Monique skrifaði:
Hi, ik wil graag deze trui breien met Drops Alaska ipv Drops Air. Moet ik dan met dikkere of juist dunnere pennen breien? 5 of 5.5? Dank u wel! Gr. Monique
08.02.2025 - 15:04DROPS Design svaraði:
Dag Monique,
DROPS Alaska valt in dezelfde garencategorie, dus je kunt ongeveer dezelfde naalddikte aanhouden of de naalddikte die staat bij het garen. Maak altijd even een proeflapje om te kijken of de stekenverhouding overeenkomt met de stekenverhouding in het patroon.
09.02.2025 - 10:25
Marianne skrifaði:
Hvilken størrelse skal jeg strikke, hvis jeg bruger andet garn, Drops Merino Extra Fine til pind 4 - bruger størrelse XL/XXL
09.01.2025 - 16:05DROPS Design svaraði:
Hei Marianne. Denne genseren er strikket i DROPS Air, et tykkere garn en DROPS Merino Extra Fine. Vi har ikke mulighet til å skrive om genseren slik at den passer i mål, garnforbruk mm til et tynnere garn. mvh DROPS Design
13.01.2025 - 13:09
Gabi skrifaði:
Wunderschöner Pullover aus schmuseweichem Garn, ich bin total begeistert von meinem neuen Stück. Die Anleitung ist gut, Größe passt perfekt. Ich habe zum ersten Mal Rundpasse gestrickt und es war leicht durch die gute Anleitung. Ich freu mich schon auf mein nächstes Projekt!
09.11.2024 - 00:04
Aran skrifaði:
I have used drops yarn in many patterns and it has kept its size and fluffiness. The key is never to spin the knits however slowly or short the spin.
24.07.2023 - 13:57
Carole skrifaði:
VERY disappointed. Lovely yarn but ruined after first hand wash - Followed instructions, used Woolite, which is specifically for delicate fabrics, in barely warm water. Now looks shrunken and has lost the airy feel. I am gutted.
22.02.2022 - 10:15
Catherine skrifaði:
Hello , I would like to knit this for my son. Are the measurements shown above for the finished jumper or for the body measurements and can and how do I increase it please?
20.01.2022 - 14:39DROPS Design svaraði:
Dear Catherine, you will read more about chart and how to find the correct size here. We are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, but you will find how to adapt a pattern into a men's size here; you are welcome to request the help of your yarn store for any further individual assistance; Happy knitting!
20.01.2022 - 17:25
Catherine skrifaði:
Is this a unisex pattern? I was going to knit for my son in xxl.
14.01.2022 - 14:26DROPS Design svaraði:
Dear Catherine, read more about adapting a pattern into a men's size here. Happy knitting!
14.01.2022 - 16:47
Andréa skrifaði:
Je tricote le pull en taille L, mais comment garder le pattern, après l'augmentation du jacquard à la flèche numéro 3 ? tout est décalé !
03.05.2021 - 13:26DROPS Design svaraði:
Bonjour Andréa, après les augmentations de la flèche-3 vous avez 144 mailles, et vous répétez maintenant 21 fois les 8 mailles de A.1 - autrement dit, les motifs ne vont pas s'aligner comme dans le diagramme mais comme dans la photo, répétez simplement les 8 mailles de A.1 tout le tour. Après la flèche 4, vous aurez de nouveau un motif de 8 m à répéter, puis après la flèche-5, de nouveau un motif de 8 m, at après la flèche 6 de nouveau sur 6 mailles. Bon tricot!
03.05.2021 - 13:44
Hillevi Rystedt skrifaði:
Färgerna på bilderna verjar inte stämma överens med vad som anges. Tröjan ser grå ut men det står att det är beige. Är det verkligen rätt?
02.02.2021 - 22:33
Sina skrifaði:
Traumhafte Farben & tolle Muster!! Die Farben wären auch für einen gehäkelten Norweger Pulli wundervoll! Allererste Wahl!
15.06.2020 - 08:13
Colours of Winter#coloursofwintersweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S – XXXL.
DROPS 215-13 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 102 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 3,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72-78-78-84-84-90 lykkjur á hringprjóna 4,5 með litnum beige. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. Þegar kantur í hálsmáli mælist 10 cm í öllum stærðum, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Sjá LEIÐBEININGAR! Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 12-13-13-14-14-15 mynstureiningar með 6 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan: Ör-1: Aukið út 30-30-36-36-36-42 lykkjur jafnt yfir = 102-108-114-120-120-132 lykkjur (nú er pláss fyrir 17-18-19-20-20-22 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum). Ör-2: Aukið út 24-30-30-36-36-42 lykkjur jafnt yfir = 126-138-144-156-156-174 lykkjur (nú er pláss fyrir 21-23-24-26-26-29 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum). Ör-3: Aukið út 26-22-24-36-36-42 lykkjur jafnt yfir = 152-160-168-192-192-216 lykkjur (nú er pláss fyrir 19-20-21-24-24-27 mynstureiningar A.1 með 8 lykkjum). Ör-4: Aukið út 22-26-24-30-36-42 lykkjur jafnt yfir = 174-186-192-222-228-258 lykkjur (nú er pláss fyrir 29-31-32-37-38-43 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum). Ör-5: Aukið út 26-22-24-26-36-38 lykkjur jafnt yfir = 200-208-216-248-264-296 lykkjur (nú er pláss fyrir 25-26-27-31-33-37 mynstureiningar A.1 með 8 lykkjum). Ör-6: Aukið út 22-20-24-28-30-22 lykkjur jafnt yfir = 222-228-240-276-294-318 lykkjur (nú er pláss fyrir 37-38-40-46-49-53 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum). Ör-7: Aukið út 6-16-20-16-14-18 lykkjur jafnt yfir = 228-244-260-292-308-336 lykkjur. Haldið áfram með litnum beige þar til stykkið mælist 21-21-21-26-26-27 cm frá prjónamerki við hálsmál. Nú skiptist berustykkið fyrir fram og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 34-37-39-43-47-52 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 46-48-52-60-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 68-74-78-86-94-104 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 46-48-52-60-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 34-37-39-43-47-52 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 148-160-172-188-208-228 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni í litnum beige. Prjónið þar til stykkið mælist ca 25-27-29-26-28-29 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 4 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-8-8-10-10 lykkjur jafnt yfir = 154-166-180-196-218-238 lykkjur. Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 46-48-52-60-60-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-54-60-68-70-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónamerkið fylgir með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón með beige. Þegar stykkið mælist 3 cm byrjar úrtaka undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5-4½-3½-2-2½-2 cm millibili alls 6-7-8-12-11-13 sinum = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Þegar ermin mælist 31-32-32-28-29-29 cm frá skiptingu, skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 35-36-36-32-33-33 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innan verðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli verði of stífur og beygist út, passið uppá að saumurinn verði teygjanlegur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #coloursofwintersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.