Käthe skrifaði:
Wie stricke ich die Umschlagmaschen in der 2. Runde? Belasse ich die RaglanMaschen immer an der gleichen Stelle? Ich habe bestimmt schon 5 mal wieder bis zum Anfang aufgeribbert. Mir öffnet sich nicht die Strickanleitung. Wo ist der Fehler?
17.11.2019 - 18:29DROPS Design svaraði:
Liebe Käthe, die Umschläge werden immer verschränkt gestrickt, damit keine Löcher entstehen; die Raglanzunahmen werden beidseitig von A.1 gestrickt - siehe RAGLANZUNAHMEN. Viel Spaß beim stricken!
18.11.2019 - 10:44
Kathrin Wagner skrifaði:
Jetzt kanns losgehen ,freu mich schon tolles Modell
13.11.2019 - 16:11
Rachael Barman skrifaði:
I would like to suggest the name for this pattern to be “Snow Angel”
26.10.2019 - 19:13
Azucena skrifaði:
Es precioso!!! Estoy deseando tener el patrón para poder empezar con él. Espero que sea cuanto antes.
20.10.2019 - 19:40
Vignau Begue skrifaði:
J’attends avec impatience les explications.... superbe
16.10.2019 - 14:40
Lillie skrifaði:
Wunderschöner Pullover. Ich freue mich schon aufs Losstricken, sobald die Anleitung online ist!
19.09.2019 - 12:35
Nihada skrifaði:
Flott genser! Gleder meg til oppskriften . Håper at den kommer snart :-)
09.09.2019 - 17:09
Nathalie Hunter skrifaði:
Amazing !!! i want it. what needle size is it?
03.09.2019 - 08:28
Linda skrifaði:
Wonderful
03.09.2019 - 08:17
Heike skrifaði:
Sieht gut aus, interessantes Zopfmuster, die Ärmel bekommt man wohl in keinen Mantel oder Jacke gesteckt.
25.08.2019 - 15:23
Frosted Cathedral#frostedcathedralsweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROSP Polaris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum og perluprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-23 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI (á við þegar prjónað er með Polaris): Þegar skipt er um dokku af Polaris þá er endanum skipt í tvo hluta á þræðinum sem er að ljúka ca 15 cm. Klippið af annan endann og það sama er gert við nýja þráðinn. Leggið endana saman yfir hvorn annan svo að þykktin verði sú sama og áður. Prjónið áfram. Með þessu er komið í veg fyrir að samskeytin sjáist. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja mynstureiningu A.1 (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur A.3 á ermum og prjónið inn mynstur A.2a á fram- og bakstykki. ATH: Fyrsta útaukningin er útskýrð í uppskrift að neðan. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kraginn og berustykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og baksykki er síðan prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Lesið BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI. KRAGI: Fitjið upp 44-44-48-48-52-52 lykkjur á sokkaprjóna 10 með Polaris. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-4-4-8-8 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-56-56 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 12. Prjónið mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur í A.1 (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2a yfir næstu 12-12-14-14-14-14 lykkjur (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 (= 4 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.3 yfir næstu 2-2-2-2-6-6 lykkjur (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 (= 4 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2a yfir næstu 12-12-14-14-14-14 lykkjur (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 (= 4 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.3 yfir næstu 2-2-2-2-6-6 lykkjur (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 fyrstu lykkjur í A.1 (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt). Haldið svona áfram með mynstur hringinn og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 11-12-13-14-15-16 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning sem útskýrð er að ofan). Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka eru 136-144-156-164-180-188 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 22-24-26-28-30-32 cm frá prjónamerki í hálsmáli. Í næstu umferð (þ.e.a.s. síðasta umferð í þinni stærð, umferð merktri með ör í A.2), skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 38-42-46-48-52-55 lykkjur (= á bakstykki), setjið næstu 30-30-32-34-36-36 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 38-42-46-48-54-58 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 30-30-32-34-36-36 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 0-0-0-0-2-3 lykkjur sem eftir eru (= á bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 88-96-104-108-120-128 lykkjur. Nú er mynstur A.2 prjónað yfir miðju 24-24-26-26-28-28 lykkjur í A.2a – byrjið á fyrstu umferð sem er merkt með ör í þinni stærð, þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar allt A.2b hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist fram- og bakstykki ca 18 cm frá skiptingu í öllum stærðum. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið A.2c yfir A.2b að loka máli. Skiptið yfir á hringprjón 10. Prjónið 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjón og saumuð saman í lokin. Setjið til baka 30-30-32-34-36-36 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á hringprjón 12 og fitjið upp 3 nýjar lykkjur í hvorri hlið í öllum stærðum = 36-36-38-40-42-42 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka eftir mynstri A.3. Prjónið þar til ermin mælist ca 35-34-33-31-29-28 cm frá skiptingu (mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd) – stillið af þannig að endað sé eftir umferð frá röngu. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saum undir ermum í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki þykkur. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostedcathedralsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.