Alexandra Spindlberger skrifaði:
Wunderschöner Norwegerpulli! Alexandra
16.09.2024 - 15:53
Gaetane skrifaði:
Bonjour ! Concernant le diagramme ce signe ( symbols = 1 motif à répéter en hauteur; répéter ces tours en hauteur) on se trouve à le faire quand ? Rien l indiqué sur le patron ? Serait-ce qu une fois A3 termine en hauteur on re fait A3 à partir du simbole ** ? Merci !
11.06.2024 - 14:17DROPS Design svaraði:
Bonjour Gaetane, lorsque vous avez tricoté 1 fois A.3 en hauteur, vous répétez les derniers rangs encadrés par l'étoile. Bon tricot!
12.06.2024 - 08:01
Sara skrifaði:
Hva skjer med kantmaskene når jeg begynner med hælfellingen? Er de 7 maskene inkludert kantmasken?
18.01.2021 - 23:41DROPS Design svaraði:
Hei Sara. De strikkes som før til hælfellingen er ferdig. Ja, de er inkludert. mvh DROPS design
27.01.2021 - 12:39
North Star Socks#northstarsocks |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónaðir sokkar fyrir börn með norrænu mynstri úr DROPS Karisma. Stærð 24 - 37.
DROPS Children 37-4 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3 og A.4). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 11. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 10. og 11. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um tá): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkjuna í A.2 þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan A.2, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum natur, prjónið miðjulykkjuna í A.2 eins og áður, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman með litnum natur (= 2 lykkjur færri). HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-6-6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-6-6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 4-5-5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 4-5-5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 5-7-7-9-9 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. SOKKUR: Fitjið upp 44-44-48-52-52 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum dökk grár DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2-2-3-3-3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-4-0-4-4 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 = 40-40-48-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið A.1 (= 4 lykkjur) hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 5-5-6-6-6 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 (= 3 lykkjur), A.3 (= 17-17-21-21-21 lykkjur), A.2 (= 3 lykkjur) og A.4 (= 17-17-21-21-21 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar síðasta umferð í A.4 er eftir (A.3 er ekki lokið), fækkið um 4-0-4-0-0 lykkjur jafnt yfir 17-17-21-21-21 lykkjur í A.4 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður án úrtöku) = 36-40-44-48-48 lykkjur á prjóni og stykkið mælist ca 13-13-15-15-15 cm. Setjið lykkjur í A.2 + A.3 + A.2 á þráð (= 23-23-27-27-27 lykkjur á fæti á þræði). Nú eru 13-17-17-21-21 lykkjur eftir á prjóni fyrir hæl. Fitjið upp 1 nýja lykkju í lok síðustu umferðar með litnum dökk grár, snúið, prjónið 1 lykkju slétt með litnum dökk grár, prjónið A.5 yfir fyrstu 12-16-16-20-20 lykkjur á hæl, prjónið fyrstu lykkju í A.5 (þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins í hvorri hlið) og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar með litnum dökk grár – nýjar lykkjur eru kantlykkjur og eru prjónaðar með litnum dökk grár = 15-19-19-23-23 lykkjur. Haldið áfram með A.5 fram og til baka yfir 13-17-17-21-21 hællykkjur og kantlykkjur í litnum dökk grár þar til hællinn mælist 4½-4½-5-5½-5½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. Það á að nota prjónamerkið aðeins síðar til að mæla lengd á fæti frá. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan (A.5 heldur jafnframt áfram ásamt því að lykkjum er fækkað fyrir hæl). Eftir hælúrtöku er fyrsta umferð prjónuð þannig: Haldið áfram með A.5 yfir 5-7-7-9-9 hællykkjur, prjónið upp 10-10-10-12-12 lykkjur meðfram hlið á hæl, setjið til baka 23-23-27-27-27 lykkjur af þræði á fæti á prjóninn og haldið áfram með A.2 + A.3 + A.2 eins og áður yfir þessar 23-23-27-27-27 lykkjur og prjónið upp 10-10-10-12-12 lykkjur meðfram hinni hlið á hæl = 48-50-54-60-60 lykkjur. Haldið áfram með mynstur hringinn með A.5 undir fæti, A.3 á fæti og A.2 í hvorir hlið. JAFNFRAMT er lykkjum nú fækkað hvoru megin við 21-21-25-25-25 miðjulykkjur á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan 21-21-25-25-25 miðjulykkjum á fæti slétt saman með litnum natur og 2 fyrstu lykkjur á eftir 21-21-25-25-25 miðjulykkjum snúnar slétt saman með litnum natur. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-6-6-8-8 sinnum = 36-38-42-44-44 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 10-12-13-15-17 cm frá prjónamerki á hæl mælt undir fæti (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli í öllum stærðum, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd). Í næstu umferð eru prjónaðar sléttar lykkjur með litnum dökk grár yfir 17-17-21-21-21 miðjulykkjur á fæti (þær lykkjur sem eftir eru halda áfram eins og áður). Prjónið nú síðan til loka þannig: Haldið áfram með A.5 undir fæti eins og áður, haldið áfram með A.2 í hvorri hlið á sokknum og prjónið A.5 yfir 17-17-21-21-21 lykkjur á fæti. Þegar stykkið mælist ca 11-13-14-16-18 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli), fækkið nú lykkjum fyrir tá hvoru megin við miðjulykkjur í A.2 í hvorri hlið – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-5-4-4-4 sinnum og síðan í hverri umferð alls 2-2-4-4-4 sinnum = 8-10-10-12-12 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 4-5-5-6-6 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þræðina í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 15-17-18-20-22 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #northstarsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 37-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.