DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Robin Song Jacket

Prjónuð peysa með v-hálsmáli úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 202-26
DROPS Design: Mynstur ai-196
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350-350-400-450 g litur 13, appelsínugulur

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 19 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6 fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5 fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 4 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 99 lykkjur) mínus kantlykkjur (2 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda lykkja sem eftir er með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 19) = 5,1. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál á bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið um 1 lykkju á eftir 2 lykkjur garðaprjón frá hálsmáli þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
Fækkið um 1 lykkju á undan 2 lykkjur garðaprjón við hálsmál: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.7 og undir ermi, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkjur slétt, A.7, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

HNAPPAGAT (neðan frá og upp):
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 5, 14, 23 og 32 cm.
M: 5, 14, 23 og 32 cm.
L: 6, 15, 24 og 33 cm.
XL: 5, 15, 25 og 35 cm.
XXL: 6, 16, 26 og 36 cm.
XXXL: 7, 17, 27 og 37 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum og saumað saman í lokin. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 99-105-111-123-135-144 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 19-21-21-25-27-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1= 80-84-90-98-108-116 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í byrjun á næstu 2 umferðum eru felldar af 1-1-1-3-4-4 lykkjur fyrir handveg = 78-82-88-92-100-108 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, prjónið garðaprjón yfir miðju 18-18-20-20-22-22 lykkjur. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju lykkjur, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 32-34-36-38-41-45 lykkjur og setjið þær á þráð fyrir hægri öxl, fellið af næstu 14-14-16-16-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið þær 32-34-36-38-41-45 lykkjur sem eftir eru. Prjónið síðan axlir til loka hvora fyrir sig. Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón við handveg, 2 lykkjur garðaprjón við háls og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Í næstu umferð frá hálsmáli er fækkað um 1 lykkju innan við 2 lykkjur garðaprjón – sjá ÚRTAKA-2 = 31-33-35-37-40-44 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm.
Fellið af. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 54-57-60-66-72-75 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan) á hringprjón 5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 4 kantlykkjur garðaprjón, (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 16 lykkjur (fyrstu 4 lykkjur í garðaprjóni = kantur að framan), sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, jafnframt er fækkað um 10-11-11-13-14-13 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja garðaprjón = 44-46-49-53-58-62 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka og endurtakið A.1 á hæðina. Munið eftir HNAPPAGAT! Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, prjónið A.2 yfir A.1. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, hefur verið fækkað um 6 lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram með mynstur og úrtöku alveg eins þar til fækkað hefur um alls 12-12-13-13-14-14 lykkjur fyrir hálsmáli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 1-1-1-3-4-4 lykkjur fyrir handveg í næstu umferð frá réttu. Þegar öll úrtaka /affelling hefur verið gerð fyrir hálsmáli og handveg eru 31-33-35-37-40-44 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram með A.3 yfir ystu 7 lykkjur við háls, sléttprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni við handveg eins og áður þar til handvegur mælist 15-16-17-18-19-20 cm – stillið af eftir bakstykki. Fellið af. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 54-57-60-66-72-75 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 4 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni) á hringprjón 5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, 1 lykkja slétt, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, sléttprjón þar til eftir eru 16 lykkjur jafnframt því sem fækkað er um 10-11-11-13-14-13 lykkjur jafnt yfir, A.4 yfir síðustu 16 lykkjur (síðustu 4 lykkjur í garðaprjóni = kantur að framan) = 44-46-49-53-58-62 lykkjur.
Haldið svona áfram fram og til baka og endurtakið A.4 á hæðina. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, prjónið A.5 yfir A.4. Þegar allt A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, hefur verið fækkað um 6 lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram með mynstur og úrtöku alveg eins þar til fækkað hefur verið um alls 12-12-13-13-14-14 lykkjur fyrir hálsmáli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 1-1-1-3-4-4 lykkjur fyrir handveg í næstu umferð frá réttu. Þegar öll úrtaka / affelling hefur verið gerð fyrir handveg eru 31-33-35-37-40-44 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram með 1 kantlykkju garðaprjón, sléttprjón og A.6 yfir ystu 7 lykkjur við háls þar til handvegurinn mælist 15-16-17-18-19-20 cm – stillið af eftir hægra framstykki og bakstykki. Fellið af. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 42-42-45-48-48-51 lykkjur á sokkaprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 6. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið A.7 yfir næstu 2 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur út umferðina og fækkið jafnframt um 9-8-8-10-9-11 lykkjur jafnt yfir = 33-34-37-38-39-40 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.7 mitt undir ermi, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8-9-9-9-8-8 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið út eftir mismunandi stærðum þannig:
Stærð S: Aukið út til skiptis í 6. og 7. hverjum cm alls 6 sinnum.
Stærð M: Aukið út í 5. hverjum cm alls 7 sinnum.
Stærð L: Aukið út í 5. hverjum cm alls 7 sinnum.
Stærð XL: Aukið út í 4. hverjum cm alls 8 sinnum.
Stærð XXL: Aukið út til skiptis í 3. og 4. hverjum cm alls 9 sinnum.
Stærð XXXL: Aukið út í 3. hverjum cm alls 10 sinnum.
Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar eru 45-48-51-54-57-60 lykkjur í umferð. Prjónið nú eftir mismunandi stærðum þannig:
Stærð S, M og L.
Haldið áfram þar til stykkið mælist 47-47-46 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið af. Prjónið hina ermina alveg eins.
Stærð XL, XXL og XXXL:
Haldið áfram þar til stykkið mælist 44-41-39 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Endið umferð mitt í mynsturteikningu A.7 (= mitt undir ermi). Prjónið nú áfram fram og til baka í sléttprjóni yfir allar lykkjur, þannig að mögulegt er að sauma ermi í handveg. Þegar prjónað hefur verið fram og til baka í sléttprjóni í 2-3-3 cm, mælist ermin alls 46-44-42 cm. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið ermi í við fram- og bakstykki. Saumið hliðarsaum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Endurtakið í hinni hliðinni. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.05.2019
Leiðrétting - ERMI: Fitjið upp 42-42-45-48-48-51 lykkjur á sokkaprjón nr 5...fellið jafnframt af 9-8-8-10-9-11 lykkjur jafnt yfir = 33-34-37-38-39-40 lykkjur...Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 45-48-51-54-57-60 lykkjur í umferð
Yfirfarið á vefsvæði: 14.01.2021
VINSTRA FRAMSTYKKI:.. Prjónið nú stroff þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, 1 lykkja slétt og 4 kantlykkjur í garðaprjóni...

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að ekki myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Joelle Langlois wrote:

Bonjour, je voudrais tricoter ce gilet avec un fil plus petit et des aiguilles n°4. Est ce possible ? Si oui pourriez vous me conseiller quel fil je pourrais prendre. Cordialement.

26.11.2023 - 08:14

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Langlois, retrouvez tous nos gilets et vestes tricotés avec une tension de 22-20 mailles (adaptez la taille des aiguilles si besoin), ici, n'hésitez pas à ajouter des filtres pour affiner votre recherche. Bon tricot!

27.11.2023 - 09:28

country flag Fabienne Hénault wrote:

Bonjour, Pouvez-vous me dire combien de pelotes sont nécessaires pour une taille L. Je vous remercie, cordialement

08.02.2023 - 17:34

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hénault, vous trouverez les quantités nécessaires dans l'en-tête, avec les tailles, l'échantillon et l'aiguille, autrement dit, en taille L, il vous faudra 350 g DROPS Air / 50 g la pelote = 7 pelotes DROPS Air. Bon tricot!

09.02.2023 - 09:40

country flag Mieke Nouwen wrote:

Hallo, zou ik dit model ook in de drops cotton merino kunnen maken? ik ben een absolute beginner , alleen sjaals gemaakt tot nu, en weet nog niet hoe meerderen en verminderen in elkaar zit. is dit model dan een aanrader? of beter een ander Model? Liefst wel een model met vhals. groetjes! Mieke

01.06.2021 - 12:14

DROPS Design answered:

Dag Mieke,

Je kunt het beste garen uit de zelfde categorie (dikte) gebruiken, dus 2 draden Baby Merino (a) of 1 draad Big Merino, zodat je dezelfde stekenverhouding kunt krijgen. Op onze site staan veel video's om je te helpen, maar mocht je twijfelen, dan zou je ook een patroon uit onze basispatronen kunnen kiezen, dit zijn over het algemeen ook makkelijke patronen.

02.06.2021 - 11:46

country flag Ria V Doremalen wrote:

Boord v mouw, kan dit met rondbreinaald, er moeten 45 steken opgezet worden met ndn 6 uitleg is niet duidelijk bij drops vest

23.05.2021 - 19:54

DROPS Design answered:

Dag Ria,

De mouw wordt in de rondte gebreid met rondbreinaalden zonder knop. Je begint dus gelijk in de rondte te breien. Je kunt dus ook opzetten op de rondbreinaald.

25.05.2021 - 19:30

country flag Marion V Doremalen wrote:

Waarom moet ik 11 st minderen na de boord bij het rugpand??

18.04.2021 - 13:43

DROPS Design answered:

Dag Marion,

Na de boorsteek minder je steken om op het juiste aantal steken te komen passend bij de maat, zodat de maatvoering klopt op basis van de stekenverhouding.

19.04.2021 - 20:10

country flag Cornelia wrote:

Ich ergänze: Der Beginn des Linken Vorderteils ist identisch mit dem rechten, das ist wohl falsch, ich habe in der englischen Anleitung gesehen, dass es so ist, wie ich gedacht habe. Also nicht mit 4M kraus re Blende starten! Vielleicht könnte man das in der deutschen Anleitung korrigieren. Super tolle Anleitung und tolles Garn sonst!!!

14.01.2021 - 15:09

DROPS Design answered:

Liebe Cornelia, schön, dass Ihnen das Modell und das Garn gefallen! :-) Vielen Dank für Ihren Hinweis, Sie haben recht - rechts und linkes Vorderteil müssen natürlich gegengleich gestrickt werden und nicht identisch. Der Fehler wurde korrigiert. Viel Spaß beim Weiterstricken!

14.01.2021 - 18:20

country flag Cornelia wrote:

Ich ergänze: Der Beginn des Linken Vorderteils ist identisch mit dem rechten, das ist wohl falsch, ich habe in der englischen Anleitung gesehen, dass es so ist, wie ich gedacht habe. Also nicht mit 4M kraus re Blende starten! Vielleicht könnte man das in der deutschen Anleitung korrigieren. Super tolle Anleitung und tolles Garn sonst!!!

14.01.2021 - 15:02

country flag Cornelia wrote:

Hallo, ist das in der Anleitung richtig, dass linkes und rechtes Vorderteil gleich gestrickt werden, muss es nicht spiegelverkehrt sein?

14.01.2021 - 13:13

DROPS Design answered:

Liebe Cornelia, beide Vorderteile sind spiegelverkehrt beschrieben: beim rechten Vorderteil beginnen Sie die Hinreihen mit den 16 M A.1 (Blendemaschen) und beim linken Vorderteil enden Sie die Hinreihen mit den 16 M A.1 (Blendemaschen), usw... Viel Spaß beim stricken!

14.01.2021 - 15:55

country flag Madeleine wrote:

Hi I am having problems with the knitting tension. I cast on 15 st in sizes 6,5.5, 5 and in desperation 7. There is no way that I can achieve 10 cm across with only 15st. The most I can get is 7cm .what am I doing wrong?

03.12.2020 - 15:07

DROPS Design answered:

Dear Madeleine, are you using DROPS Air? Read more about tension here. Hope this can help - your DROPS store might have other tips for you that they could share either by telephone or e-mail. Happy knitting!

03.12.2020 - 16:32

country flag Raquel wrote:

Hola, sería posible ver una foto de la espalda? Como va rematado el cuello por atras? Gracias

11.11.2020 - 22:55

DROPS Design answered:

Hola Raquel, lo sentimo,s pero no hay ninguna foto de la espalda de este modelo.

19.11.2020 - 11:24