DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

North Star

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð 2 - 12 ára.

DROPS Children 37-1
DROPS Design: Mynstur me-064-bn
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-250-300-300-350 g litur 04, milligrár
100-100-100-100-100-150 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 3 lykkjur.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of stíft, þá kemur stykkið til með að verða of stutt og handvegur of lítill – þetta er hægt að jafna til með því að prjóna 1 auka umferð með jöfnu millibili í einingum með einum lit.
Ef prjónað er of laust, verður stykkið of langt og handvegur of stór, þá er hægt að prjóna 1 umferð færri með jöfnu millibili í einingum með einum lit.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig (5 næstu lykkjur eru prjónaðar með milligrár): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið lykkju með prjónamerki slétt, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá uppá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSI:
Fitjið upp 72-72-76-76-80-80 lykkjur á hringprjón 3 með milligrár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið).
Haldið svona áfram með stroff í 3 cm.
Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 24-28-28-32-32-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 96-100-104-108-112-116 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið 0-0-2-0-2-4 umferðir sléttprjón með milligrár.
Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið síðan A.1 hringinn (= 24-25-26-27-28-29 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING:
Ör-1:
Aukið út 30-32-34-36-38-40 lykkjur jafnt yfir = 126-132-138-144-150-156 lykkjur (nú er pláss fyrir 21-22-23-24-25-26 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum).
Ör-2:
Aukið út 42-36-44-38-46-40 lykkjur jafnt yfir = 168-168-182-182-196-196 lykkjur (nú er pláss fyrir 12-12-13-13-14-14 mynstureiningar A.1 með 14 lykkjum).
Ör-3:
Aukið út 28-36-34-38-36-44 lykkjur jafnt yfir = 196-204-216-220-232-240 lykkjur (nú er pláss fyrir 49-51-54-55-58-60 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum).
Ör-4:
Aukið út 16-20-20-20-20-24 lykkjur jafnt yfir = 212-224-236-240-252-264 lykkjur (nú er pláss fyrir 53-56-59-60-63-66 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum).
Prjónið áfram þar til 1 umferð er eftir í A.1.
Stykkið mælist ca 15-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við háls.
Í síðustu umferð í A.1 skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið 31-33-35-36-38-40 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 44-46-48-48-50-52 lykkjur á 1 þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 62-66-70-72-76-80 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 44-46-48-48-50-52 lykkjur á 1 þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 31-33-35-36-38-40 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 136-144-152-160-168-176 lykkjur.
Prjónið A.2 hringinn (nú er pláss fyrir 17-18-19-20-21-22 mynstureiningar A.2 með 8 lykkjur).
JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-5 í A.2, auki út um 8-0-4-8-0-4 lykkjur jafnt yfir = 144-144-156-168-168-180 lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 alveg eins (nú er pláss fyrir 24-24-26-28-28-30 mynstureiningar A.3 með 6 lykkjum).
A.3 er endurtekið á hæðina þar til stykkið mælist ca 12-16-19-19-22-25 cm frá skiptingu, nú eru eftir ca 7-7-7-10-10-10 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið A.4 hringinn (= 36-36-39-42-42-45 mynstureiningar A.4 með 4 lykkjum).
Haldið svona áfram með mynstur þar til A.4 hefur verið prjónað til loka.
Prjónið 1 umferð slétt með milligrár og aukið JAFNFRAMT út 32-32-32-36-36-36 lykkjur jafnt yfir = 176-176-188-204-204-216 lykkjur. Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið).
Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!

ERMAR:
Setjið 44-46-48-48-50-52 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-8 lykkjum undir ermi = 50-52-54-56-58-60 lykkjur.
Setjið nú 2 prjónamerki í stykkið (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar):
Byrjið mitt undir ermi á milli 6-6-6-8-8-8 lykkja, setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju á eftir miðju, teljið 24-25-26-27-28-29 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju = 24-25-26-27-28-29 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónamerki mitt undir ermi er notað þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Prjónamerki mitt á ermi er notað þegar telja á út hvar mynstrið á að byrja.
Prjónið síðan MYNSTUR jafnframt því sem prjónuð er ÚRTAKA mitt undir ermi eins og útskýrt er að neðan.

MYNSTUR:
Byrjið í umferð mitt undir ermi á undan lykkju með prjónamerki í og prjónið A.2 hringinn – teljið út frá miðju á ermi hvar mynstrið á að byrja – lykkja með prjónamerki í mitt á ermi á nú að passa með lykkju merktri með stjörnu í A.2 og það kemur til með að fækka lykkjum undir ermi jafnframt því sem mynstrið er prjónað.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 hringinn alveg eins. A.3 er endurtekið á hæðina þar til ermin mælist 12-17-21-23-26-30 cm, en endið eftir umferð með «doppum».
Nú er A.4 prjónað í hring þar til A.4 hefur verið prjónað til loka.

ÚRTAKA:
JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2½-3-4-4½-4½ cm millibili alls 6-7-7-7-7-8 sinnum.
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka og úrtöku er lokið, eru 38-38-40-42-44-44 lykkjur eftir í umferð og ermin mælist ca 16-21-25-29-32-36 cm frá skiptingu. Afgangur af ermi er prjónaður með milligrár.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-8-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 19-24-28-33-36-40 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina alveg eins.

Mynstur

symbols = natur
symbols = milligrár
symbols = útaukningsumferð
symbols = miðjulykkja
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 37-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Lues wrote:

Ik heb 8 steken in 1 sterk gemeerderd, lijkt wat vreemd. ik ga t zien.

20.12.2023 - 19:12

country flag Lies wrote:

In vervolg op de 8 nieuw op te zetten steken: ik ben erachter. Opnemen en gewoon meebreien in het lijf. Staat ook goed beschreven. Ik had niet goed geteld.

20.12.2023 - 12:26

country flag Lies wrote:

Ik moet 8 nieuwe steken opnemen = in dezijkant van de mouw staat in de patroonbeschrijving. Als ik ze opneem in de laatste steek van de mouw heb ik 8 steken extra in de mouw, als ik ze opneem in delaatste steek van de achterkant heb ik daar 8 steken teveel. waar laat ik deze steken?

20.12.2023 - 11:40

DROPS Design answered:

Dag Lies,

Bij het scheiden van het werk voor het lijf en de mouwen heb je 8 steken opgezet onder de arm (/oksel). In die 8 steken, neem je nu 8 nieuwe steken op. In elke steek 1 steek opnemen.

20.12.2023 - 18:44

country flag Brigitte Schürmann wrote:

Guten Tag, ich möchte den Pullover in Größe 134 mit Drops Big Merino stricken. Können Sie mir bei der Umrechnung helfen?? Herzlichen Dank Brigitte Schürmann

16.12.2023 - 12:08

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schürmann, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Maschenprobe bzw Anfrage umrechnen, herzlichen Dank für Ihr Verständnis. Hier finden Sie aber Modellen, die Ihnen damit helfen können. Viel Spaß beim stricken!

18.12.2023 - 08:21

country flag Veronique Theron-Pignoux wrote:

Bonjour ,je ne comprends pas du tout les explications pour commencer les manches .les marqueurs doivent se placer entre les mailles ou dans les mailles? Vous dites que celui du dessus servira pour commencer le jacquard ,alors que je vais le commencer normalement SOUS la manche la ou j'ai monte les 6 mailles non? vous dites /en commençant le tour sous la manche etc.... Pouvez vous m'eclairer s'il vous plait? Merci beaucoup

03.09.2023 - 16:25

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Theron-Pignou, le marqueur sous la manche sert effectivement de repère au début des tours (et aux diminutions), mais pour centrer le motif sur le milieu du dessus de la manche, vous allez compter à partir de la maille avec le marqueur au milieu du dessus de la manche - dans cette leçon, nous expliquons comment centrer un diagramme, vous saurez ainsi comment tricoter A.2 et A.3. Bon tricot!

04.09.2023 - 08:43

country flag Line Normandeau wrote:

MANCHES (3e grandeur) J’ai repris mes 48 mailles en attente. J’ai relevé 6 mailles Ce qui me donne 54 mailles A.2 = 8 mailles 54 n’est pas divisible par 8 Je fais quoi?

06.07.2023 - 20:18

DROPS Design answered:

Bonjour Line, parce que vous diminuez progressivement de mailles sous la manche, le jacquard ne sera pas ideal, mais cela ne sera pas tres visible. Lisez les parties MANCHES et JACQUARD avant d'entammer votre travail. Comment proceder quand le nombre de mailles ne correspond pas au nombre de fois que l'on répète le diagramme, regardez la video ICI. Bon tricot!

15.07.2023 - 20:18

country flag Line Normandeau wrote:

Après avoir repris les mailles en attente pour la manche, relevé 6 mailles, placer les marqueurs, vous dites de commencer à tricoter à partir de la maille placée avant le 1er marqueur. Après avoir relevé les 6 mailles, mon fil ne se retrouve pas au bon endroit pour commencer à tricoter à l’endroit indiqué. J’ai demandé l’avis d’expertes et nous sommes vraiment dans l’impasse.

06.07.2023 - 12:15

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Normandeau, le tour doit commencer au milieu des 6 mailles sous la manche (soit 3 mailles avant les mailles en attente et 3 mailles après les mailles en attente); remettez vos mailles sur l'aiguille et relevez les mailles pour commencer le tour au milieu sous la manche pour commencer le tour au bon endroit et surtout par la bonne maille du diagramme. Bon tricot!

06.07.2023 - 15:07

country flag Allison wrote:

What is the length of the back for this pattern in size 122/128?

27.09.2022 - 15:48

DROPS Design answered:

Dear Allison, the jumper measures ca 48 cm in size 122/128 cm from shoulder towards bottom edge. Happy knitting!

27.09.2022 - 16:06

country flag Kerstin Hökerberg wrote:

I diagram A.1 och A.2 skall man öka ett antal maskor på 5 olika varv markerade med pil. Alla dessa varv stickas med endast en färg. I diagram A.2 ( 8 maskor) är ökningsvarvet markerat på ett varv med två färger. Det verkar inte vara riktigt. Skall inte ökningen göras på diagrammets sista varv, som är enfärgat?

23.04.2022 - 10:58

DROPS Design answered:

Hei Kerstin. Når du har økt ved pil 1 til 4 har du økt med mange masker, ved pil 5 skal det bare økes et fåtall masker (i noen str, skal det ikke økes), da går det fint å øke på en omgang med 2 farger. mvh DROPS Design

25.04.2022 - 10:48

country flag Carmen wrote:

Hallo \r\nIch habe da mal eine Frage. Ich bin jetzt bei den Armen und ich weiß nicht wie ich das Muster berechnen soll damit die masche mit den Stern überein stimmt. 60 maschen durch 8maschen von Mustersatz geht nicht das ergibt 7,5

28.03.2022 - 22:42

DROPS Design answered:

Liebe Carmen, diese Lektion wird Ihnen damit helfen, das Muster an der Mitte vom Ärmel zu stricken - beachten Sie nur daß das Muster wird nicht in der Runde passen, dh am Anfang/Ende der Runden wird das Muster nicht passen, und wegen Abnahmen auch nicht mehr, aber das Muster soll immer in der Höhe stimmen (und nicht verschoben werden). Viel Spaß beim stricken!

29.03.2022 - 09:10