Gun-Britt Pohtola skrifaði:
Någon råddigare beskrivning av mönstret, dvs ytmönstret har jag inte sett på länge. Av bilden framgår att det också finns aviga maskor på utsidan men om man stickar runt så vet jag inte var de finns, om man stickar enligt mönsterbilden. Bättre kan ni ! GB Pohtola
25.01.2021 - 13:11
Hilde skrifaði:
Die Beschreibungen sind leider so schlecht, es ist fast unmöglich, sie zu verstehen. Das geht mir nun schon das 2. Mal so. Es tut mir leid, damit kann ich nicht arbeiten.
02.01.2021 - 21:37
Olena skrifaði:
Witam, mam pytanie odnośnie obracania czapki w innym kierunku. Tworzy się dziurka w tym miejscu, czy powinnam jakoś inaczej przerobić oczko by zacząć robótkę w innym kierunku? Dziękuję bardzo
13.11.2020 - 22:27DROPS Design svaraði:
Witaj Oleno! Mocniej zaciśnij nitkę przerabiając pierwsze oczko, to powinno pomóc. Pozdrawiamy!
13.11.2020 - 22:47
Maria Teresa skrifaði:
Non è specificato a quale altezza del cappello si deve passare a lavorare in tondo o se bisogna continuare a lavorare in piano. Le spiegazioni non sono affatto chiare.
12.11.2020 - 11:15DROPS Design svaraði:
Buongiorno Maria Teresa, questo cappello è lavorato in tondo. Se dovesse avere dubbi su una parte delle spiegazioni, può scriverci. Buon lavoro!
13.11.2020 - 15:15
Chill of Dawn#chillofdawnset |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð húfa / hipsterhúfa og handstúkur úr DROPS Sky í garðaprjóni og klukkuprjóns lykkjum.
DROPS 214-15 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1. Handstúkur: Sjá mynsturteikningu A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (á við um húfu): Lykkjum er fækkað í umferð sem er eins og síðasta umferð í A.1 þannig: Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið lykkjuna með prjónamerki í og næstu 7 lykkjur eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 9 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-2 (á við um handstúkur): Fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman frá réttu. ÚTAUKNING (á við um handstúkur): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 104-112 lykkjur á hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan mynstur þannig: * A.1 (= 1 lykkja), 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, endurtakið síðustu 2 umferðir í A.1. Þegar stykkið mælist 14 cm, snúið stykkinu þannig að rangan snúi út (þetta er gert svo að rétta á uppábroti snúi út í lokin þegar húfan er tilbúin). Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan mynstur í gagnstæða átt þannig: * 3 lykkjur garðaprjón, A.1 (= 1 lykkja) *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Þegar stykkið mælist 14-15 cm frá prjónamerki, setjið 2 ný prjónamerki í stykkið þannig: Setjið fyrsta prjónamerkið í fyrstu klukkuprjóns lykkjuna í umferð, hoppið yfir næstu 51-55 lykkjur og setjið næsta prjónamerki í næstu lykkju (= 51-55 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki). Í næstu umferð byrjar úrtaka – sjá ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 16-18 sinnum = 40-40 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón og fækkið lykkjum þannig: UMFERÐ 1: Prjónið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) *, prjónið frá *-* út umferðina (= 10 lykkjur færri) = 30-30 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið 1 umferð slétt. UMFERÐ 3: Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman = 15-15 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 24-26 cm með 12 cm uppábroti neðst. ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna og saumað saman. HANDSTÚKUR: Fitjið upp 43-47 lykkjur á hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið mynstur þannig (1. umferð = rétta): Prjónið 11-13 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * A.2 (= 1 lykkja), 4 lykkjur garðaprjón *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum, A.2 yfir næstu lykkju, 11-13 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, endurtakið síðustu 2 umferðir í mynsturteikningu til loka og þegar stykkið mælist 4 cm fækkið um 2 lykkjur í umferð þannig: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón eins og áður, fækkið um 1 lykkju – sjá ÚRTAKA-2, prjónið eins og áður þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, fækkið um 1 lykkju, prjónið 3 lykkjur garðaprjón eins og áður. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 6 cm = 39-43 lykkjur. Þegar stykkið mælist 8 cm, fækkið um 1 lykkju garðaprjón í hverri einingu með 4 lykkjum garðaprjón = 35-39 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 14 cm. Aukið nú um 2 lykkjur í umferð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju, prjónið 3 lykkjur garðaprjón eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju, prjónið 3 lykkjur garðaprjón eins og áður. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 18 cm = 39-43 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 22 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá röngu – sjá AFFELLING. Klippið frá, en skiljið eftir enda til að sauma stykkið saman með. Saumið saum innan við 1 kantlykkju garðaprjón. Prjónið hina handstúkuna á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #chillofdawnset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.