Jo Busby wrote:
I am trying to print this pattern but the picture and pattern diagrams are not downloading or printing. Help please.
27.09.2021 - 20:27DROPS Design answered:
Dear Jo, it must have been a temporary problem, as it works just fine in Europe now. Can you please try again? Thank you for your patience.
27.09.2021 - 20:53Lis-Beth Engström wrote:
Hur ska jag fästa alla lösa vita trådar vid framkanten så att det blir snyggt?
04.01.2021 - 17:45DROPS Design answered:
Hej Lis-Beth, Her ser du forskellige måder at gøre det på. Vælg den som du synes er pænest: Fästa trådar
08.01.2021 - 11:12Svanhove wrote:
Can we knit it in round, with a steek method ? And how much yarn would I need ? Regards
11.11.2020 - 09:42DROPS Design answered:
Dear Mrs Svanhove, you can knit it in the round if you rather like to, but we unfortunately are not able to know how much yarn you would need; you might have to buy at least one extra ball of the base colour to be sure you will have enough. Happy knitting!
12.11.2020 - 08:40
North Star Jacket |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð 2 - 12 ára.
DROPS Children 37-2 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT Í KANTI Í HÁLSI: Þegar kantur í hálsi mælist ca 1½ til 2 cm, fellið af fyrir 1 hnappagati á hægri hlið á kanti í hálsi (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur brugðið saman, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 74 lykkjur), mínus kantlykkjur/kantlykkjur að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 25) = 2,9 lykkjur. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju, ekki er aukið út yfir kantlykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast, þá kemur flíkin til með að verða of stutt og handvegur of lítill – þetta er hægt að jafna til með því að prjóna auka umferð með jöfnu millibili í einlitu einingunum. Ef prjónað er of laust, þá verður flíkin of löng og handvegur of stór, þá er hægt að prjóna færri umferðir með jöfnu millibili í einlitu einingunum. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig (5 næstu lykkjur eru prjónaðar með dökk grár): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið lykkju með prjónamerki slétt, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá uppá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Lykkjur fyrir kant að framan eru felldar af og afgangur af berustykki er prjónað fram og til baka með 1 kantlykkju í hvorri hlið við miðju að framan. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSI: Fitjið upp 84-84-88-88-92-92 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með dökk grár. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 5 lykkjurnar (hér á að sauma niður kant að framan síðar), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 74-74-78-78-82-82 lykkjur og aukið JAFNFRAMT út 25-29-29-33-33-37 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚTAUKNING, prjónið síðan stroff eins og áður yfir næstu 4 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 4. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 5 lykkjurnar, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir í umferð (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 99-103-107-111-115-119 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki á eftir kantlykkju í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið 0-0-2-0-2-4 umferðir sléttprjón fram og til baka með dökk grár og með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 24-25-26-27-28-29 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið fyrstu lykkju í A.1 (þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Kantlykkjur eru prjónaðar í sama lit og fyrsta/síðasta lykkja í mynstri ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING: Ör-1: Aukið út 30-32-34-36-38-40 lykkjur jafnt yfir = 129-135-141-147-153-159 lykkjur (nú er pláss fyrir 21-22-23-24-25-26 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum). Ör-2: Aukið út 42-36-44-38-46-40 lykkjur jafnt yfir = 171-171-185-185-199-199 lykkjur (nú er pláss fyrir 12-12-13-13-14-14 mynstureiningar A.1 með 14 lykkjum). Ör-3: Aukið út 28-36-34-38-36-44 lykkjur jafnt yfir = 199-207-219-223-235-243 lykkjur (nú er pláss fyrir 49-51-54-55-58-60 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). Ör-4: Aukið út 16-20-20-20-20-24 lykkjur jafnt yfir = 215-227-239-243-255-267 lykkjur (nú er pláss fyrir 53-56-59-60-63-66 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). Prjónið áfram þar til 1 umferð er eftir í A.1. Stykkið mælist ca 15-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við háls. Í síðustu umferð í A.1 skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 31-34-36-37-39-41 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 44-46-48-48-50-52 lykkjur á 1 þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 63-67-71-73-77-81 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 44-46-48-48-50-52 lykkjur á 1 þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 32-34-36-37-39-41 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 139-147-155-163-171-179 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (með natur): 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.2 (þannig að mynstrið byrji og endi eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram A.2 fram og til baka. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-5 í A.2, er aukið út um 8-0-4-8-0-4 lykkjur jafnt yfir = 147-147-159-171-171-183 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 alveg eins (nú er pláss fyrir 24-24-26-28-28-30 mynstureiningar A.3 með 6 lykkjum). A.3 er endurtekið á hæðina þar til stykkið mælist ca 12-16-19-19-22-25 cm frá skiptingu, nú eru eftir ca 7-7-7-10-10-10 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.4 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 36-36-39-42-42-45 mynstureiningar A.4 með 4 lykkjum), prjónið fyrstu lykkjuna í A.4 og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.4 hefur verið prjónað til loka. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu með dökk grár og aukið JAFNFRAMT út 33-33-33-37-37-37 lykkjur jafnt yfir = 180-180-192-208-208-220 lykkjur. Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjóna 3. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! ERMAR: Setjið 44-46-48-48-50-52 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Setjið 2 prjónamerki í stykkið jafnframt því sem síðasta umferð í A.1 er prjónuð: Byrjið mitt undir ermi, á milli 6-6-6-8-8-8 lykkja, prjónið fyrstu lykkju eftir miðju, setjið eitt prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 24-25-26-27-28-29 lykkjur, prjónið næstu lykkju og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju og prjónið síðustu 24-25-26-27-28-29 lykkjur í umferð. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið mitt á ermi er notað þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónamerki mitt á ermi er notað þegar telja á út hvar mynstrið byrjar. Prjónið síðan MYNSTUR jafnframt því sem prjónuð er ÚRTAKA mitt undir ermi eins og útskýrt er að neðan: MYNSTUR: Byrjið í umferð mitt undir ermi á undan lykkju með prjónamerki í og prjónið A.2 hringinn – teljið út frá miðju á ermi hvar mynstrið á að byrja – lykkja með prjónamerki í mitt á ermi á nú að passa með lykkju merktri með stjörnu í A.2 og það kemur til með að fækka lykkjum undir ermi jafnframt því sem mynstrið er prjónað. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 hringinn alveg eins. A.3 er endurtekið á hæðina þar til ermin mælist 12-17-21-23-26-30 cm, en endið eftir umferð með «doppum». Nú er A.4 prjónað í hring þar til A.4 hefur verið prjónað til loka. ÚRTAKA: JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2½-3-4-4½-4½ cm millibili alls 6-7-7-7-7-8 sinnum. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka og úrtöku er lokið, eru 38-38-40-42-44-44 lykkjur eftir í umferð og ermin mælist ca 16-21-25-29-32-36 cm frá skiptingu. Afgangur af ermi er prjónaður með dökk grár. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-8-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 19-24-28-33-36-40 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp frá réttu meðfram framstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni ca 80-92-100-112-120-132 lykkjur á hringprjón 3 með dökk grár (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í ca 2½ til 3 cm – stillið af að kantur að framan sé jafn breiður og breiddin á 5 lykkjum sem felldar voru af við kant í hálsi. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið alveg eins og vinstri kantur að framan, en eftir ca 1 til 1½ cm, fellið af fyrir 5-5-5-6-6-6 hnappagötum jafnt yfir. Neðsta hnappagatið á að vera ca 2 til 3 cm frá neðri kanti. Það er fallegast að fella af í brugðinni einingu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og síðan að prjóna 2 lykkjur brugðið saman. FRÁGANGUR: Saumið kant í hálsi fallega við kant að framan með saum inn að röngu. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |