Sónia Silva skrifaði:
Beautifull, simple things can be very desiring.I love It!
08.10.2019 - 10:51
FIFI skrifaði:
Bonjour, la couleur est peu flatteuse et je n'aime pas le point trop grossier ainsi que le profil des manches : trop large et peu pratique du fait qu'elles soient trop longues.
13.07.2019 - 09:29
Soussou skrifaði:
Un peu grossier. C'est le genre de modèle qui dégénère au lavage
21.06.2019 - 15:22
Ellis skrifaði:
Quick knit for schoolgirls
09.06.2019 - 21:49
Meli skrifaði:
Will make this as soon as it's posted. I love it!
07.06.2019 - 19:59
Moraine#morainesweater |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni með háum kraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-29 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KLUKKUPRJÓN (fram og til baka): UMFERÐ 1 (rétta): 1 lykkja garðaprjón, * prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja garðaprjón. UMFERÐ 2 (ranga): 1 lykkja garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 uppslátt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja garðaprjón. UMFERÐ 3 (rétta): 1 lykkja garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 uppsláttur er eftir og 2 lykkjur, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja garðaprjón. Endurtakið umferð 2 og 3. ÚTAUKNING (á við um ermar): Öll útaukning er gerð í 3. umferð í mynstri (= frá réttu). Aukið er út til skiptis í hvorri hlið á ermi. Þ.e.a.s. í lykkju á eftir kantlykkju í byrjun á umferð og í lykkju á undan kantlykkju í lok umferðar. Prjónið 3 lykkjur í lykkju og uppsláttinn þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í klukkuprjóns mynstur, en í fyrstu umferð (frá röngu) er ekki klukkuprjóns uppsláttur á milli útaukna lykkja. Lykkjan sem prjóna á saman með uppslætti er því prjónuð án uppsláttar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka í stykkjum og saumuð saman í lokin. Kraginn er prjónaður í hring á hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 55-61-64-70-76-82 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 12 með Snow. Prjónið KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar fyrsta umferð hefur verið prjónuð til loka hefur fækkað um 18-20-21-23-25-27 lykkjur = 37-41-43-47-51-55 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram með umferð 2 og 3 í klukkuprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 40-41-43-43-44-45 cm, setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (merkir handveg). Haldið áfram þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið fyrstu 14-16-16-18-20-22 lykkjur (= öxl), fellið af næstu 9-9-11-11-11-11 lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er uppslátturinn felldur af eins og eigin lykkja, prjónið 14-16-16-18-20-22 lykkjur sem eftir eru (= öxl). Prjónið síðan axlirnar til loka hvora fyrir sig. Prjónið klukkuprjón eins og áður, en nú eru prjónaðar 2 lykkjur garðaprjón við háls. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Fellið af. Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 55-61-64-70-76-82 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 12 með Snow. Prjónið klukkuprjón alveg eins og á bakstykki. Þegar fyrsta umferðin hefur verið prjónuð til loka, hefur fækkað um 18-20-21-23-25-27 lykkjur = 37-41-43-47-51-55 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram með umferð 2 og 3 í klukkuprjóni. Þegar stykkið mælist 40-41-43-43-44-45 cm, setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (merkir handveg). Haldið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið fyrstu 14-16-16-18-20-22 lykkjur (= öxl), prjónið næstu 9-9-11-11-11-11 lykkjur áður en þær eru settar á þráð fyrir hálsmáli, prjónið 14-16-16-18-20-22 þær lykkjur sem eftir eru (= öxl). Prjónið síðan axlirnar til loka hvora fyrir sig. Prjónið klukkuprjón eins og áður, en nú eru prjónaðar 2 lykkjur garðaprjón við háls. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Fellið af. Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMAR: Fitjið upp 40-40-40-43-43-46 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja garðaprjón í hvorri hlið) á hringprjón 12 með Snow. Prjónið klukkuprjón. Þegar fyrsta umferðin hefur verið prjónuð til loka, hefur fækkað um 13-13-13-14-14-15 lykkjur = 27-27-27-29-29-31 lykkjur. Haldið áfram með umferð 2 og 3 í klukkuprjóni. Þegar stykkið mælist 9 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, aukið út um 2 lykkjur í fyrstu lykkju eftir kantlykkju í garðaprjóni í byrjun á umferð (séð frá réttu) – sjá ÚTAUKNING = 29-29-29-31-31-33 lykkjur. Haldið áfram í mismunandi stærðum eins og útskýrt er að neðan. Stærð S: Útaukning í stærð S er nú lokið. Haldið áfram frá Allar stærðir að neðan. Stærð M, L, XL, XXL og XXXL: Haldið áfram með útaukningu í annarri hvorri hlið á stykki með ca 15-15-15-13-13 cm millibili alls 2-2-2-3-3 sinnum (= alls 4-4-4-6-6 lykkjur fleiri) = 31-31-33-35-37 lykkjur í umferð. Allar stærðir: Haldið áfram í klukkuprjón þar til ermin mælist 48-46-46-44-42-40 cm. Fellið af. Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki á milli 2 prjónamerkja sem sett var í hliðar fyrir handveg. Saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki og innan við affellingarkant á ermum. Saumið saum undir ermum og síðan niður yfir hliðarsaum. KRAGI: Kraginn er prjónaður í hring á hringprjón. Prjónið upp 36-44 lykkjur frá réttu í kringum hálsinn (meðtaldar 9-9-11-11-11-11 lykkjur af þræði) á hringprjón 12. Prjónið klukkuprjón hringinn – stillið af að klukkuprjóns mynstrið passi yfir 9-9-11-11-11-11 lykkjur sem settar voru á þráð fyrir hálsmáli: UMFERÐ 1 * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt (yfir 9-9-11-11-11-11 lykkjur af þræði er uppslátturinn og óprjónaða lykkjan prjónað slétt saman) *, prjónið *-* út umferðina. UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 3: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, prjónið *-* út umferðina. Endurtakið umferð 2 og 3 þar til kraginn mælist ca 16 cm. Fellið af. Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er uppslátturinn felldur af eins og eigin lykkja (uppslátturinn er felldur af brugðið og lykkjurnar eru felldar af slétt). Klippið frá og festið enda. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #morainesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.