Joke skrifaði:
Ik ben het vestje gaan breien , volgens de beschrijving voor mt M . Met dus 131 st opzetten en verder via teltekening A1 en A2 gemeerderd kom ik op 226 st? Wat doe ik verkeerd?
29.03.2020 - 23:16
Elisabeth Levin skrifaði:
Hej! Maskantalet stämmer inte enligt mönstret. Visst ska man sticka A1 + A2 efter varandra hela varvet? I så fall blir det inte 27 ggr på bredden i strlk S. 5X27=135 Jag ska ha totalt 123 maskor inkl 14 kantmaskor. Hur ska jag räkna? Med vänlig hälsning, Elisabeth
28.03.2020 - 17:49DROPS Design svaraði:
Hej Det är endast A2 som du upprepar 27 gånger. Du stickar alltså framkant (= 7 m), A1 (=1 m), A2 upprepas totalt 27 gånger (=4 x 27= 108 m), 7 framkantmaskor. Dvs 7+1+108+7 = 123 m. Lycka till!
30.03.2020 - 13:31
Francine Guimond skrifaði:
Avez-vous une vidéo qui explique le symbole “étoile blanche”du modèle 212-5? On explique de tricoter 7 fois la même maille ainsi:1jete,1 maille endroit dans la même maille” .Repeter 3 fois au total et lâcher la maille de l’aiguille gauche
08.03.2020 - 20:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Guimond, cette vidéo montre comment tricoter 7 fois la même maille (alternativement 1 m end, 1 jeté comme expliqué ici), mais attention, ne tournez pas quand vous avez ces 7 mailles, continuez comme dans le diagramme de ce modèle et pas comme dans la vidéo. Bon tricot!
09.03.2020 - 12:28
Sandra Whitaker skrifaði:
I have started knitting the Alberta Rose Jacket pattern number 212-6. Cannot get the stitches to match the pattern as it is written. I cast on for the medium size, was unsure if it was 131 + 14 for bands. But the pattern doesn't work. 129 including both bands worked out, but meant 26 stitches shorts for the next pattern steps. Please advise if there are problems with stitch numbers given. I cannot make the stitches work with the stitches given. Awaiting your reply with great interest.
22.02.2020 - 17:34DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Whitaker, you cast on 131 sts in size M and work then: K2, P2, K1, P2 (= 7 front band sts), A.1 (= 1 st), A.2 a total of 29 times (= 29 x 4 sts = 116 sts), and finish with the 7 front band sts: P2, K1, P2, K2 = 7+ 1 + 116 + 7= 131 sts. Happy knitting!
24.02.2020 - 08:27
Ninon Anderson skrifaði:
Thank you..now I can go looking at non cottton yarns
16.02.2020 - 05:45
Ninon Anderson skrifaði:
I would like to knit this set...cardigan and pullover (drops 212-6 and 212-5 in yarn, (wool,blend but not cotton....any suggestions...what number is Safan considered....1 fine or a semi bulky??
16.02.2020 - 00:29DROPS Design svaraði:
Der Ninon, Safran is a yarn that is belongs to theyarngroup A. It is about 160 meters / 50 grams, which puts it between DK and sport / fingering weight. You could substitute with other yarns belinging to the same yarngroup, however please always make a trial swatch, wash and dry it and make the necessary recalcualtions and adjustments if necessary. Happy Knitting!
16.02.2020 - 02:03
Annita Ville Jørgensen skrifaði:
Det må være en "Summer love" cardigan - skynd jer at ligge opskriften op glæder mig allerede.
21.01.2020 - 13:54
Alberta Rose Jacket#albertarosejacket |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri, blaðamynstri og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 212-6 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð í umferð frá réttu. Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 257 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 64) = 3,79. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur brugðið saman og prjónið 2 síðustu lykkjurnar slétt. Í næstu umferðer uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-7-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 7-7-7½-7-7-7½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 123-131-139-139-143-155 lykkjur (meðtaldar 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Safran. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið (= kantur að framan), A.1 (= 1 lykkja), A.2 (= 4 lykkjur) þar til 7 lykkjur eru eftir (= 27-29-31-31-32-35 sinnum á breidd), yfir kant að framan eru prjónaðar 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar fyrstu 6 umferðirnar af mynstri hafa verið prjónaðar, skiptið yfir á hringprjón 3,5. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Haldið áfram með mynstur eins og áður eins og útskýrt er í A.2. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 231-247-263-325-335-365 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 5-5-5-6-6-6 cm frá prjónamerki. Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið yfir kant að framan eins og áður, A.3 (= 1 lykkja), A.4 (= 8-8-8-10-10-10 lykkjur) þar til eftir eru 15-15-15-17-17-17 lykkjur (= 26-28-30-30-31-34 sinnum á breidd), A.5 (= 8-8-8-10-10-10 lykkjur), yfir kant að framan, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 til A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 337-361-385-447-461-503 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 16-16-16-21-21-21 cm frá prjónamerki. Haldið áfram í sléttprjóni og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur á kanti að framan þar til stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið yfir fyrstu 53-56-59-69-71-80 lykkjur, setjið næstu 70-74-80-93-94-98 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-8-12-10 lykkjur undir ermi, prjónið 91-101-107-123-131-147 lykkjur, setjið næstu 70-74-80-93-94-98 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-8-12-10 lykkjur undir ermi og prjónið yfir síðustu 53-56-59-69-71-80 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 213-229-245-277-297-327 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 57-60-64-73-77-85 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 99-109-117-131-143-157 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á út í hliðum. Haldið áfram í sléttprjóni og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu fyrir berustykki, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 7 sinnum = 241-257-273-305-325-355 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 26-26-27-27-27-27 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, þar til ca 4 cm eru að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út 62-64-66-67-68-68 lykkjur jafnt yfir (kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður) – sjá ÚTAUKNING-2 = 303-321-339-372-393-423 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjónast dragist saman. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt yfir kant að framan eins og áður,* 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og yfir kant að framan eru prjónaðar 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið eins og áður. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING. ERMI: Setjið 70-74-80-93-94-98 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-8-12-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 78-82-90-101-106-108 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-8-12-10 nýjar lykkjur undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum hvoru megin við þetta prjónamerki. Prjónið í hring í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 9-10-13-17-18-18 sinnum = 60-62-64-67-70-72 lykkjur. Þegar ermin mælist 30-28-28-26-25-23 cm frá skiptingu, aukið út 6-7-8-5-8-6 lykkjur jafnt yfir = 66-69-72-72-78-78 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjurnar. Fellið af með sléttum lykkjum þegar ermin mælist 34-32-32-30-29-27 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #albertarosejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.