Thea skrifaði:
Tegenwoordig zijn alle truien van drops erg kort. Zoals mijn Duitse voorgangster ook al schreef, 40 cm past beter. We zijn niet allemaal meisjes van 16 die van naveltruitjes houden
07.12.2020 - 14:03
ChrisLakner skrifaði:
Für den Rumpf braucht man mindestens 40 cm!!! Ich verstehe nicht, wieso man in letzter Zeit immer so kleine Angaben macht?! Mit 30 cm läuft man auch bei Größe 34 Bauchfleisch durch die Gegend, was nicht der Sinn eines Winterpullovers ist.
24.10.2020 - 09:06DROPS Design svaraði:
Lieber ChrisLakner, ja stimmt genau, Rundnadeln brauchen Sie in Länge 40 und 60 oder 80 cm in beide Größ Nr 4 und Nr3. Viel Spaß beim stricken!
26.10.2020 - 13:17
SILVIA COLOMBO skrifaði:
Buongiorno, desidero gentilmente sapere se posso eseguire questo modello abbinando la lana Merino extrafine per la base e il Delight per il disegno o è meglio abbinare la Delight alla Baby Merino e quindi cambiare modello. Mi piacerebbe tanto eseguire il disegno con una lana con sfumature diverse. Grazie mille per la risposta
12.09.2020 - 13:46DROPS Design svaraði:
Buongiorno Silvia. La scelta dei filati e dei possibili abbinamenti è sempre molto personale. Le suggeriamo di contattare il suo rivenditore Drops di fiducia che la aiuterà nei possibili abbinamenti e saprà consigliarla al meglio. Buon lavoro!
14.09.2020 - 15:50
Sarah skrifaði:
Hello! I was wondering whether I could convert this pattern to use an aran weight wool, like Drops Nepal. Do you have any suggestions?
05.08.2020 - 10:25DROPS Design svaraði:
Dear Sarah, this pattern is worked in Sky which is yarn group B while Nepal is yarn group C - you would have to recalculate entirely the pattern following your tension - you can also get inspired by the nordic jumpers worked in a yarn group C. Happy knitting!
05.08.2020 - 16:25
Iced Petals#icedpetalssweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki og norrænu mynstri úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 218-5 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning er prjónuð í sléttprjóni og sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 102 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 36) = 2,8. Í þessu dæmi er aukið út eftir ca 3. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. ÚTAUKNING-2 (á við um fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 102-106-110-118-118-124 lykkjur á hringprjón 3 með litnum lavender. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til kantur í hálsi mælist ca 9 cm (kantur í hálsi er síðar brotinn saman tvöfaldur). Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 36-38-40-44-44-44 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 138-144-150-162-162-168 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í stykkið hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið eftir mynsturteikningu A.1 umferðina hringinn (= 23-24-25-27-27-28 mynstureiningar á breidd). Sjá MYNSTUR og LEIÐBEININGAR-1 í útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, eru 276-288-325-351-378-392 lykkjur í umferð. Í næstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 272-288-328-352-372-396 lykkjur. Prjónið áfram í sléttprjóni með lavender þar til stykkið mælist 20-20-21-23-25-27 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki þannig: Prjónið 38-39-45-49-53-58 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 60-66-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-12-12-14-16 nýjar lykkjur (= mitt undir ermi), prjónið 76-78-90-98-106-116 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-66-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-12-12-14-16 lykkjur (= mitt undir ermi) og prjónið 38-39-45-49-53-58 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 172-180-204-220-240-264 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, þ.e.a.s. mitt á milli nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 86-90-102-110-120-132 lykkjur á milli prjónamerkja). Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 3-3-3-4-4-4 cm millibili alls 6 sinnum í öllum stærðum = 196-204-228-244-264-288 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 27-29-30-30-30-30 cm. Nú er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-8-8-12-12-16 lykkjur jafnt yfir = 208-212-236-256-276-304 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-66-74-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjóna eða sokkaprjóna 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-12-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 70-78-86-90-94-98 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi (= byrjun á umferð). Prjónið sléttprjón hringinn með litnum lavender. Þegar stykkið mælist 2 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 39-39-37-36-34 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 78-86-94-98-102-106 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið kant í hálsmáli að röngu á stykki. Saumið niður að innanverðu á stykki, ekki sauma í hverja lykkju – hoppið yfir nokkrar lykkjur svo að sporin verði löng og passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #icedpetalssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.