Carola Immonen skrifaði:
När man ska sticka färdigt fram o bakstycke måste man väl sätta ena stycket på tråd? Annars förstår jag inte hur man ska sticka?
13.11.2021 - 17:25DROPS Design svaraði:
Hej Carola. Ja det stämmer, maskorna till den delen du inte stickar sätts på en tråd. Mvh DROPS Design
16.11.2021 - 08:39
Amanda Brunholt skrifaði:
Når jeg tager masker ud forstår jeg, at det er mellem mærkerne til skuldermaskerne, som strikkes i rib. Men de nye masker skal strikkes i retstrik, er det rigtigt forstået?
03.11.2021 - 16:44DROPS Design svaraði:
Hej Amanda, ja det stemmer, de nye masker skal strikkes i retstrik.
04.11.2021 - 08:29
Hannamari skrifaði:
Mihin kaulanympäryksiin kaulurin koot s/m/l on suuniteltu?
13.03.2021 - 12:25DROPS Design svaraði:
Hei, neuletiheys on 21 s per 10 cm, eli esim. pienimmän koon ympärys on n. 60 cm. Työstä tulee joustinneuleen vuoksi hyvin joustava.
23.03.2021 - 16:30
Kisten Rasmussen skrifaði:
Først står der tag 8 masker ind jævnt fordelt ? Fordelt over skulder eller for stykke? Så står der luk 8 masker jævnt fordelt . Altså hvor ? Er det ikke det samme der skulle stå. ? Men nøjagtig hvor sjal de 8 masker tages ind ?
07.03.2021 - 11:09DROPS Design svaraði:
Hej Kirsten, de masker som skal tages ind, skal tages ind over de masker som strikkes i retstrik (ikke over det ribstrikkede) God fornøjelse!
09.03.2021 - 12:17
Jane Madsen skrifaði:
Hej. Der er noget jeg ikke forstår. Hvordan kan 136 blive til en krave som billedet viser. Det er jo rigtige mange masker. H Jane
09.01.2021 - 16:44DROPS Design svaraði:
Hej Jane, du starter oppe ved halsen og strikker rundt i rib. Husk at ribstrik trækker arbejdet sammen. God fornøjelse!
11.01.2021 - 12:58
Hannah K skrifaði:
Hejsa. Jeg kigger på mønstret og kan se at både firkant med prik og firkant uden prik betyder ret, kan det passe? Hilsen Hannah
08.11.2020 - 19:08DROPS Design svaraði:
Hej Hannah, tak for info, prikken skal være vrang og det er nu rettet. :)
09.11.2020 - 11:48
Grete Helen Bergendorff Steen skrifaði:
Hej Jeg vil gerne strikke drops 214-8. Men kun hassedisse, hvor meget garn skal jeg købe og findes det i mørkeblå. Og råhvid , så jeg kan strikke to hassedisse en i hver farve Med 😊 fra Grete Helen
07.10.2020 - 14:25
Grete Helen Bergendorff Steen skrifaði:
Hej Jeg vil gerne strikke drops 214-8. Men kun hassedisse, hvor meget garn skal jeg købe og findes det i mørkeblå. Og råhvid , så jeg kan strikke to hassedisse en i hver farve Med 😊 fra Grete Helen
07.10.2020 - 12:21
Mathilde skrifaði:
Ville man godt kunne strikke glatstrik i stedet for retstrik på for- og rygstykket?
29.09.2020 - 16:47
Roses so Red#rosessoredset |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð húfa og hálsskjól með köðlum og stroffprjóni úr DROPS Karisma.
DROPS 214-8 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (á við um hálsmál): Lykkjur eru auknar út hvoru megin við axlalykkjur þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu. Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með 1 lykkju slétt. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 116-128 lykkjur á hringprjóna 3 með Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 7 cm, snúið stykkinu þannig að rangan snúi út á framhlið og prjónað er síðan í hring í gagnstæða átt. Þetta er gert þar sem brjóta á uppá kantinn og réttan á að koma á réttu á kanti með uppábroti. Prjónið síðan A.1a (= 29-32 lykkjur) hringinn í umferð – sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð (= alls 4 sinnum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið A.1a á hæðina. Þegar húfan mælist ca 19-21 cm, stillið af að endað sé með heilli mynstureiningu af A.1a (málið er einnig með ca 5 cm uppábroti, prjónaðu e.t.v. lengra ef þú vilt hafa lengra uppábrot, nú eru eftir ca 8 cm að loka máli), prjónið A.1b yfir A.1a. Þegar A.1b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 12-16 lykkjur í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið þráðinn og festið vel. Húfan mælist ca 27-29 cm frá uppfitjunarkanti. Brjótið uppá ca neðstu 5 cm. ------------------------------------------------------ HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Það er fyrst prjónað í hring á hringprjóna og lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti. Axlalykkjur eru felldar af og hvort stykki er prjónað til loka fram og til baka á hringprjóna. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 120-128-136 lykkjur á hringprjóna 3,5 með Karisma. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 8 cm er skipt yfir á hringprjón 4 og prjónað er nú þannig (frá miðju ofan á öxl): Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð (látið merkiþráðinn sitja í stykkinu, það á síðar að mæla frá honum). Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt (= 6 lykkjur), setjið 1. prjónamerki, prjónið 46-50-54 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir, setjið 2. prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt (= 14 lykkjur), setjið 3. prjónamerki, prjónið 46-50-54 lykkjur garðaprjón og fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir, setjið 4. prjónamerki og endið með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið (= 8 lykkjur) = 104-112-120 lykkjur. Axlalykkjurnar eru lykkjur á milli 1. og 4. prjónamerkis og 2. og 3. prjónamerkis. Haldið áfram hringinn í stroffprjóni yfir axlalykkjur og garðaprjón yfir lykkjur á framstykki/bakstykki og aukið er út um 1 lykkju við hvert prjónamerki í hverri umferð. Aukið er út um 1 lykkjur á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og 1 lykkju á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri í hverri umferð). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Útauknar lykkjur eru síðan prjónaðar í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 5-6-7 cm frá merkiþræði = ca 160-176-196 lykkjur. Í næstu umferð eru axlalykkjurnar felldar af þannig: Fellið af fyrstu 6 lykkjur, prjónið garðaprjón eins og áður fram að 2. prjónamerki, fellið af næstu 14 axlalykkjur, prjónið garðaprjón eins og áður fram að 4. prjónamerki, fellið af síðustu 8 lykkjur. Prjónið nú hvort stykki til loka fyrir sig. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, yfir ca 66-74-84 lykkjur frá framstykki/bakstykki, JAFNFRAMT sem í 8. umferð er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Þ.e.a.s. það verða 2 lykkjur færri í 8. hverri umferð til loka. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 24-26-28 cm, mælt frá merkiþræði. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING! Prjónið hitt framstykki/bakstykki á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rosessoredset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.