DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Safran yarn
DROPS Safran
100% Bómull
frá 484.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1452.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Strawberry Summer

Prjónaður toppur úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 211-18

#strawberrysummertop

DROPS Design: Mynstur e-302
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M/L - XL/XXL – XXXL
Málin á teikningu sýnir stykkið þegar búið er að strekkja það út, toppurinn verður minni vegna mynsturs.

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-200-250-250 g litur 57, malva

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm og 80 cm fyrir stroffprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 484.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1452.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2 og A.7). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handveg.
Síðan er bakstykkið prjónað og 2 framstykki hvert fyrir sig, fram og til baka á hringprjóna til loka. Hlýri á öxl á framstykki er saumaður niður við bakstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 224-256-304-336 lykkjur á hringprjón 3 með Safran. Prjónið A.1 hringinn – setjið jafnframt 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= vinstri hlið þegar stykkið er mátað) og 1 prjónamerki eftir 112-128-152-168 lykkjur (= hægri hlið þegar stykkið er mátað). Bæði prjónamerkin sitja á milli 2 lykkja brugðið. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36 cm, prjónið næstu umferð þannig (nú er eftir ca 1 cm þar til stykkið skiptist mitt að framan og fellt er af fyrir handveg.
Prjónið A.2 (= 9-9-13-13 lykkjur), haldið áfram A.1 yfir næstu 42-50-58-66 lykkjur, prjónið A.3 (= 10 lykkjur mitt að framan), haldið áfram A.1 yfir næstu 42-50-58-66 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 18-18-26-26 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 9-9-13-13 lykkjum – prjónamerki situr á milli þessa 2 eininga), haldið áfram A.1 yfir næstu 94-110-126-142 lykkjur (= bakstykki) og prjónið A.2 yfir þær 9-9-13-13 lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.2 og A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina.
Í næstu umferð er fellt af fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 4-4-8-8 lykkjur fyrir handveg, prjónið 5 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, haldið áfram með A.1 yfir næstu 42-50-58-66 lykkjur, prjónið 10 lykkjur í garðaprjóni (= mitt fram), haldið áfram A.1 yfir næstu 42-50-58-66 lykkjur, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, fellið af 8-8-16-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, haldið áfram A.1 yfir næstu 94-110-126-142 lykkjur, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni og fellið af þær lykkjur sem eftir eru 4-4-8-8 lykkjur fyrir handveg. Klippið frá. Bakstykki og framstykki er nú prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 104-120-136-152 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið 1 umferð stroff eins og áður með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið.
Síðan er prjónað stroff með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt er fellt af fyrir handveg í hverri umferð frá réttu eins og útskýrt er að neðan. Þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.4 (= 13 lykkjur), haldið áfram með stroff eins og áður þar til 13 lykkjur eru eftir í umferð, endið með A.5 (= 13 lykkjur).
Haldið svona áfram með mynstur þar til A.4 og A.5 hefur verið prjónað alls 4-4-5-6 sinnum á hæðina (= 16-16-20-24 lykkjur felldar af í hvorri hlið) = 72-88-96-104 lykkjur eftir. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Bakstykkið mælist ca 11-11-14-16 cm frá skiptingu.

FRAMSTYKKI:
= 104-120-136-152 lykkjur. Skiptið stykkinu mitt að framan og setjið helming af lykkjum á 1 hjálparþráð eða hjálparprjón.
Prjónið síðan hluti-1 eins og útskýrt er að neðan.

HLUTI-1:
= 52-60-68-76 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið 1 umferð stroff eins og áður með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið.
Setjið 1 prjónamerki á milli 2 miðju lykkja í umferð (á milli 2 lykkja slétt séð frá réttu). Prjónamerki merkir miðju.
Prjónið síðan stroff með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt er lykkjum fækkað hvoru megin við miðju eins og útskýrt er að neðan. Þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið stroff eins og áður þar til 7 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið A.6 (= 14 lykkjur), prjónið stroff eins og áður þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð og endið með 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og endurtakið A.6 á hæðina þar til 34 lykkjur eru eftir í umferð – endið eftir 1 umferð frá röngu.
Prjónið nú A.7 yfir þessar 34 lykkjur. Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka, eru 12-12-16-16 lykkjur eftir í umferð fyrir hlýra og framstykki mælist ca 11-13-16-18 cm frá skiptingu. Prjónið hlýra eins og útskýrt er að neðan.

HLÝRI:
= 12-12-16-16 lykkjur. Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til hlýrinn mælist ca 10-12-10-10 cm – mátið e.t.v. toppinn og prjónið að óskaðri lengd, hlýrinn á að halda áfram yfir öxl og niður að bakstykki. Fellið af.

HLUTI-2:
Setjið til baka 52-60-68-76 lykkjur af þræði eða hjálparprjóni á hringprjón 3 og prjónið hluta-2 á sama hátt og hluti-1. Prjónið síðan hlýra á sama hátt og á hluta-1. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið hlýrann við bakstykki – byrjið yst í hvorri hlið og saumið með 1 spori í hverja lykkju. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu <br />
<br />
= brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

2 lykkjur snúnar brugðið saman = 2 lykkjur snúnar brugðið saman
2 lykkjur brugðið saman = 2 lykkjur brugðið saman
2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur slétt saman
lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
prjónamerki situr á milli 2 lykkja (séð frá réttu) = prjónamerki situr á milli 2 lykkja (séð frá réttu)
Diagram for DROPS 211-18
Diagram for DROPS 211-18
Diagram for DROPS 211-18
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (131)

country flag Tina Stjernholm skrifaði:

Jeg kan ikke få bagstykket til at se rigtig ud. Skal kantmaskerne regnes udenfor diagrammet? Jeg er gået ud fra, at de var ned i A4 og A5.

27.07.2021 - 12:42

country flag Masset skrifaði:

Modele drops 211/18, les diminutions en A6: le schema be decompte pas les mailles: rang1 a 8 il y a toujours 7 mailles a tricoter or si on enlève 8 mailles il n’en reste que 3 +3… donc comment appliquer le schema? Merci

20.07.2021 - 15:01

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Masset, le diagramme A.6 montre comment diminuer de part et d'autre de (1 m env, 2 m end, 1 m env) tout en continuant les côtes de chaque côté, autrement dit, les côtes vont se décaler vers le milieu, en diagonale, commencez A.6 1 m avant à chaque nouvelle diminution (à chaque rang) et A.6 se terminera 1 m après la fois précédente à chaque fois. Vous allez ainsi "manger" les mailles en côtes au niveau de la m env avant les 2 m end et après la m env, après les 2 m end. Bon tricot!

20.07.2021 - 15:28

country flag Chris skrifaði:

Die Strickschriften A 4 und A5 verwirren mehr als dass sie hilfreich sind. Vor allem Rückreihen zeigen die Maschen so, wie sie von der Vorderseite aussehen sollen. Am besten die Maschen stricken wie sie erscheinen. mir hat das jedenfalls mehr geholfen.

19.07.2021 - 09:47

country flag Alena skrifaði:

Need one more skein for S size.

18.07.2021 - 13:25

country flag Masset skrifaði:

Comment realiser le dos schema 4 et 5 pour garder les cotes 2/2… maille endroit sur endroit= endroit du tricot ou maille endroit du rang précédent? Tout se decale chez moi…

17.07.2021 - 13:58

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Masset, tricotez les mailles des côtes comme elles se présentent et tricotez les mailles de A.4 /A.5 comme indiqué dans le diagramme (x = à tricoter à l'endroit sur l'envers et les cases blanches à tricoter à l'endroit sur l'envers), les 5 premières mailles de A.4 et les 5 dernières mailles de A.5 sont des mailles au point mousse (à l'endroit sur l'endroit et à l'endroit sur l'envers). Bon tricot!

19.07.2021 - 08:29

country flag Audrey skrifaði:

Hi, I just knitted this today and found upon trying the garment on, that the top of the back piece (where the 3 ridges of garter stitch are) do not lie properly against the body and instead, warp slightly in the middle section and float. Is this normal?

08.07.2021 - 19:04

DROPS Design svaraði:

Dear Audrey, not really, it should be somewhat tighter around the breasts and a little looser around the wais, bup no warping there. Happy Stitching!

08.07.2021 - 21:32

country flag Kirstine skrifaði:

Jeg har forsøgt at strikke bagstykket flere gange, men synes ikke jeg kan få det til at passe sammen. Har snakket med en anden som har samme problem. Kan der være en fejl i opskriften? Synes heller ikke de 7 masker der strikkes først i diagrammerne passer med den lille retkant der vises på billederne af toppen (ryg)

08.06.2021 - 20:59

DROPS Design svaraði:

Hej Kirstine, hvilken størrelse? Hvor er du i opskriften? Hvor mange masker har du? Hvilket diagram skal du strikke?

11.06.2021 - 11:00

country flag Iwona skrifaði:

Nie zgadza mi się ilość oczek: np. piszecie że tył zamknąć, gdy zostaje 72 oczka, a widać na foto że tył ma ok. 50 oczek, czy mam rację?

07.06.2021 - 17:50

DROPS Design svaraði:

Witaj Iwono, na szczęście mam już ten sweterek w najmniejszym rozmiarze więc szybko sprawdzam - wg wzoru jest 72 oczka na górze tyłu i wszystko się zgadza. Na zdjęciu jest wykonany mniejszy sweterek niż S. Pozdrawiamy i miłej pracy :)

07.06.2021 - 18:23

country flag Barbara Zeller skrifaði:

Zu meiner vorherigen Frage: Leider hilft mir Ihre Auskunft nicht. Ich hatte ja am Rückteil auch keine Probleme mit der Strickschrift und am Abnehmen liegt es auch nicht. Aber wenn Sie A.6 ansehen, werden die mittleren beiden Maschen laut Strickschrift in der Hin- und Rückreihe rechts gestrickt- wird also kraus rechts. Das stimmt ja aber nicht..... Bin noch genauso ratlos wie bisher.

02.06.2021 - 12:40

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Zeller, die 2 mittleren Maschen in A.6 sind rechte Maschen vom Bündchen, die werden rechts bei den Hin-Reihen und links bei den Rückreihen (Krausrechts würde rechts bei Hin sowie Rückreihen). Beim Vorderteil stricken Sie im Rippenmuster wie zuvor, und gleichzeitig nehmen Sie beidseitig von den 2 mittleren rechten Maschen wie in A.6 gezeigt. Hilft es Ihnen besser?

02.06.2021 - 13:21

country flag Barbara Zeller skrifaði:

Ich habe ein Problem mit A.6. Habe das Top bis zur Teilung Vorderteil fertig. Wenn ich nach der Anleitung genau mit den Hin- und Rückreihen (Hinreihe von rechts nach links, Rückreihe von links nach rechts) stricke, entsteht ein krauses Kuddelmuddel und keine schöne rechte Linie, die zum Träger führt. Sind bei A.6 nur Hinreihen angegeben? Oder muss man es anders lesen? Bin wirklich eine geübte Strickerin, aber hier habe ich einen Knoten im Hirn. Danke für schnelle Hilfe.

01.06.2021 - 18:20

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Zeller, alle Reihen sind in A.6 gezeigt, dh genauso wie bei allen anderen Diagrammen. Vorderteil beginnt mit einer Rückreihe und die 2 mittleren Maschen vom 1. Teil sollen in der Mitte sein = wo Sie die Markierung eingesetzt haben, dh die Abnahmen werden bei den Hinreihen gestrickt (mit 2 M links zs/2 M links verschränkt zs beidseitig von den 2 Mittleren rechte Maschen). Kann das Ihnen helfen?

02.06.2021 - 07:36