DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Colours of Winter Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S – XXXL.

DROPS 215-14
DROPS Design: Mynstur ai-299
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C
250-300-300-350-350-400 g litur 26, beige
50-50-50-50-50-50 g litur 05, brúnn
50-50-50-50-50-50 g litur 17, gallabuxnablár
50-50-50-50-50-50 g litur 12, mosagrænn

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5 – fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5 – fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Marble nr 629: 6-6-6-7-7-7 st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 121 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 44) = 2,7.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kantlykkjur). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

HNAPPAGAT (á við um hægri kant að framan þegar flíkin er mátuð):
Fellið af fyrir 6-6-6-7-7-7 hnappagötum í hægri kanti að framan.
1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Neðsta hnappagatið á að vera 4 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið á að vera nákvæmlega undir kanti í hálsmáli. Þau 5-5-5-6-6-6 hnappagöt sem eftir eru, eru staðsett með jöfnu millibili ca 7-8 cm á milli hnappagata.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Kantar að framan eru prjónaðir í lokin.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 87-93-93-99-99-105 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum beige. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Þegar kantur í hálsmáli mælist 10 cm í öllum stærðum, skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Fellið af 6 lykkjur í byrjun á umferð (hér er kantur að framan saumaður niður síðar), prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Snúið stykkinu og fellið af fyrstu 6 lykkjur í byrjun á umferð = 75-81-81-87-87-93 lykkjur í umferð. Prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Setjið 1 prjónamerki í umferð, berustykkið er nú mælt frá prjónamerkinu!

BERUSTYKKI:
Sjá LEIÐBEININGAR! Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 72-78-78-84-84-90 lykkjur (= 12-13-13-14-14-15 mynstureiningar með 6 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan:

Ör-1: Aukið út 30-30-36-36-36-42 lykkjur jafnt yfir = 105-111-117-123-123-135 lykkjur (nú er pláss fyrir 17-18-19-20-20-22 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum, munið eftir að fyrstu lykkju í A.1 í lok umferðar).
Ör-2: Aukið út 24-30-30-36-36-42 lykkjur jafnt yfir = 129-141-147-159-159-177 lykkjur (nú er pláss fyrir 21-23-24-26-26-29 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum).
Ör-3: Aukið út 27-23-25-37-37-43 lykkjur jafnt yfir = 156-164-172-196-196-220 lykkjur (nú er pláss fyrir 19-20-21-24-24-27 mynstureiningar A.1 með 8 lykkjum og 2 fyrstu lykkjurnar í A.1 eru prjónaðar á undan kantlykkju í lok umferðar).
Ör-4: Aukið út 21-25-23-29-35-41 lykkjur jafnt yfir = 177-189-195-225-231-261 lykkjur (nú er pláss fyrir 29-31-32-37-38-43 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum).
Ör-5: Aukið út 27-23-25-27-37-39 lykkjur jafnt yfir = 204-212-220-252-268-300 lykkjur (nú er pláss fyrir 25-26-27-31-33-37 mynstureiningar A.1 með 8 lykkjum og 2 fyrstu lykkjurnar í A.1 eru prjónaðar á undan kantlykkju í lok umferðar).
Ör-6: Aukið út 21-19-23-27-29-21 lykkjur jafnt yfir = 225-231-243-279-297-321 lykkjur (nú er pláss fyrir 37-38-40-46-49-53 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum).
Ör-7: Aukið út 5-15-19-15-13-17 lykkjur jafnt yfir = 230-246-262-294-310-338 lykkjur.

Haldið áfram með beige þar til stykkið mælist 21-21-21-26-26-27 cm frá prjónamerki við hálsmál.

Nú skiptist berustykkið fyrir fram og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 35-38-40-44-48-53 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 46-48-52-60-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 68-74-78-86-94-104 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 46-48-52-60-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 35-38-40-44-48-53 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 150-162-174-190-210-230 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og með litnum beige. Prjónið þar til stykkið mælist ca 25-27-29-26-28-29 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 7-7-9-9-11-11 lykkjur jafnt yfir = 157-169-183-199-221-241 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 46-48-52-60-60-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-54-60-68-70-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónamerkið fylgir með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi.
Prjónið sléttprjón með beige. Þegar stykkið mælist 3 cm byrjar úrtaka undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5-4½-3½-2-2½-2 cm millibili alls 6-7-8-12-11-13 sinum = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Þegar ermin mælist 31-32-32-28-29-29 cm frá skiptingu, skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 35-36-36-32-33-33 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innan verðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot og saumið hvora hlið saman í brotinu við miðju að framan. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsi verði of stífur og beygist út, passið uppá að saumurinn verði teygjanlegur.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð):
Prjónið upp frá réttu á hringprjón 4,5 með litnum beige þannig: Prjónið upp ca 95-99-103-107-111-113 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram miðju að framan (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1).
Prjónið stroff þannig (1. umferð = ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í ca 3 cm – stillið af að það sé jafn breitt og breiddin á 6 lykkjum sem felldar voru af í kanti í hálsi. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð):
Prjónið alveg eins og vinstri kantur að framan, en eftir 1-1½ cm er fellt af fyrir 6-6-6-7-7-7 HNAPPAGAT jafnt yfir – sjá útskýringu að ofan.

FRÁGANGUR:
Saumið kant í hálsmáli fallega að kanti að framan með sauminn inn að röngu.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = beige
symbols = mosagrænn
symbols = brúnn
symbols = gallabuxnablár
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Patti Buchanan wrote:

I am beginning the yoke and have 75 stitches. The pattern indicates that A1 is worked over 72 stitches plus I need 2 edge stitches....that totals 74 therefore why 75 stitches?

31.07.2023 - 15:48

DROPS Design answered:

Dear Patti, you work 1 edge stitch, A.1 over 72 stitches, plus work the first stitch of A.1 and another edge stitch. In total you have 75 stitches. Happy knitting!

31.07.2023 - 18:41

country flag Veronica wrote:

Når blir denne oppskriften lagt ut?

29.09.2020 - 17:30

DROPS Design answered:

Hej Veronica, det varer ikke længe nu :)

30.09.2020 - 11:50

country flag Martina Herold wrote:

Das wird mein Projekt :)

21.08.2020 - 11:21

country flag Bodin Ghislaine wrote:

J aime beaucoup

17.06.2020 - 07:39

country flag Susana wrote:

Muito bonita!

11.06.2020 - 14:20

country flag Heike wrote:

Kann es kaum erwarten damit an zufangen.

10.06.2020 - 21:02

country flag Grażyna wrote:

Ładny żakard, w miarę prosty, myślę że sobie z nim poradzę. Kolory też piękne

05.06.2020 - 11:19

country flag Yvonne Smeijsters wrote:

Zou zo aan dit vest willen beginnen om hem op tijd af te hebben voor de winter

05.06.2020 - 07:11