DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14256.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sira

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Polaris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með háum kraga og norrænu mynstri í perluprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 195-21
DROPS Design: Mynstur po-106
Garnflokkur F eða E + E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS POLARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki F)
800-900-1000-1100-1200-1300 g litur 04, milligrár
200-200-200-200-200-200 g litur 01, natur
200-300-300-300-300-400 g litur 03, dökk grár

PRJÓNFESTA:
7 lykkjur á breidd og 8 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 15: lengd 60 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14256.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

SKIPT UM ÞRÁÐ (á við um þegar prjónað er með Polaris):
Þegar skipt er um dokku af Polaris þá er endanum skipt í tvo hluta á þræðinum sem er að ljúka ca 15 cm. Klippið af annan endann og það sama er gert við nýja þráðinn. Leggið fyrstu og síðustu 15 cm á endunum yfir hvorn annan þannig að þráðurinn nái eðlilegum grófleika og prjónið síðan áfram - með þessu er komið í veg fyrir að samskeytin sjáist.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 36 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 9.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 8. og 9. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

GALDRALYKKJA:
Ef prjónað er í hring á hringprjón sem er of langur fyrir lykkjufjöldann er hægt að gera það þannig: Hringprjóninn á að vera langur og hafa sveigjanlega snúru.
Færið lykkjurnar að miðju á snúrunni. Deilið lykkjunum í tvennt og dragið snúruna út á milli lykkja fyrir miðju. Færið lykkjurnar að prjónaendanum í hvorri hlið, passið uppá að lykkjurnar verði ekki snúnar. Þráðurinn sem prjóna á með er á aftari prjóni og þú byrjar á að prjóna með fremri prjóni. Dragið út aftari prjóninn til að prjóna lykkjurnar á þeim fremri. Þegar lykkjur á fremri prjóni hafa verið prjónaðar, snúið við og færið lykkjurnar til baka á auða prjóninn og prjónið hina hliðina alveg eins. Haldið svona áfram hringinn, passið uppá að draga alltaf út prjóninn í þeirri hlið þar sem þú hefur þráðinn.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá einu sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (á við um ermar):
ATH: Til að úrtakan komi til skiptis í hægri og vinstri hlið á stykki er lykkjum fækkað þannig:
Í stærð S, M og L er lykkjum fækkað til skiptis í byrjun og í lokin á umferð sem er með úrtöku.
Í stærð XL, XXL og XXXL er lykkjum fækkað í byrjun á hverri umferð sem er með úrtöku (til skiptis frá réttu og frá röngu).
Lykkjum er fækkað frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Lykkjum er fækkað frá röngu þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón og saumaðar saman í lokin. Sjá SKIPT UM ÞRÁÐ.

KRAGI:
Fitjið upp 36-36-40-40-44-48 lykkjur á hringprjón 15 með litnum dökk grár. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 9 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ ÚTAUKNING = 32-32-36-36-40-44 lykkjur. ATH: Í vöruúrvalinu okkar höfum við ekki styttri hringprjóna en 60 cm í prjónanúmeri 15.
Nú hefur lykkjum verið fækkað þannig að ummálið á stykkinu er minna en 60 cm í stærð S-XXL. Prjónið nú áfram með GALDRALYKKJA – sjá útskýringu að ofan, þar til auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur til að nota hringprjón 60 eða 80 cm.

BERUSTYKKI:
Prjónið nú mynstur A.1 hringinn (= 8-8-9-9-10-11 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 96-112-117-126-140-154 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 20-25-25-28-30-33 cm frá eftir kraga. Prjónið áfram með sléttprjón og milligrár, en án útaukningar þar til stykkið mælist 24-25-27-29-31-33 cm frá eftir kraga. Prjónið 1 umferð slétt með milligrár þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 100-112-116-128-136-156 lykkjur – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA.
Næsta umferð er prjónuð í sléttprjóni þannig:
Prjónið 15-16-17-19-20-23 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 20-24-24-26-28-32 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 30-32-34-38-40-46 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 20-24-24-26-28-32 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 15-16-17-19-20-23 lykkjur (= hálft bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 68-72-76-84-92-104 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út. Haldið áfram í sléttprjóni og milligrár.
Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju á undan báðum prjónamerkjunum – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið síðan út þannig:
Þegar stykkið mælist 8 cm aukið út um 1 lykkju á eftir hvoru prjónamerki.
Þegar stykkið mælist 10 cm aukið út um 1 lykkju á undan hvoru prjónamerki.
Þegar stykkið mælist 12 cm aukið út um 1 lykkju á eftir hvoru prjónamerki.
Í stærð M og XXXL heldur útaukningin áfram þannig:
Þegar stykkið mælist 14 cm aukið út um 1 lykkju á undan hvoru prjónamerki.
Þegar stykkið mælist 16 cm aukið út um 1 lykkju á eftir hvoru prjónamerki.

ALLAR STÆRÐIR:
Nú eru 76-84-84-92-100-116 lykkjur í umferð. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og litnum milligrár þar til stykkið mælist 23-24-24-24-24-24 cm frá skiptingu. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón og saumaðar saman í lokin. Setjið 20-24-24-26-28-32 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón 15 og fitjið upp 2-2-2-2-3-3 nýjar lykkjur í hvorri hlið = 24-28-28-30-34-38 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með litnum milligrár. Þegar stykkið mælist 4-4-2-4-4-2 cm er fækkað um 1 lykkju í hægri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum til skiptis í vinstri og hægri hlið á stykki í annarri hverri – annarri hverri – annarri hverri – hverri – hverri – hverri umferð alls 8-12-12-14-14-18 sinnum (= 4-6-6-7-7-9 sinnum í hvorri hlið) = 16-16-16-16-20-20 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 33-33-31-30-27-25 cm frá skiptingu (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).
Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saum undir ermum í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = slétt með natur
symbols = brugðið með natur
symbols = slétt með milligrár
symbols = brugðið með milligrár
symbols = slétt með dökk grár
symbols = brugðið með dökk grár
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Ali Baylis wrote:

Hello. I’ve reached the point where I have put the stitches for sleeves onto stitch holders. The pattern says ‘cut the yarn’- is this necessary? I don’t understand why and how I would secure it and then restart the body with new yarn? Please could you clarify?

15.03.2022 - 16:58

DROPS Design answered:

Dear Mrs Baylis, it looks like you could continue body from mid-back, without cutting the yarn. Happy knitting!

16.03.2022 - 08:36

country flag Romina wrote:

Hola soy Romina desde Argentina, y queria saber porque no hay una tienda DROPS en mi pais. Aqui no se consiguen las agujas y las lanas que se necesitan para tejer este jersey. Desde ya muchas gracias!!

23.02.2022 - 18:34

country flag Romina wrote:

Hola soy Romina desde Argentina, y queria saber porque no hay una tienda DROPS en mi pais. Aqui no se consiguen las agujas y las lanas que se necesitan para tejer este jersey. Desde ya muchas gracias!!

23.02.2022 - 18:33

country flag Macarod wrote:

Ik heb maar 100gr donkergrijs gebruikt, in plaats van de aangegeven 300 gr.

22.12.2021 - 21:46

country flag Martijntje Rodenburg wrote:

Reactie op eerder commentaar. Ik gebruik maar 100gr donker grijs ipv 300gr. Misschien lees ik het patroon dan verkeerd.. Zoals ik het lees gebruik ik donker grijs bij de hals en de eerste naalden van het telpatroon. Zodra ik met de naturelle kleur begin brei ik allen nog met grijs. Kunt u mij uitleggen waar ik de kleur donkergrijs nog meer gebruik?

06.12.2021 - 15:09

country flag Martijntje Rodenburg wrote:

Ik vraag mij af waarom ik 300 gr donker grijs nodig heb. Volgens het patroon gebruik ik alleen donker grijs in de hals en pas. Hier gebruik ik iets meer dan 100 gr voor.

29.11.2021 - 20:42

DROPS Design answered:

Dag Martijntje,

Het klopt dat je dit alleen in de hals en de pas nodig hebt, maar als ik naar de verhoudingen kijk van de hoeveelheid benodigde garens in de andere kleuren, zou deze hoeveelheid wel ongeveer moeten kloppen. Als je de trui al klaar hebt en je blijkt hele andere hoeveelheden nodig te hebben, dan horen we dat natuurlijk graag, zodat we het aan kunnen passen.

01.12.2021 - 11:46

country flag Irene Van Vuure wrote:

I have a question about the knitting pattern. I hope you can help me. I knit No. 195-21. I have worked pattern A1 in the round. It says that the knit should measure 25 cm after the neck. What's the meaning of this? Is that from the 1st row or after the hem? I'd love to hear it!

23.09.2020 - 08:43

DROPS Design answered:

Dear Mrs Van Vuure, measure from the beg of yoke, ie after rib on neck edge (measure on mid front). Happy knitting!

23.09.2020 - 13:54

country flag Maia Mygdam Mikkelsen wrote:

Hvordan tager man masker ud, uden at ødelægge mønsteret, på den pind i diagrammet, hvor man strikker skiftevis 1 maske natur og 1 maske mørk grå?

07.04.2020 - 11:40

DROPS Design answered:

Hej Maia, det kommer ikke til at gøre noget, du skal lave et omslag med mørkegrå efter hver 10 maske, omslagene strikkes i mørkegrå på næste pind. God fornøjelse!

21.04.2020 - 13:42

country flag Hanne wrote:

Er der et alternativ til Polaris ?

12.07.2019 - 11:39

DROPS Design answered:

Hei Hanne. Du kan feks bruke 2 tråder Eskimo eller 2 tråder Andes. I garnkalkulatoren vår (som du finner rett under materialene i oppskriften) vil du få opp garnmengden du trenger i de alternative kvalitetene. God fornøyelse

12.07.2019 - 12:57

country flag Elize Moolman wrote:

Please help at collar end it say knit 1 round while decrease 4 stitches evenly, should it not be increase rather than decrease, I include a photo of my knitting and where I struggle

10.04.2019 - 09:59

DROPS Design answered:

Dear Mrs Moolman, when you have worked the 9 cm ribbing, you knit one round while decreasing 4 sts evenly = there are now 32-32-36-36-40-44 sts. Now work A.1 increasing as shown in diagram. Happy knitting!

10.04.2019 - 10:22