Debora skrifaði:
Buongiorno e grazie per i vostri bellissimi modelli! Volevo sapere dove si trova nei diagrammi il simbolo quadrato nero che in legenda corrisponde a 4 maglie nella stessa maglia. Grazie e buon lavoro
29.01.2020 - 13:20DROPS Design svaraði:
Buongiorno Debora. Chiederemo una verifica alla casa madre, ma molto probabilmente il simbolo nella versione lavorata in tondo non deve essere presente. Buon lavoro!
29.01.2020 - 17:14
Debora skrifaði:
Buongiorno e grazie per i vostri bellissimi modelli! Volevo sapere dove si trova nei diagrammi il simbolo quadrato nero che in legenda corrisponde a 4 maglie nella stessa maglia. Grazie e buon lavoro
29.01.2020 - 13:18
Juana skrifaði:
Muy elegante
18.01.2020 - 11:29
Karin Sørensen skrifaði:
Den er super flot, jeg håber der kommer en opskrift hurtigst muligt 😊😊😊
18.01.2020 - 10:56
Ina skrifaði:
Sieht Klasse aus, freue mich auf die Anleitung
15.01.2020 - 21:59
Sonja Sylvestersen skrifaði:
Så sød, en rigtig sommer bluse. Håber den kommer med.
14.01.2020 - 10:30
Inge Madsen skrifaði:
Den er bare så sød glæder mig til opskriften,den skal med.
10.01.2020 - 15:22
Doris skrifaði:
Ein hübscher Sommerpulli mit schöner Rundpasse
10.01.2020 - 07:32
Gudrun skrifaði:
Vorfreude auf den Frühling! Möchte ich gerne nachmachen!
22.12.2019 - 17:56
Betina Kauer skrifaði:
Sehr schönes Modell, ich freue mich schon auf die Anleitung.
21.12.2019 - 23:53
Alberta Rose#albertarosesweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri, blaðamynstri og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 212-5 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------ UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 244 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 62) = 3,93. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-116-124-124-128-140 lykkjur á hringprjón 2,5 með Safran. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið A.1 (= 4 lykkjur) hringinn (= 27-29-31-31-32-35 sinnum á breidd). Þegar fyrstu 6 umferðirnar á mynstri hafa verið prjónaðar, skiptið yfir á hringprjón 3,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er núna mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 216-232-248-310-320-350 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 5-5-5-6-6-6 cm frá prjónamerki. Prjónið A.2 (= 8-8-8-10-10-10 lykkjur) hringinn (= 27-29-31-31-32-35 sinnum á breidd). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 324-348-372-434-448-490 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 16-16-16-21-21-21 cm frá prjónamerki. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 46-50-53-62-65-73 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 70-74-80-93-94-98 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-8-12-10 lykkjur undir ermi, 92-100-106-124-130-148 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 70-74-80-93-94-98 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-8-12-10 lykkjur undir ermi og endið með 46-50-53-62-65-73 lykkjur slétt = hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-216-232-264-284-314 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-8-12-10 lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermum (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 100-108-116-132-142-156 lykkjur á bakstykki og 100-108-116-132-142-158 lykkjur á framstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á út í hliðum. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 7 sinnum = 228-244-260-292-312-342 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 26-26-27-27-27-27 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 60-62-64-65-66-66 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 288-306-324-357-378-408 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING. ERMI: Setjið 70-74-80-93-94-98 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-8-12-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 78-82-90-101-106-108 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-8-12-10 nýrra lykkja undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum hvoru megin við þetta prjónamerki. Prjónið í hring í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 9-10-13-17-18-18 sinnum = 60-62-64-67-70-72 lykkjur. Þegar ermin mælist 30-28-28-26-25-23 cm frá skiptingu, aukið út 6-7-8-5-8-6 lykkjur jafnt yfir = 66-69-72-72-78-78 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum þegar ermin mælist 34-32-32-30-29-27 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #albertarosesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.