Bianca skrifaði:
Hello, It's my first time working with diagrams and I'm about to start the yoke for a size S. Tell me if got it right: now, on the first round I have to *knit 4, yarn over* until the end of the 34 stitches; then, on the second, round purl of the stitches; on the third round, *knit 2, yarn over, knit 3* until the end of the round and so on… And I'll repeat this sequence 8 times and then knit just A.1 diagram once. Thank you very much for your help!
01.12.2019 - 07:59DROPS Design svaraði:
Dear Bianca, you have to work A.1, A.2 in the round, this means on first round work: *A.1 (= K2), A.2 (= K2, YO)*, and repeat from *-*. On round 2 knit all stitches. On round 3, work: *A.1 (= K2, YO), A.2 (=K3)* and repeat from *-*. And continue like this following the diagrams. Happy knitting!
02.12.2019 - 10:10
Gabriela skrifaði:
I like it. It's simple and it looks very warm and confortable. The pattern is not available, how can I get it?
04.09.2019 - 12:23
Mónica skrifaði:
Me parece cómodo y abrigado.
25.07.2019 - 02:49
Moni skrifaði:
Ich finde ihn super. werde ihn gerne stricken. Danke!
15.07.2019 - 15:33
Ellis skrifaði:
Not elegant
09.06.2019 - 20:22
Lene skrifaði:
Lækker vamset, som vil passe perfekt til bukser eller nederdel i lettere uldstof. Glæder mig til opskriften, så jeg kan komme igang.
09.06.2019 - 15:13
Cedar Wood#cedarwoodsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Polaris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-39 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR: ATH: Í vöruúrvalinu okkar höfum við ekki styttri hringprjóna en 60 cm í prjónastærð 15. Ummálið á stykkinu er minna en 60 cm. Þá er hægt að fitja upp lykkju á sokkaprjóna eða fitja upp lykkjur á hringprjón og prjónið GALDRALYKKJA – sjá útskýringu að neðan, þar til auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur til að nota hringprjón 60 eða 80 cm. GALDRALYKKJA / MAGIC LOOP: Ef prjónað er í hring á hringprjón sem er of langur fyrir lykkjufjöldann er hægt að gera það þannig: Hringprjóninn á að vera langur og hafa sveigjanlega snúru. Færið lykkjurnar að miðju á snúrunni. Deilið lykkjunum í tvennt og dragið snúruna út á milli lykkja fyrir miðju. Færið lykkjurnar að prjónaendanum í hvorri hlið, passið uppá að lykkjurnar verði ekki snúnar. Þráðurinn sem prjóna á með er á aftari prjóni og þú byrjar á að prjóna með fremri prjóni. Dragið út aftari prjóninn til að prjóna lykkjurnar á þeim fremri. Þegar lykkjurnar á fremri prjóni hafa verið prjónaðar, snúið við og færið lykkjurnar til baka á auða prjóninn og prjónið hina hliðina alveg eins. Haldið svona áfram hringinn, passið uppá að draga alltaf út prjóninn í þeirri hlið þar sem þú hefur þráðinn. ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermar): ATH: Til að úrtakan komi til skiptis í hægri og vinstri hlið á stykki er lykkjum fækkað þannig: Fækkið lykkjum til skiptis í byrjun og í lok umferðar sem úrtakan á að vera. Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum frá röngu þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 34-36-38-40-42-44 lykkjur á sokkaprjóna/hringprjón 12 – sjá LEIÐBEININGAR, með Polaris. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 15. Setji eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Prjónið mynstur mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, L og XXL: Prjónið * A.1, A.2 *, prjónið *-* alls 8-9-10 sinnum, prjónið A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stærð M, XL og XXXL: Prjónið * A.1, A.2 *, prjónið *-* alls 9-10-11 sinnum hringinn í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ALLAR STÆRÐIR: Þegar allt A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 102-108-114-120-126-154 lykkjur í umferð, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-4-2-8-10-2 lykkjur jafnt yfir = 102-112-116-128-136-156 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 24-26-28-30-32-34 cm frá prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 15-16-17-19-20-23 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 21-24-24-26-28-32 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 30-32-34-38-40-46 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 21-24-24-26-28-32 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 15-16-17-19-20-23 lykkjur (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 68-72-76-84-92-104 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notið aðeins síðar þegar auka á út. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju á undan báðum prjónamerkjum – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið síðan út þannig: Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki. Þegar stykkið mælist 11 cm er aukið út um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki. Þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki. Í stærð M og XXXL heldur útaukningin áfram þannig: Þegar stykkið mælist 17 cm er aukið út um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki. Þegar stykkið mælist 20 cm er aukið út um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki. ALLAR STÆRÐIR: Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 76-84-84-92-100-116 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram hringinn í sléttprjóni með litnum milligrár þar til stykkið mælist 25 cm frá skiptingu. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl. ERMI: Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón og saumaðar saman í lokin. Setjið 21-24-24-26-28-32 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón 15 og fitjið upp 2-2-2-2-3-3 nýjar lykkjur í hvorri hlið = 25-28-28-30-34-38 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka, jafnframt í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1-0-0-0-0-0 lykkjur (einungis er lykkjum fækkað í stærð S) með því að prjóna 2 ystu lykkjur slétt saman = 24-28-28-30-34-38 lykkjur. Þegar stykkið mælist 4-4-2-4-4-2 cm fækkið um 1 lykkju í hægri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA. Fækkið til skiptis lykkjum vinstra og hægra megin á stykki í annarri hverri – annarri hverri – hverri – hverri – hverri umferð alls 8-12-12-14-14-18 sinnum (= 4-6-6-7-7-9 sinnum í hvorri hlið) = 16-16-16-16-20-20 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 34-33-32-30-28-26 cm frá skiptingu. (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Skiptið yfir á hringprjón 12. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saum undir ermum í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið saman op undir ermum. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cedarwoodsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.