DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Glassur

Prjónuð peysa með röndum og laskalínu úr 3 þráðum DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 199-44
DROPS Design: Mynstur ML-034
Garnflokkur D + D + D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
100-100-100-100-100-100 g litur 14, vanillugulur
150-150-150-150-200-200 g litur 01, natur
150-200-200-200-250-250 g litur 06, púðurbleikur

PRJÓNFESTA:
7 lykkjur á breidd og 8 umferðir á hæð með sléttprjóni og 3 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 15: lengd 60 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 12 fyrir stroff í hálsmáli.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 12: lengd 60 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

RENDUR:
Prjónaðar eru 3 rendur í öllu stykkinu, öll mál eru tekin eftir stroff í hálsmáli.
RÖND 1: Prjónið með litnum vanillugulur í 15-16-16-17-18-18 cm.
RÖND 2: Prjónið með litnum natur, þessi rönd hefur mismunandi lengdir á fram- og bakstykki og ermi. Röndin mælist 15-16-16-17-18-18 cm á fram- og bakstykki og 24-24-24-24-23-23 cm á ermum.
RÖND 3: Prjónið með litnum púðurbleikur til loka bæði á ermum og fram- og bakstykki.

ÚRTAKA-1:
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, (prjónamerki situr hér), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.

ÚRTAKA-2 (á við um ermar):
ATH: Til að úrtakan komi til skiptis hægra og vinstra megin á stykki er úrtakan gerð þannig:
Í stærð S, M og L er lykkjum fækkað til skiptis í byrjun og í lok umferðar sem úrtakan er gerð.
Í stærð XL, XXL og XXXL er lykkjum fækkað í byrjun í hverri umferð sem úrtakan er gerð (til skiptis frá réttu og frá röngu).
Fækkið lykkjum frá réttu þannig: prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum frá röngu þannig: prjónið 2 lykkjur brugðið saman.

GALDRALYKKJA:
Ef hringprjóninn sem prjónað er með er of langur og sokkaprjónar eru ekki notaðir er hægt að nota hringprjóninn þannig:
Hringprjóninn á að vera langur og hafa sveigjanlega snúru. Færið lykkjurnar að miðju á snúrunni. Deilið lykkjunum í tvennt og þræðið snúruna út á milli lykkja. Færið lykkjurnar að prjónaendanum að hvorri hlið, passið uppá að lykkjurnar verði ekki snúnar. Garn endinn sem prjóna á með, er á aftari prjóni og þú byrjar á að prjóna með fremri prjóni. Dragið út aftari prjóninn til að prjóna lykkjurnar á þeim fremri. Þegar lykkjurnar á fremri prjóni hafa verið prjónaðar, snúið við og færið lykkjurnar til baka á auða prjóninn og prjónið hina hliðina alveg eins. Haldið svona áfram hringinn, passið uppá að draga alltaf út prjóninn á þeirri hlið þar sem þú hefur þráðinn.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri í umferð).
Aukið út þannig, byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki: sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá einu sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Allt stykkið er prjónað í 3 þráðum og prjónaðar eru breiðar rendur. Prjónið í hring á sokkaprjóna í byrjun, síðan á hringprjón með GALDRALYKKJA þar til nægilega margar lykkjur eru á prjóni til að halda áfram að prjóna með hefðbundnum hætti með hringprjón 60 eða 80 cm. Prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 40-40-44-44-48-52 lykkjur á sokkaprjóna 12 með 3 þráðum í litnum vanillugulur. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 7 cm. Mælið síðan stykkið héðan og prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar þannig: Fyrsta prjónamerkið í byrjun á umferð, annað prjónamerki eftir 14-14-16-16-18-20 lykkjur (= bakstykki), þriðja prjónamerki eftir 6 nýjar lykkjur (= ermi), fjórða prjónamerki eftir 14-14-16-16-18-20 nýjar lykkjur (= framstykki), nú eru eftir 6 lykkjur fram að fyrsta prjónamerki (= ermi). Prjónið 1 umferð slétt, þar sem fækkað er um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1 = 32-32-36-36-40-44 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 15, ATH: Í vöruúrvalinu okkar höfum við ekki styttri hringprjón en 60 cm í prjónastærð 15. Nú hefur lykkjum verið fækkað þannig að ummálið á stykkinu er minna en 60 cm í stærð S-XXL. Prjónið því áfram með GALDRALYKKJA – sjá útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið nægilega margar lykkjur til að nota hringprjón 60 eða 80 cm.
Prjónið sléttprjón og í 2. umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð 8-10-10-11-12-14 sinnum = 96-112-116-124-136-156 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Laska útaukningin í stærð M, L, XXL og XXXL er nú lokið. Í stærð S og XL er prjónuð 1 umferð til viðbótar þar sem aukið er út um 1 lykkju á fram- og bakstykki alveg eins (ekki er aukið út á ermum) = 4 lykkjur fleiri.
Nú eru 100-112-116-128-136-156 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 21-25-25-29-30-35 cm frá eftir stroff og niður. Haldið áfram án þess að auka út lykkjur í 3-0-2-1-0-0 umferðir til viðbótar. Stykkið mælist ca 25-25-28-30-30-35 cm frá eftir stroffi og niður.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 30-32-34-38-40-46 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 20-24-24-26-28-32 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 4-4-4-4-6-6 lykkjur undir ermi, prjónið 30-32-34-38-40-46 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 20-24-24-26-28-32 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 4-4-4-4-6-6 lykkjur undir ermi. Setjið prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 68-72-76-84-92-104 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjón og rendur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp (= 2-2-2-2-3-3 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og 34-36-38-42-46-52 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki og framstykki.
Aukið nú út í hliðum þannig – sjá ÚTAUKNING:
Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju á undan hvoru prjónamerki.
Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju á eftir hvoru prjónamerki.
Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 lykkju á undan hvoru prjónamerki.
Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 lykkju á eftir hvoru prjónamerki.
Nú eru 76-80-84-92-100-112 lykkjur í umferð.
Prjónið nú áfram í mismunandi stærðum þannig:

Stærð S, L, XL og XXL:
Haldið síðan áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 17-18-18-20 cm.

Stærð M og XXXL:
Haldið síðan áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 19-17 cm og aukið jafnframt út þannig:
Þegar stykkið mælist 14 cm aukið út um 1 lykkju á undan hvoru prjónamerki.
Þegar stykkið mælist 16 cm aukið út um 1 lykkju á eftir hvoru prjónamerki.

ALLAR STÆRÐIR.
Nú eru 76-84-84-92-100-116 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 17-19-18-18-20-17 cm setjið 38-42-42-46-50-58 lykkjur á bakstykki á þráð. Prjónið síðan stroff fram og til baka yfir 38-42-42-46-50-58 lykkjur á framstykki þannig: Skiptið yfir á hringprjón 12 og prjónið frá réttu: 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 lykkjur garðaprjón.
Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 6 cm og stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Setjið lykkjur af bandi (bakstykki) á hringprjón 12, prjónið stroff fram og til baka alveg eins og á framstykki þar til stroffið mælist 12 cm.
Klaufin á framstykki er 6 cm löng, klaufin á bakstykki er 12 cm löng. Alls mælist stykkið ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður á bakstykki.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón og saumaðar saman í lokin. Setjið til baka 20-24-24-26-28-32 lykkjur af þræði á hringprjón 15 og fitjið upp 2-2-2-2-3-3 nýjar lykkjur í hvorri hlið = 24-28-28-30-34-38 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 4-4-2-4-4-2 cm er fækkað um 1 lykkju í hægri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum til skiptis vinstra og hægra megin á stykki í annarri hverri umferð – annarri hverri umferð – annarri hverri umferð – hverri umferð – hverri umferð – hverri umferð 8-12-12-14-14-18 sinnum (= 4-6-6-7-7-9 sinnum í hvorir hlið) = 16-16-16-16-20-20 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-34-31-30-29-24 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu), skiptið yfir á hringprjón 12 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saum undir ermum í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-44

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Bärbel Faustmann wrote:

Ich würde gern ein anderes Garn verwenden. Welche Alternativen gibt es?

21.07.2022 - 10:19

DROPS Design answered:

Liebe Bärbel, Sie können mit 2 Fäden Brushed Alpaca Silk oder 4 Fäden DROPS Kid-Silk arbeiten.

31.07.2022 - 23:31

country flag Jannie Engsig wrote:

Hejsa. Jeg vil rigtig gerne strikke denne bluse DROPS Design: Model ML-034, men DROPS MELODY i de farver som den skal strikkes i er udsolgt alle steder. Kan jeg strikke i andet garn? Synes ikke jeg kan finde nogle garn alternativer i garn gruppe D. Tak på forhånd. Mvh Jannie.

22.10.2020 - 09:47

DROPS Design answered:

Hej Jannie. Om du använder vår omregner så får du upp alternativ som du kan sticka tröjan i. Se bara till att du får den stickfasthet som uppges påopskriften. Mvh DROPS Design

22.10.2020 - 11:33

country flag Torgunn Nikkerud wrote:

Hei. Lurer på når det står "strikket genser i 3 tråder" betyr det at man strikker med 3 nøster - altså 3 dobbelt garn? Og når man da har kun to nøster av en farge - har dere et tips til hvordan man strikker med 3 tråder? Må man begynne i begge ender på det ene nøstet? Mvh Torgunn

28.04.2020 - 11:25

DROPS Design answered:

Hej Torgunn, ja det stemmer, da strikker du med 3 tråde, hvor du af det ene nøgle tager både udefra og inde i nøglet. God fornøjelse!

28.04.2020 - 14:06

country flag Henriette wrote:

Hej Har I et garnforslag, hvor der kun skal bruges én tråd?

17.03.2020 - 15:18

DROPS Design answered:

Hej Henriette, det tykkeste garn vi har er DROPS Polaris, hvis du sørger for at strikke det med 7 masker på 10 cm ifølge opskriften, så kan det bruges. God fornøjelse!

18.03.2020 - 15:17

country flag Marielle wrote:

Hei! Kjempefin genser! Kan jeg bruke et garn uten ull? Evt hvilket?

19.04.2019 - 16:56

DROPS Design answered:

Hei Marielle. Til akkurat denne modellen som strikkes med såpass tykt garn (3 tråder Melody) har vi egentlig ingen gode alternativer uten ull. Alle våre bomullsgarn er en del tynnere og du vil da måtte bruke veldig mange tråder for å oppnå den samme strikkefastheten. I tillegg vil den løse, luftige strukturen i plagget bli borte om du bruker et bomullsgarn, dessverre. Om du filtrerer søket ditt etter ett av våre bomullsgarn (Paris, Muskat, Bomull-Lin etc) vil du få opp masse fine oppskrifter. God fornøyelse

25.04.2019 - 13:52

country flag Bente wrote:

Veldig søt gleder meg til oppskrift

18.02.2019 - 22:03

country flag Anita wrote:

Venter på oppskrift

07.02.2019 - 11:42

country flag Sigi wrote:

Ich warte sehnsüchtig auf die Anleitung :-)

04.02.2019 - 13:10

country flag Nina wrote:

Vilken fin,fräsch tröja till sommaren!!

16.01.2019 - 16:25