increase at the beginning of the row from RS as follows: work 3 sts in garter stitch, make 1 yarn over / increase at the end of the row from WS as follows: work until 3 sts remain, make 1 yarn over, work 3 sts in garter stitch. On the next row from wrong side, purl the yarn over twisted (the new stitches are worked in stocking stitch, not in garter stitch). Happy knitting!

06.04.2022 - 16:31

country flag Chris wrote:

Jeg behøver lidt hjælp med farvevalg, da det er svært at vurdere farverne på skærmen (og jeg har ikke mulighed for at besøge en fysisk butik). Hvilken farve Kid-Silk vil I anbefale til Alpaca - Skovgrøn mix 7815? Og hvilken farve Kid-Silk vil gå godt med Alpaca - Havbrise mix 7323?

06.06.2021 - 10:02

DROPS Design answered:

Hei Chris. Fargevalg er ganske personlig og vanskelig å gi en 100% perfekt anbefaling. Ønsker du en mix som gir et lysere resultat eller mørk? Til f.eks DROPS Alpaca skog grønn, passer både DROPS Kid-Silk nordsjø nr. 37, mørkgrønn nr. 19 og for et lysere forslag salvie grønn nr. 34. Til DROPS Alpaca Havbrise, som både har litt grønt og blått i seg, kommer det an på om du ønsker en blåtone eller grønn tone. Sjekk ut da f.eks DROPS Kid-Silk salvie nr. 34, eplegrønn nr. 18, lys jeansblå nr. 08 eller blå tåke nr. 06. mvh DROPS design

07.06.2021 - 10:18