DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Slippery Slopes Sweater

Prjónuð peysa í klukkuprjóni úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti. Stærð XS - XXL.

DROPS 217-14
DROPS Design: Mynstur ai-302
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL – XXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-400-400-450-500-550 g litur 03, perlugrár

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm fyrir klukkuprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 40 cm fyrir kant í hálsmáli.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4 (prjónað í klukkuprjóni).

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 62 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 6,2. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 5. og 6. hverja lykkju brugðið saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir öxl á berustykki áður en stykkið skiptist og framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig til loka. Framstykkið er styttra en bakstykkið. Að lokum eru prjónaðar ermar.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 66-66-70-74-74-78 lykkjur á hringprjón 6 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið og fækkið um 10 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 56-56-60-64-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 9 cm. Setjið 1 prjónamerki hér, stykkið er nú mælt héðan.

BERUSTYKKI:
Prjónið mynstur þannig: Prjónið A.1 (= 2 lykkjur) yfir fyrstu 6-6-6-8-8-8 lykkjur (= hálft bakstykki), A.2 (= 2 lykkjur), A.1 yfir 14 lykkjur, A.3 (= 2 lykkjur) (= öxl), A.1 yfir 10-10-12-14-14-16 lykkjur (= framstykki), A.2 yfir 2 lykkjur, A.1 yfir 14 lykkjur, A.3 yfir 2 lykkjur (= öxl) og A.1 yfir síðustu 4-4-6-6-6-8 lykkjurnar (= hált bakstykki).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1a á hæðina.
Þegar A.2 og A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.2a og A.3a á hæðina, þ.e.a.s. haldið áfram með útaukningu í 6. hverri umferð, útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í klukkuprjónsmynstur.
Þegar A.2a og A.3a hefur verið prjónað alls 8-9-9-10-11-12 sinnum á hæðina, eru 136-144-148-160-168-180 lykkjur í umferð. Prjónið A.1a yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 24-25-25-25-26-26 cm þar sem stykkið er lengst (mælt meðfram öxl), stillið af að næsta umferð sé umferð þar sem prjónað er brugðið.
Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og axlalykkjur eru felldar af þannig:
Prjónið 26-28-28-32-34-36 lykkjur klukkuprjónsmynstur, 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= hálft bakstykki), setjið næstu 15 lykkjur á þráð (prjónið þær fyrst), prjónið 1 lykkju garðaprjón, prjónið 51-55-57-63-67-73 lykkjur klukkuprjónsmynstur, 1 lykkja garðaprjón (= framstykki), setjið næstu 15 lykkjur á þráð (prjónið þær fyrst), prjónið 1 lykkju garðaprjón og prjónið klukkuprjónsmynstur yfir síðustu 25-27-29-31-33-37 lykkjur (= hálft bakstykki).
Klippið frá.

Geymið lykkjur fyrir framstykki á prjóninum.

BAKSTYKKI:
= 53-57-59-65-69-75 lykkjur.
Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón A.4 (= 2 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir (þ.e.a.s. klukkuprjónsmynstur byrjar og endar með 1 klukkuprjónslykkju brugðið) og endar með 1 lykkju garðaprjón.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 12-13-14-15-16-17 cm frá skiptingu, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, þau merkja handveg.
Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, frá prjónamerki í hálsmáli, fellið af með sléttum lykkjum, uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja (þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur og herði á stykkinu).

FRAMSTYKKI:
Prjónið yfir 53-57-59-65-69-75 lykkjur á framstykki á sama hátt og á bakstykki, en fellið af þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm frá prjónamerki í hálsmáli (framstykkið er 21 cm styttra en bakstykkið).

FRÁGANGUR:
Byrjið við prjónamerkin í hlið og saumið bakstykkið og framstykkið saman frá prjónamerkjum og ca 20-21-22-23-24-25 cm niður. Neðstu 20 cm = klauf.

VINSTRI ERMI:
Byrjið í hlið á framstykki, við prjónamerkið og prjónið upp frá réttu þannig: Prjónið upp 1 lykkju, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið upp 1 lykkju, prjónið upp 1 lykkju *, endurtakið frá *-* alls 6-6-7-7-8-8 sinnum, setjið til baka 15 lykkjur af þræði af vinstra prjóni og prjónið klukkuprjón yfir þessar lykkjur (þetta er umferð sem er prjónuð slétt), prjónið upp 1 lykkju frá bakstykki, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið upp 1 lykkju, prjónið upp 1 lykkju *, endurtakið frá *-* alls 6-6-7-7-8-8 sinnum niður að prjónamerki í hlið á bakstykki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið upp 1 lykkju = 42-42-46-46-50-50 lykkjur (uppslátturinn er ekki talinn sem eigin lykkja). Í næstu umferð er prjónað þannig: * prjónið 1 lykkju slétt, prjónið uppsláttinn og næstu lykkju brugðið saman *, endurtakið frá *-* yfir næstu 12-12-14-14-16-16 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið klukkuprjón yfir 15 lykkjur eins og áður (þessi umferð er prjónuð brugðið), * prjónið 1 lykkju slétt, prjónið uppsláttinn og næstu lykkju brugðið saman *, endurtakið frá *-* yfir næstu 14-14-16-16-18-18 lykkjur. Prjónið síðan hringinn yfir allar lykkjur eftir A.1a. Þegar ermin mælist 43-43-43-44-44-44 cm, fellið af með sléttum lykkjum, uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja (þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki stífur og herði á stykkinu).

HÆGRI ERMI:
Prjónið upp lykkjur á sama hátt og á vinstri ermi, en byrjað er á bakstykki og lykkjur eru prjónaðar upp frá réttu upp að lykkjum af þræði.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = prjónið frá réttu
symbols = prjónið frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá hægri prjón, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið
symbols = uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman

symbols = uppslátturinn og lykkja er prjónað brugðið saman

symbols = prjónið 3 lykkjur í slétta lykkju og uppsláttinn þannig: Prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar, sleppið lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni = 3 lykkjur
symbols = brugðin lykkja
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (60)

country flag Jane Evans wrote:

Me again.. sorry! I've done the yoke and separated the shoulders onto stitch holders. But now it tells me to cut the yarn? So do I then move all the stitches for the back on to one needle and start the next row? Thanks

10.10.2022 - 22:33

DROPS Design answered:

Hi Jane, You are working just the back piece stitches, which are on the circular needle (the front piece stitches are either left on the needle and not worked or you can place them on a thread if that is easier). Work back and forth over the back piece, starting from the right side. Happy knitting!

11.10.2022 - 06:57

country flag Jane Evans wrote:

Hi. Thanks for thr answer... but I've done it all vertically once... just not sure how to out stitches properly to make sure I increase at the right place? Thanks!

05.10.2022 - 23:44

DROPS Design answered:

Dear Mrs Evans, maybe this video could help you, we are showing how to work the diagrams A.1, A.2 and A.3 and this one how to continue working the diagrams. Hope it can help, happy knitting!

06.10.2022 - 08:30

country flag Jane Evans wrote:

Please help! I'm stuck on the yoke. I've followed the chart for the first time and now about to start again, but just not sure where the increases should be. I'm really struggling. It was easy when I could count stitches between the increases, but now I'm stuck!

30.09.2022 - 15:50

DROPS Design answered:

Dear Jane, if you are referring to A.1a, it's just a shortened version of A.1 and it doesn't affect the increases, which are worked exactly as before (in A.2 and A.3); A.2 and A.3 are still being worked until you complete them vertically, After working A.1 once vertically, continue working A.1a over A.1, and repeat as many times as necessary until A.2 and A.3 have been completed vertically. Happy knitting!

03.10.2022 - 01:27

country flag Sabine wrote:

Vielen Dank für die schnelle Antwort, aber sie beantwortet meine Frage nicht wirklich. Für die Passe stricke ich 10 Reihen A.2 (A.1 und A.3 natürlich auch parallel), dann 8 Mal A.2a. Das sind 58 Reihen (10+8×6), das ergibt laut Maschenprobe über 18 cm. Wenn dann noch die 9 cm Halsblende dazu kommen, bin ich schon bei 27 cm. Kann es sein, dass die Halsblende nicht mitgerechnet wird und es heißen müsste, weiter A.1a stricken bis die Arbeit "ab Markierung" eine Länge von 24 cm hat?

04.03.2022 - 12:21

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, schauen Sie mal die Maßskizze, dort am Schulter finden Sie diese 24 cm = vom Hals bis Verteilung. Viel Spaß beim stricken!

04.03.2022 - 16:05

country flag Sabine wrote:

Ich stricke in xs und habe ein Problem bei der Passe. Wenn ich A.1a und A.2a 8 Mal in der Höhe gestrickt habe, ist die Arbeit viel länger als angegeben. Die 24 cm erreiche ich schon nach 5 Mal. Die Maschenprobe passt ungefähr. Wird ab Maschenanschlag gemessen oder ab Markierung?

04.03.2022 - 09:01

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, was meinen Sie mit "ungefähr"? Ihre Maschenprobe muss stimmen, damit die Höhe auch wie in der Maßskizze stimmen - hier lesen Sie mehr. Die 24 cm werden dann entlang der Schulter gemessen. Viel Spaß beim stricken!

04.03.2022 - 11:25

country flag Elin Lønne wrote:

Ved start på bærestykket: Første maske på A1, A2, og A3 skal strikkes med enkel rettmaske. Er det feil? Skal man begynne på omg 3?

24.02.2022 - 09:36

DROPS Design answered:

Hei Elin. Forsett slik at patentmønstret stemmer overens, fra halskant til bærestykke. mvh DROPS Design

28.02.2022 - 13:28

country flag Elin Lønne wrote:

Når jeg øker blir det feil på venstre side front (A3)og høyre side bak(A3) . Økningen går ikke langs skulderen, men rett ned. Hva er feil?

24.02.2022 - 09:33

country flag Elin Lønne wrote:

(DROPS 217-14)Har strikket hele bærestykket feil, så prøver igjen, men jeg skjønner ikke hvor jeg har feilet( Økningen på venstre front og høyre bak, går FEIL vei) Lurer også på: hvor på diagrammet starter man etter å ha strikket ferdig halsen? 1. omg er jo med enkel rettmaske. Det skal man vel ikke? Begynne rett på omgang 3? Håper på snarlig svar, mister jo håret av dette :-)

24.02.2022 - 08:52

DROPS Design answered:

Hei Elin. Har du sett hjelpevideoene til denne genseren? Av egen erfaring ble bruken av maskemarkører en stor hjelp. Lett å øke i feil maske (= økningene går feil vei), men med å markere hvilken maske det skal økes i etter hver omgang gikk det fint. Når du er ferdig med halskanten, 9 cm, fortsetter du med A.1 og da slik det er forklart i oppskriften, (strikk A.1 over de første 6-6-6-8-8-8 maskene, A.2, A.1 over 14 masker, A.3, A.1 over 10-10-12-14-14-16 masker, A.2 over 2 masker, A.1 over 14 masker, A.3 over 2 masker, og A.1 over de siste 4-4-6-6-6-8 maskene. Når A.1 er strikket 1 gang i høyden, gjentas A.1a videre i høyden). mvh DROPS Design

28.02.2022 - 13:26

country flag Liselotte wrote:

Tak for svar nedenfor. Men man strikker jo omslagene væk efter at man har strikket/slået masker op jf. beskrivelsen: “På næste omgang strikkes der således: *strik 1 maske ret, strik omslaget og næste maske vrang sammen*, gentag fra *-* “\r\nSå er der jo ingen omslag til at fortsætte i A1 på næste pind.\r\nDet forstår jeg altså ikke. Håber i kan hjælpe.\r\nMange tak og venlig hilsen\r\nLiselotte

12.02.2022 - 14:12

country flag Liselotte wrote:

Jeg har problemer med ærmet. I 3 sidste linje skriver i “Fortsæt rundt over alle masker efter A.1a.” men jeg har jo ingen omslag på de første 14 og de sidste 16 masker? Kun på dem i midten fra bærestykket, hvor jeg har strikket patent? Jeg strikker str. M. Kan i hjælpe? Mange tak

06.02.2022 - 21:41

DROPS Design answered:

Hej Liselotte, jo samtidigt som du strikkede masker op på hver side, lavede du også omslag efter hver 2.maske, det er de omslag du strikker sammen med ret masken. God fornøjelse!

09.02.2022 - 10:07