Ana Ramirez skrifaði:
Antall masker er 144 for den størrelse jeg strikker. Hvis jeg deler med strikkefasthet får jeg 68 cm. Drt vil si 34 cm. Hvordan får de tallene på diagrammet stemmer? Det vil være 42 cm. Størrelse er 7/8. takk for forklaring.
26.10.2024 - 09:41DROPS Design svaraði:
Hei Ana. Usikker på hva du mener med når du skriver deler med strikkefastheten. Målene på målskissen viser hva plagget måler når det er ferdig (her er det strikket både vrangbord, glattstrikk, med forskjellige pinne str. og det er strikket en forhøyning bak). Følg målene som som står i oppskriften og da skal du få de målene som er skrevet på målskissen. mvh DROPS Design
28.10.2024 - 13:09
Ana Tamirez skrifaði:
Etter å bytte pinner skal man strikke en lengde. Hvilken tall skal man gå etter? I teksten står det noe annet enn på diagrammet.
25.10.2024 - 18:00DROPS Design svaraði:
Hei Ana. Strikk etter målene i oppskriften. mvh DROPS Design
28.10.2024 - 11:39
Julia skrifaði:
Hallo! Wenn ich die Hose mit Schlag Stricken will, würde ich ca. ab Kniehöhe nicht mehr abnehmen sondern wieder zunehmen, richtig? Was meinen Sie, reichen da auch 2 Maschen alle 2 cm?? \r\nHerzlichen Dank vorab für eine kurze Hilfe und für die Anleitung sowieso und besten Gruß! Julia
03.10.2024 - 18:25
Åsa Skog skrifaði:
Kan man få hjälp med att förstora mönstret så att det passar en 34/36?
06.04.2022 - 10:18DROPS Design svaraði:
Hej Åsa, her finder du bukser til damer :) Dam - Byxor & Shorts
08.04.2022 - 08:41
Senka Arsinovic skrifaði:
Hei rette vedkommende !\r\nJeg har et spørsmål i forbindelse med oppskrift på AUTUMN ADVENTURES TROUSERS modell me-066-bn . Jeg lurer hva betyr oppleggskanten midt foran .På forhånd takk\r\nMvh Senka Arsinovic
13.02.2022 - 16:00DROPS Design svaraði:
Hei Senka, Dette betyr at du måler midt foran, siden du har en forhøyning bak, og måler fra top kanten (oppleggskanten) og ned. God fornøyelse!
14.02.2022 - 07:10
Isabella skrifaði:
Hej! Jag förstår inte riktigt vad det är meningen att jag ska göra med de avmaskade maskorna i grenen? Ska det läggas upp nya maskor i starten på benen (10 per ben) ? Eller ska dessa sys ihop?
17.01.2022 - 22:11DROPS Design svaraði:
Hei Isabella. Når du er ferdig med begge beina, kan du sy åpningen mellom bena (der du felte 5+10+5 masker). mvh DROPS Design
18.01.2022 - 13:11
Inês Borralho skrifaði:
Estou a tentar perceber qual o número de novelos necessário para o tamanho 98/104 cm, não vejo/percebo quantos seriam necessários para o tamanho mais pequeno. Queria fazer uns longies pra fraldas reutilizáveis,há algum modelo específico ou este serve?
19.12.2021 - 02:01DROPS Design svaraði:
Bom dia, O número de novelos necessário do fio DROPS Merino Extra Fine é de 5 novelos para o tamanho 98/104 cm. Para o tamanho mais pequeno, é de 4. Para ver modelos de calças para tamanhos 0 - 4 anos, pode ver aqui https://www.garnstudio.com/search.php?action=browse&c=baby-trousers&lang=pt Bons tricôs! Boas Festas!
22.12.2021 - 09:24
Alina skrifaði:
Haarasauman ompeleminen ja viimeistely muutenkin on tainnut jäädä pois ohjeesta!?
05.11.2021 - 16:34
Anne Marie skrifaði:
Hei! Regner med at du har funnet ut av det, men til andre som kanskje lurer på det samme: De rette maskene etter kastet skal strikkes rett sammen, slik at når det økes med ett kast, så feller du en maske ved å strikke torett sammen. Det blir derfor ingen ekstra masker. 😊
20.02.2021 - 01:23
Anniken Stene Aspenes skrifaði:
Etter at hullraden i vrangborden er strikka, står det ingenting om hva man skal gjøre med de nye maskene (28-38 nye masker lagt opp). Det står bare at man skal fortsette på vrangborden. Når jeg strikka, strikka jeg kastene til hullraden sammen med den vrange masken ved siden av på ruden etter. Regner med at det ikke er meningen å strikke videre med disse maskene som en økning.
06.10.2020 - 17:22
Autumn Adventures Trousers#autumnadventurestrousers |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónaðar buxur fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð 12 mánaða – 10 ára.
DROPS Children 37-8 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 2 lykkjur (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Endurtakið við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um innan á skálm): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Buxurnar skiptast í 2 skálmar og stykkið er síðan prjónað i hring á sokkaprjóna. BUXUR: Fitjið upp 116 (124-128-136-144-152) lykkjur á hringprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 2½.cm prjónið eina gataumferð fyrir snúru þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 (4-0-0-0-0) lykkjur eru eftir, prjónið 2 (2-0-0-0-0) lykkjur slétt og 2 (2-0-0-0-0) lykkjur brugðið (= 28 (30-32-34-36-38) göt). Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið upphækkun aftan á buxum eins og útskýrt er að neðan. Til að buxurnar passi betur eru þær prjónaðar hærri að aftan en að framan. Þetta er gert með því að prjóna stuttar umferðir fram og til baka þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = mitt að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið 7 (7-8-8-9-9) lykkjur slétt fram hjá prjónamerki. Snúið, herðið að þræði og prjónið 14 (14-16-16-18-18) lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 21 (21-24-24-27-27) lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 28 (28-32-32-36-36) lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 35 (35-40-40-45-45) lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 42 (42-48-48-54-54) lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 49 (49-56-56-63-63) lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 56 (56-64-64-72-72) lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að prjónamerki mitt að aftan. Setjið 1 prjónamerki eftir 58 (62-64-68-72-76) lykkjur frá prjónamerki mitt að aftan (= mitt að framan). Þ.e.a.s. nú er 1 prjónamerki mitt að aftan og 1 prjónamerki mitt að framan. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar buxurnar mælast 17 (18-19-20-20-21) cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að framan, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki fyrir miðju að framan og fyrir miðju að aftan – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út þannig: Aukið út í annarri hverri umferð, alls 6 (6-6-6-7-7) sinnum = 140 (148-152-172-180) lykkjur. Þegar buxurnar mælast 21 (22-23-24-25-26) cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að framan er fellt af þannig: Fellið af 3 (3-3-3-4-4) (= miðja að aftan), prjónið 64 (68-70-74-78-82) lykkjur slétt, fellið af 6 (6-6-6-8-8) lykkjur fyrir miðju að framan, prjónið 64 (68-70-74-78-82) lykkjur slétt og fellið af þær 3 (3-3-3-4-4) lykkjur sem eftir eru fyrir miðju að aftan. Klippið frá. Setjið lykkjur í annarri hlið á stykki á 1 þráð eða hjálparprjón og prjónið skálm eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! SKÁLM: = 64 (68-70-74-78-82) lykkjur. Skiptið lykkjum á 4 sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón hringinn – setjið 1 prjónamerki innan á skálm. Þegar skálmin mælist 2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum með 2 (2-3-3-3½-4) cm millibili alls 8 (9-10-11-12-12) sinnum = 48 (50-50-52-54-58) lykkjur. Þegar skálmin mælist 18 (23-31-38-44-52) cm (nú eru eftir ca 6 cm að loka máli), prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 0 (2-2-0-2-2) lykkjur jafnt yfir = 48 (48-48-52-52-56) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 6 cm – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Skálmin mælist ca 24 (29-37-44-50-58) cm frá lykkjum sem felldar voru af. Setjið lykkjur af hinni skálminni á sokkaprjóna 4 og prjónið á sama hátt og fyrri skálm. SNÚRA: Klippið 2 þræði Merino Extra Fine ca 3½ metra. Tvinnið þræðina saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Byrjið mitt að framan og þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferð. Hnýtið slaufu mitt að framan. FRÁGANGUR: Saumið opið saman á milli skálma. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnadventurestrousers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 37-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.