DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS SS24

Carnival Star

Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með röndum, doppum og laskalínu og sokkum úr DROPFabel. Heklað dýr og snudduband úr DROPS Fabel og DROPS Merino Extra Fine

DROPS Baby 19-4
DROPS Design: Mynstur nr FA-026-by-FA-027-by-FA-023-by-ME-029-by
---------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
100-100-100 (100-100) gr litur nr 161, bleikur draumur
50-50-50 (100-100) gr litur nr 100, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TRÉTALA nr 513: 5-5-5 (6-6) stK.

SOKKAR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Lengd fótar: 10 - 11 - 12 (14 - 16) cm

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
50-50-50 (50-50) grlitur nr 100, natur
50-50-50 (50-50) gr litur nr 161 bleikur draumur

DROPS PRJÓNAR og SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm

HEKLAÐ SNUDDUBAND:
Sjá BabyDROPS 19-34

HEKLAÐ DÝR:
Sjá BabyDROPS 19-35
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PEYSA:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚRTAKA (á við um laskalínu):
FRÁ RÉTTU:
Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli erma og fram- og bakstykkis (byrjið 3 l á undan prjónamerki) þannig: Prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

FRÁ RÖNGU:
Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli erma og fram- og bakstykkis (byrjið 3 l á undan prjónamerki) þannig: Prjónið 2 snúnar l br saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan), 2 l br (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), 2 l br saman.
ATH! Passið uppá að lykkjan snúi í rétta átt séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 148-168-184 (200-220) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 2,5 með litnum bleikur draumur. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan stroff = 2 l sl/2 l br með 1 kantlykkju og 2 l slétt í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu).
Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 17-21-21 (21-25) l jafnt yfir = 131-147-163 (179-195) l. Setjið prjónamerki 33-37-41 (45-49) l inn frá hvorri hlið = 65-73-81 (89-97) l á milli prjónamerkja á bakstykki. Prjónið M.1 með 1 kantlykkju í hvorri hlið við miðju að framan. ATH! M.1 er endurtekið þar til 2 l eru eftir á prjóni, prjónið 1 l eins og 1. lykkja í M.1 og endið á 1 kantlykkju. Eftir M.1 er prjónað áfram M.2 alveg eins með 1 kantlykkju á hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 17-18-21 (24-27) cm – stillið af eftir 1 rönd í M.2 (þ.e.a.s. eftir 5 umf með einum lit) – prjónið næstu umf þannig: Prjónið 29-33-37 (41-45) l (= framstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, prjónið 57-65-73 (81-89) l (= bakstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, prjónið 29-33-37 (41-45) l (= framstykki).
Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 40-44-44 (48-52) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum bleikur draumur. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff = 2 l sl/ 2 l br. Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 3 l jafnt yfir = 37-41-41 (45-49) l. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Prjónið M.1. ATH! M.1 er endurtekið þar til 1 l er eftir í umf. Prjónið þessa l eins og 1. lykkju í M.1. Eftir M.1 er haldið áfram með M.2 alveg eins. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkið. Endurtakið útaukningu í 4.–4.- 4.- (5.- 6.) hverri umf alls 8-8-12 (12-12) sinnum = 53-57-65 (69-73) l – útauknu l eru prjónaðar inn í mynstur. Þegar stykkið mælist ca 16-17-20 (24-28) cm – stillið af að endað er á sama stað í M.2 eins og á fram- og bakstykki – fellið af í næstu umf 8 l fyrir miðju undir ermi = 45-49-57 (61-65) l eftir á prjóni.
Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 205-229-261 (285-309) l. Setjið eitt prjónamerki í allar 4 skiptingar milli erma og fram- og bakstykkis.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Haldið áfram með M.2 þannig að rendurnar passa yfir fram- og bakstykki og ermi.

LASKALÍNA:
Fækkið um 1 l hvoru megin við öll prjónamerkin með byrjun frá réttu (= 8 úrtökur í hverri umf) –
LESIÐ ÚRTAKA!
Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 12-14-13 (14-16) sinnum og síðan í hverri umf: 4-4-9 (10-10) sinnum.

HÁLSMÁL:
Jafnframt þegar stykkið mælist 23-25-29 (32-36) cm er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf þannig: 6-8-8 (8-10) l 1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 2-2-2 (4-4) sinnum. Eftir alla laskaúrtökuna og úrtöku fyrir hálsmáli eru 57-61-61 (65-69) l eftir á prjóni og stykkið mælist ca 28-30-34 (38-42) cm upp að öxl. Setjið lykkjur á þráð.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Takið upp ca 68-76-88 (96-108) l (deilanlegar með 4) meðfram vinstra framstykki á hringprjóna nr 2,5 með litnum bleikur draumur. Prjónið stroff fram og til baka með 1 kantlykkju með garðaprjóni og 2 l sl á hvorri hlið (séð frá réttu). Þegar kantur að framan mælist 2 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið á sama hátt og vinstri kantur en eftir 2 umf er fellt af fyrir 4-4-4 (5-5) hnappagötum jafnt yfir. Neðsta hnappagatið á að vera ca 2 cm frá neðri kanti og það efsta ca 4 cm frá efri kanti (það á einnig að gera 1 hnappagat efst í hálsmáli).
1 HNAPPAGAT = Prjónið 2 l slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. ATH! Það er fallegast þegar fellt er af í br l (séða frá réttu) með því að prjóna 2 l br saman.

HÁLSMÁL:
Setjið til baka l af þræði í hálsmáli yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið að auki upp ca 16 til 22 l með litnum bleikur daumur í hvorri hlið að framan við hálsmál (takið einnig upp l yfir kant að framan) = ca 89-113 l. Prjónið 1 umf br frá röngu (síðasta l í hvorri hlið er prjónuð í garðaprjóni) JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir til 84-88-92 (96-100) l. Prjónið síðan stroff með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 2 l sl í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). JAFNFRAMT eftir 2 umf með stroffi er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin á hægri kanti að framan. Þegar hálsmálið mælist 2 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-6-6 (7-8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-6-6 (7-8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (6-7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (6-7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 8-10-10 (10-12) l eru eftir á prjóni.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 l saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjóanð í hring á sokkaprjóna.

SOKKUR:
Fitjið upp 48-52-52 (56-60) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum bleikur draumur.
Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 5-6-6 (7-7) cm. Prjónið nú 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 12 l jafnt yfir = 36-40-40 (44-48) l. Prjónið nú M.1. Eftir M.1 er prjónað áfram með litnum natur og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 7-8-8 (9-9) cm haldið eftir fyrstu 18-20-20 (22-26) l á prjóni fyrir hæl og hinar 18-20-20 (22-22) l eru settar á þráð (= ofan á fæti). Prjónið nú sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið eitt prjónamerki. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Prjónið nú upp 8-9-10 (10-11) l hvoru megin við hæl og l af þræði (ofan á fæti) eru settar til baka á prjóninn = 42-48-50 (52-56) l. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umf, fækkið um 1 l á undan 18-20-20 (22-22) l á fæti með því að prjóna 2 l slétt saman, fækkið um 1 l á eftir 18-20-20 (22-22) l á fæti með því að taka 1 l óprjónaða, prjónið 1 l sl og steypið óprjónuðu l yfir. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 3-6-7 (5-7) sinnum = 36-36-36 (42-42) l. Prjónið áfram þar til sokkurinn mælist 7-8-9 (10-12) cm frá prjónamerki á hæl. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum (= 18-18-18 (21-21) l á milli prjónamerkja, bæði ofan á fæti og undir fæti). Fellið nú af 1 l hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í hverri umf alls 7-7-7 (8-8) sinnum = 8-8-8 (10-10) l eftir á prjóni.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festi vel. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

--------------------------------------------------------
HEKLAÐ SNUDDUBAND:
Sjá BabyDROPS 19-34
--------------------------------------------------------
HEKLAÐ DÝR:
Sjá BabyDROPS 19-35
--------------------------------------------------------

Mynstur

symbols = natur
symbols = bleikur draumur
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Vivi Bræin wrote:

Er det muligt at få Carnival star opskriften i str. 6-8 år eller hjælp til konvertering til større størrelse. Vil gerne strikke den til søskende på 1 år og 5½ år.

18.08.2023 - 16:46

DROPS Design answered:

Hei Vivi. Design avd har dessverre ikke muligheten til å legge på størrelser på allerede skrevne oppskrifter. Men du kan ta en titt på Candy Cane Lane Kids Jacket, DROPS Children 34-31 og så justere oppskriften slik at den blir mest mulig lik Carnival star opskriften :) mvh DROPS Design

21.08.2023 - 09:30

country flag Anne Wright wrote:

2.5mm needles specified for jacket - is this wrong? It says 3mm on the yarn label. I think maybe the 2.5 is a US size. About to start - please advise!

22.10.2020 - 13:32

DROPS Design answered:

Dear Mrs Wright, you need the needle size required to get 26 sts x 34 rows in stockinette = 4"x4" - we used needle size 2,5 - the tension on the label is with needle size 3 mm = 24 sts x 32 rows (read more under shadecard. Remember to check your gauge and adjust needle size if required - read more about tension here. Happy knitting!

22.10.2020 - 15:29

country flag Bettina wrote:

Vielen Dank für die Hilfe.

24.04.2019 - 08:53

country flag Bettina wrote:

Größe 12-18 Monate

24.04.2019 - 08:52

DROPS Design answered:

Liebe Bettina, in der Größe 12/18 Monate ketten Sie für den Hals wie folgt: 8 Maschen am Anfang jeder nächste 2 Reihe (= 8 M auf beiden Seiten), dann 2 Maschen am Anfang der nächsten 2 Reihe und 1 Masche am Anfang der nächsten 4 Reihen (= 2 Maschen auf beiden Seiten) = 12 M werden auf beiden Seiten für den Hals abgekettet. Es waren 261 M - (Raglan: 8 Abnahmen x 22=176) - 24 (Hals) = 61 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

24.04.2019 - 13:23

country flag Bettina wrote:

Und an den Vorderteilen werden keine Maschen abgekettet? Das ist in der Anleitung nicht ersichtlich und stimmt dann auch nicht mit der Maschenzahl nicht über ein. LG

23.04.2019 - 17:26

DROPS Design answered:

Liebe Bettina, diese Abketten entstehen am Hals = an jedem Vorderteil, dh am Anfang jeder Reihe (Hin sowie Rückreihe = rechtes und linkes Vorderteil) ketten Sie ab: 6-8-8 (8-10) M. 1 Mal, 2 M. 1 Mal und 1 M. 2-2-2 (4-4) Mal. Welche Größe stricken Sie?

24.04.2019 - 08:42

country flag Bettina wrote:

Gleichzeitig nach 23-25-29 (32-36) cm am Anfang jeder R. gegen den Hals abk.: 6-8-8 (8-10) M. 1 Mal, 2 M. 1 Mal und 1 M. 2-2-2 (4-4) Mal. was meint es damit gegen den Hals abnehmen ? heisst es an den Vorderseiten die Maschen abnehmen ? LG

22.04.2019 - 11:11

DROPS Design answered:

Liebe Bettina, die Maschen für den Hals werden am Anfang jeder Reihe (Hin sowie Rückreihe) abgekettet (nicht abgenommen). Viel Spaß beim stricken!

23.04.2019 - 14:22

country flag Lina Thorne wrote:

Bonjour, comment faire pour évité le décalage des couleurs lorsqu'on tricote les manches ? Merci :)

04.12.2017 - 11:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Thorne, cette vidéo montre comment éviter un décalage quand on tricote des rayures en rond. Bon tricot!

04.12.2017 - 13:46

country flag Yvonne wrote:

Op de foto heeft get patroon meer kleuren dan genoemd bij de gebruikte wol. Welke kleuren zijn er daar nog meer gebruikt en hoeveel?

06.08.2017 - 12:01

DROPS Design answered:

Hoi Yvonne, Door het kleurverloop in pink dream van fabel print lijkt het alsof er verschillende kleuren zijn gebreuikt. Je hebt dus alleen fabel pink dream en naturel nodig.

06.08.2017 - 22:30

country flag Kristina Sjönnemo wrote:

Aha, jag räknade inte in de första 8 minskade maskorna som står efter rubriken RAGLANMINSKNING, så därför blev det för många maskor. Men nu fick jag det klart för mig! Tack!

08.06.2017 - 15:01

country flag Kristina Sjönnemo wrote:

Hej igen, tack för svar! Jag skrev lite dumt i frågan om maskantalet bara. Jag stickar mönstret för 6/9 månader. (Skrev strl 2 och menade inte för en 2åring utan den andra storl i mönstret ;) ) Jag har 229m i början på oket och ska avsluta med 61, det stämmer inte för mig! Står det fel? Tack för svar / Kristina

08.06.2017 - 11:07

DROPS Design answered:

Då jag kollar denna storlek så stämmer det också; du ska minska totalt 144 maskor för raglan och avm totalt 24 m för halsen: 229 - 144 - 24 blir då 61 maskor.

08.06.2017 - 13:51