DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 10-7
DROPS Design
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------
Stærð: 6/9 mán - 1 - 2 - 3/4 ára
Stærð í cm: 62/68 - 74/80 - 86/92 - 98/104
Efni:
DROPS Safran frá Garnstudio
150-150-200-200 gr nr 17, hvítur.

DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA: 4 st.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1, M.2 og M.3. Mynsturteikning sýnir mynstur frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum meðfram hægri kant að framan. 1 hnappagat = fellið af 3. l frá kanti að framan, í næstu umf er slegið uppá prjóninn yfir l sem felld var af. Þegar uppslátturinn er prjónaður er hann prjónaður snúinn slétt (þetta er gert til að gatið verði ekki of stórt). Hnappagötin byrja fyrst á stroffi. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 6/9 MÁN: 22, 25, 28 og 31 cm.
STÆRÐ 1 ÁRA: 31, 34,5, 38 og 41 cm.
STÆRÐ 2 ÁRA: 33, 37, 40,5 og 44 cm
STÆRÐ 3/4 ÁRA: 35, 39,5, 44 og 48 cm.

ÚRTAKA (á við um handveg og hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið lykkjum á undan 4 l garðaprjón þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 4 l garðaprjón þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
----------------------------------------------------------

KJÓLL:
Kjóllinn er prjónaður fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

Fitjið upp 189-199-209-219 l (meðtaldar 4 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á prjóna nr 3 með hvítur.
Prjónið M.1, haldið síðan áfram með M.2 þar til stykkið mælist 22-31-33-35 cm en 4 kantlykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN uppúr – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir M.2 er prjónað M.3 – JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 79-69-65-61 l jafnt yfir í umf (ATH: Ekki er l fækkað yfir 4 kantlykkjur að framan) = 110-130-144-158 l. Eftir M.3 er prjónað sléttprjón til loka (kantlykkjur eru áfram prjónaðar í garðaprjóni) – Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan – meðfram hægri kanti að framan. Þegar stykkið mælist 25-34-37-40 cm setjið 2 prjónamerki í stykkið – setjið 1 prjónamerki eftir 28-33-37-40 l inn frá hvorri hlið á stykki = 54-64-70-78 l á milli prjónamerkja = bakstykki. Prjónið nú 4 umf með garðaprjón yfir 6 l hvoru megin við bæði prjónamerkin = 12 l garðaprjón í hvorri hlið. Í næstu umf eru felldar af 4 miðju l við þessar 12 l garðaprjón fyrir handveg. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 26-31-35-38 l. Prjónið nú sléttprjón með 4 l garðaprjón við miðju að framan og 4 l garðaprjón við handveg. JAFNFRAMT er fækkað um 1 l við handveg í annarri hverri umf – sjá ÚRTAKA – alls 2-2-2-2 sinnum = 24-29-33-36 l. Haldið áfram með 4 l garðaprjón uppúr meðfram handveg til loka. Þegar stykkið mælist 31-41-44-48 cm prjónið 4 umf í garðaprjóni yfir 12-13-14-15 l við miðju að framan. Í næstu umf er fækkað um 8-9-10-11 l við miðju að framan fyrir hálsmáli. Prjónið áfram með 4 l garðaprjón við miðju að framan – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l við hálsmál í annarri hverri umf – sjá ÚRTAKA – alls 4 sinnum = 12-16-19-21 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 37-47-51-55 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og vinstra framstykki, nema spegilmynd. Munið eftir hnappagötum meðfram kanti að framan!

BAKSTYKKI:
= 50-60-66-74 l. Fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið eins og á framstykki = 46-56-62-70 l. Þegar stykkið mælist 35-45-49-53 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir miðju 30-32-32-36 l. Í næstu umf eru felldar af miðju 22-24-24-28 l fyrir hálsmáli = 12-16-19-21 l eftir á hvorri öxl. Prjónið áfram í sléttprjóni með 4 l garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 37-47-51-55 cm, fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma og saumið tölur í.
----------------------------------------------------------

HÚFA:

Stærð: 6/12 mán - 2/4 ára.
Höfuðmál: 42 - 46 cm.

HÚFA:
Fitjið upp 90-100 l á stutta hringprjóna eða sokkaprjóna nr 3 með hvítur. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, haldið áfram með M.2 uppúr. Prjónið M.2 alls 5-6 sinnum á hæðina. Setjið nú 1 prjónamerki í fyrstu l í hverja mynstureiningu í mynstri = 9-10 prjónamerki. Prjónið mynstur einu sinni til viðbótar JAFNFRAMT er l fækkað í umf sem merktar eru með örvum. Fækkið l þannig: Takið l innan við prjónamerki óprjónaða, prjónið l með prjónamerki + næstu l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir. Endurtakið þessa úrtöku í öllum mynstureiningu við allar 3 örvar, þ.e.a.s. fækkað er um 54-60 l = 36-40 l eftir á prjóni. Eftir síðustu umf af M.2 er prjónuð 1 umf sléttprjón jafnframt þar sem allar l eru prjónaðar saman 2 og 2 = 18-20 l eftir á prjóni. Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = sláið uppá prjóninn
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = örin er notuð í uppskrift á húfu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 10-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (154)

country flag Judy wrote:

Would like to make this, but have the front closed Any suggestions or changes to the pattern? Thank you ?

05.04.2024 - 02:13

DROPS Design answered:

Dear Judy, please understand that with many thousands of patterns available on our site, we cannot modify them to each individual request. Having said that, I would probably do the front as the pattern describes the back, only cast off for the neckline sooner. I hope this helps. Happy Knitting!

05.04.2024 - 02:24

country flag Cynthia wrote:

Kan ik de werkwijze verkrijgen om dit patroon met gewone breinaalden te maken?

03.04.2024 - 15:42

DROPS Design answered:

Dag Cynthia,

Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.

03.04.2024 - 19:53

country flag Jennifer wrote:

Hejsan! Är det rätt att det ska vara 189/199/209 maskor man lägger upp? Om rapporterna är på 10 m + 4 kantmaskor i var sida så borde det ju bli 188/198 osv. Ser på bilden ut som rapporterna stickas rakt ovanför varandra. Har jag missat nått? Mvh Jennifer

21.03.2024 - 12:26

DROPS Design answered:

Hej Jennifer. Det stämmer att det ska vara 189/199/209 maskor man lägger upp. Den sista maskan stickas alltså som den första i diagrammet, detta för att det ska bli likadant mönster mot mitt fram i båda sidor. Mvh DROPS Design

22.03.2024 - 09:06

country flag Marja wrote:

Hei, lämmin kiitos nopeasta vastauksesta.

13.03.2024 - 18:56

country flag Marja wrote:

Hei. Oletan, että M1, M2 ja M3 näyttävät kuviota oikealta puolelta? Eli, M1 toinen krs joka neulotaan nurjalta puolelta, neulotaan siis oikein silmukoin, jotta silmukat näyttävät oikealta katsottuna nurjalta, onko näin? Neulotaanko siis nurjat kerrokset aina nurin, jotta ne näyttävät oikealta puolelta katsottuna sileältä?

13.03.2024 - 16:00

DROPS Design answered:

Kyllä, piirros näyttää mallineuletta oikealta puolelta katsottuna. Eli ruutu, jossa on X, neulotaan oikein nurjalta puolelta.

13.03.2024 - 18:28

country flag LENA ALM wrote:

Hej. Är uppläggningsvaret / när man lägger upp maskorna på stickan, är detta ett rätt eller avigt varv ?

13.12.2023 - 18:07

DROPS Design answered:

Hej Lena, det bestemmer du selv, men sørg for at strikke mønsterpindene fra retsiden :)

14.12.2023 - 08:18

country flag Annika wrote:

Hei! DROPS Hvite knapper, eks hare: 4 stk som anbefales ser ikke ut til å være tilgjengelige lenger? Siden det ikke er oppgitt størrelse på knappene lurte jeg på hvilke knapper som vil fungere som erstatning for "Hare"-knappene på bildet. :)

25.07.2023 - 08:55

DROPS Design answered:

Hei Annika. Hare knappen var ca 15 mm stor. Om du går til GARN &PINNER / KNAPPER vil du finne en oversikt over de knappene vi nå har. Der står det også et artikkel nr. og str. på knappene :) mvh DROPS Design

25.07.2023 - 09:39

country flag Cheryl wrote:

Is M2basic on the horseshoe lace stitch pattern ?

28.04.2023 - 18:53

DROPS Design answered:

Dear Cheryl, what do you mean by this? M2 represents the lace pattern observed in the garment, which forms "peaks" in the lower part of the dress. Happy knitting!

30.04.2023 - 21:44

country flag Cheryl wrote:

I am working on the dress 10-7 M2

28.04.2023 - 15:29

country flag Cheryl wrote:

Please help me ikeep trying to knit M2 in the baby drop10-7 but where do i start to repeat after K2, yo, k2, ssk, k2, yo, k1 the repeat start with ?

28.04.2023 - 15:27

DROPS Design answered:

Dear Cheryl, a repeat of M.2 in the row is working all of the stitches represented in the chart. For example, in this row, after working the k1, work again: k2, yo, k2, ssk, k2, yo, k1. On the next row with yarn overs, you will work: k3,yo,k1, ssk, k1, yo, k3 and repeat on the row. On the final row with yarn overs, you will work: k4,yo,ssk,yo, k4. Please read the following lesson for more information on how to read knitting charts: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=19. Happy knitting!

30.04.2023 - 21:43