Gunilla Nordlander skrifaði:
Vet inte om jag tyder mönsterdiagrammet A1 helt fel. Men jag tycker inte det stämmer överens med hur det ser ut på bilden av koftan. Om jag skulle sticka efter diagrammet skulle jag sticka 4v slätstickning, 2 v rät/avig, 1 v slätstickning, 2v rät/avig, 5v slätstickning. Börjar jag sedan om igen på diagrammet skulle det bli 9v slätstickning. På bilden tycker jag att det ser ut som 5v slätstickning, 3v rät/avig, 1v slätstickning, 3v rät/ avig.
21.08.2020 - 16:12
Silke skrifaði:
Schlicht und doch interessant
06.06.2020 - 14:21
Heidi Nielsen skrifaði:
Vintage Cardiganen minder mig om 40`ernes England på landet så jeg synes den skal hedde : Vintage
05.06.2020 - 18:07
Carolina Björkman skrifaði:
Spännande mönster och härlig färg
04.06.2020 - 15:46
Mustard Seeds Cardigan#mustardseedscardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað með áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 215-17 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 111 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 17) = 6,4. Í þessu dæmi eru prjónaðar til skiptis ca 5. og 6. hver lykkja og 6. og 7. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur eins og áður (prjónamerkið situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan inn í mynstur. HNAPPAGAT (á við um hægri kant að framan og kant í hálsmáli þegar flíkin er mátuð): Fellið af fyrir 5-5-5-6-6-6 hnappagötum í hægri kanti að framan og 1 hnappagat í kanti í hálsi. 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Neðsta hnappagatið á að vera ca 3 cm frá neðri kanti og næst efsta hnappagatið ca 7 cm frá hálsmáli. Staðsetjið 3-3-3-4-4-4 hnappagöt sem eftir eru jafnt yfir með ca 9 cm millibili. Fellið af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsmáli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykki og framstykki eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna og saumað saman í lokin. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjón/stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður upp kantur að framan og kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 111-121-129-141-155-171 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 17-19-19-21-23-27 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 94-102-110-120-132-144 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú mynstur A.1 með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, endurtakið mynsturteikningu á hæðina. Haldið áfram þar til stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm. Fellið nú lykkjur af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 0-0-2-3-5-7 sinnum = 84-88-92-96-100-104 lykkjur. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, setjið miðju 30-32-34-34-36-36 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 26-27-28-30-31-33 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm (= 21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg). Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 58-62-68-74-80-88 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 9-10-12-13-13-15 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 49-52-56-61-67-73 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú mynstur A.1 með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, endurtakið mynsturteikningu á hæðina. Haldið áfram þar til stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm. Fellið nú lykkjur af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 0-0-2-3-5-7 sinnum = 44-45-47-49-51-53 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 14-14-15-15-16-16 lykkjur áður en þær eru settar á þráð fyrir hálsmáli, prjónið út umferðina. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið lykkjur af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 26-27-28-30-31-33 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm (= 21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg) – stillið af eftir bakstykki. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 58-62-68-74-80-88 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið síðan eins og hægra framstykki, en fellið af fyrir handveg í byrjun á umferð frá réttu og fyrir hálsmáli í byrjun á umferð frá röngu. ERMI: Fitjið upp 60-62-64-66-68-70 lykkjur á sokkaprjóna 3,5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8 lykkjur jafnt yfir = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið 1 umferð til viðbótar með sléttum lykkjum. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið A.1 hringinn. Þegar stykkið mælist 8 cm frá uppfitjunarkanti, byrjar útaukning mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3-2½-2-2-1½-1 cm millibili alls 11-12-13-14-17-22 sinnum = 74-78-82-86-94-106 lykkjur. Þegar ermin mælist 45-44-43-43-42-41 cm, fellið af miðju 6 lykkjur undir ermi fyrir handveg. Prjónið síðan ermakúpu fram og til baka þannig: Haldið áfram með mynstur fram og til baka og fellið lykkjur af fyrir ermakúpu í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 3-3-4-4-4-4 sinnum og 1 lykkja 1-1-1-1-2-3 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 51-51-51-51-51-51 cm. Fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 52-52-52-52-52-52 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við miðju á fram- og bakstykki. Saumið hliðarsauma. KANTUR AÐ FRAMAN: Hægri kantur að framan: Byrjið frá réttu neðst á fram- og bakstykki með hringprjón 3,5 og Merino Extra Fine. Prjónið upp 109 til 135 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 ) innan við 1 kantlykkju garðaprjón. Prjónið stroff þannig (1. umferð = frá röngu): 1 kantlykkja garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja brugðið, 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar stykkið mælist 1 ½ cm, fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Vinstri kantur að framan: Byrjið frá réttu efst við hálsmál með hringprjón 3,5 og Merino Extra Fine. Prjónið upp 109 til 135 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 ) innan við 1 kantlykkju garðaprjón. Prjónið stroff þannig (1. umferð = frá röngu): 1 kantlykkja garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja brugðið, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu með hringprjón 3,5 og prjónið upp ca 115 til 129 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar ca 8 lykkjur yfir hvorn kant að framan og lykkjur af þráðum, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1). Prjónið stroff þannig (1. umferð = frá röngu): 1 kantlykkja garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja brugðið, 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar kantur í hálsi mælist 1 ½ cm, fellið af fyrir hnappagötum þannig – frá réttu: Prjónið 4 lykkjur eins og áður, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Haldið áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR-2: Saumið tölur í vinstri kant að framan/kant í hálsmáli. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mustardseedscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.