Glenda Resnick skrifaði:
I don't know what to name it....delicate beauty, maybe but I want to make it!
16.03.2020 - 05:56
Brigitte Pelgrims skrifaði:
Prachtig ,graag patroon aub
14.03.2020 - 11:44
Rose skrifaði:
I have to knit this for spring! Instructions please!!
11.03.2020 - 22:38
Pia Hjelmsø skrifaði:
Naturel beaty
08.03.2020 - 17:01
Jette Berg skrifaði:
Summer In the making
25.02.2020 - 19:32
Cécile skrifaði:
Superbe ! Hâte d'avoir les explication
14.02.2020 - 15:23
Eva skrifaði:
Sehr schöner Sommerpulli....
01.02.2020 - 20:33
Cathy skrifaði:
Magnifique ! sur une petite robe fluide...où est l'explication ??
01.02.2020 - 10:12
Véronique skrifaði:
Très joli modèle ajouré. Fin, féminin et juste ce qu'il faut de décontracté et naturel... avec cette laine Bomull-Lin, ça fait un beau modèle pour l'été... je vais craquer c'est sûr!
29.01.2020 - 12:37
Elisabeth skrifaði:
Comment puis-je me procurer les explications du modèle?
25.01.2020 - 10:39
Free Flow Sweater#freeflowsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Bomull-Lin eða DROPS Paris. Stykkið er prjónað með gatamynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 213-17 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón upp að handveg. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið og framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 146-166-174-190-198-218 lykkjur á hringprjón 5 með Bomull-Lin eða Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, þ.e.a.s. setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 73-83-87-95-99-109 lykkjur. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið mynstur þannig: * 3-2-4-2-4-3 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 60-72-72-84-84-96 lykkjur (= 5-6-6-7-7-8 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.2 yfir næstu 6 lykkjur (= 1 mynstureining með 6 lykkjum), 4-3-5-3-5-4 lykkjur slétt *, prjónið *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Haldið áfram hringinn með mynstur þannig: ATH: Í 5. umferð í A.1 er prjónuð 1 lykkja fleiri með sléttum lykkjum á milli prjónamerkja í hlið og fyrstu lykkju í A.1. Í 15. umferð í A:2 er prjónuð 1 lykkja færri með sléttum lykkjum á milli síðustu lykkju í A.2 og prjónamerki í hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð í mynsturteikningu án mynsturs, fækkið um 2 lykkjur í hvorri lið, þ.e.a.s. 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið. BAKSTYKKI: = 71-81-85-93-97-107 lykkjur. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, 1-0-2-0-2-1 lykkjur slétt, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 66-78-78-90-90-102 lykkjur, 2-1-3-1-3-2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 39-41-42-44-45-47 cm, er ekki byrjað á fleiri gatamynstrum á hæðina. Þegar síðasta gatamynstrið hefur verið prjónað til loka er haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, fellið af miðju 23-23-23-25-25-27 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja = 23-28-30-33-35-39 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins. FRAMSTYKKI: = 71-81-85-93-97-107 lykkjur. Prjónið mynstur alveg eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 39-41-42-44-45-47 cm, er ekki byrjað á fleiri gatamynstrum á hæðina. Þegar síðasta gatamynstrið hefur verið prjónað til loka er haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 43-45-46-48-49-51 cm, setjið miðju 13-13-13-15-15-17 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1 sinni = 23-28-30-33-35-39 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 35-35-37-39-41-41 lykkjur á sokkaprjón 5 með Bomull-Lin eða Paris. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið mynstur þannig: 13-13-14-15-16-16 lykkjur slétt, A.3 (= 9 lykkjur) 13-13-14-15-16-16 lykkjur slétt. Prjónið mynstur í hring svona. Þegar ermin mælist 8-8-8-9-9-9 cm, aukið út 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 4-3½-3-2½-2½-2 cm millibili alls 10-11-12-13-13-15 sinnum = 55-57-61-65-67-71 lykkjur. Þegar ermin mælist 43-41-40-39-39-36 cm, er ekki byrjað á fleiri gatamynstrum á hæðina (þannig að ekki er fellt af á ermi mitt í gatamynstri). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 48-46-45-44-44-41 cm, fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermi. Klippið frá og festið enda. Bomull-Lin verður jafnara og fallegra eftir að það hefur verið þvegið. Þegar stykkið hefur verið prjónað til loka, skolið það, strekkið út í rétt mál – sjá mynsturteikningu og þurrkið flatt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 62 til 72 lykkjur í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 5 með Bomull-Lin eða Paris. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, prjónið síðan 1 umferð slétt. Fellið af með brugðnum lykkjum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #freeflowsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.