HOURDEBAIGT skrifaði:
Bonjour, Pour le jacquard, pour faire suivre le fil quand il y a beaucoup de mailles entre 2 motifs, vaut il mieux croiser les fils toutes les 2 ou toutes les 3 mailles. Merci
27.11.2019 - 18:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Hourdebaigt, on croise en général le fil toutes les 3 mailles (cf vidéo, toutefois, essayez d'éviter de croiser les fils au même niveau à chaque rang, ils seront ainsi moins visibles sur l'endroit. Bon tricot!
28.11.2019 - 09:31
Diamond Delight Cardigan#diamonddelightcardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 196-42 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9-8½-8½-9 cm millibili. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 11,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 11. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ATH: Kantar að framan eru prjónaðir í grunnlit í mynsturrönd. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleikan þegar mynsturprjónið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það dregst aðeins saman. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með litnum fjólublár. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 3 cm. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 7-7-7-11-11-11 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 95-99-103-111-115-119 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að ofan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1a þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 21-22-23-25-26-27 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.1b (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni – sjá LEIÐBEININGAR að ofan. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1a og A.1b hefur verið prjónað til loka eru 263-275-287-311-323-335 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 23 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. STÆRÐ S: Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðu að framan, prjónið með litnum hveiti og án útaukningar þar til stykkið mælist 24 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. STÆRÐ M - L - XL - XXL - XXXL: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar fyrst: Fyrsta prjónamerkið er sett eftir fyrstu 45-46-50-53-57 lykkjurnar (= framstykki), 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 52-56-60-60-58 lykkjum (= ermi), 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 81-83-91-97-105 lykkjum (= bakstykki) og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 52-56-60-60-58 lykkjum (= ermi), nú eru 45-46-50-53-57 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= framstykki). Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan, með hveiti – JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í 4. hverri umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist 26-27-29-31-33 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið síðan með litnum hveiti til loka. Næsta umferð er prjónuð í sléttprjóni þannig: Prjónið 43-46-48-52-56-61 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 50-54-60-64-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 77-83-87-95-103-113 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 50-54-60-64-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 43-46-48-52-56-61 lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 175-187-199-215-235-255 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með litnum hveiti, kantlykkjur að framan í hvorri hlið halda áfram eins og áður. Þegar stykkið mælist 28-28-29-29-29-29 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 29-29-33-33-37-41 lykkjur jafnt yfir = 204-216-232-248-272-296 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið næstu umferð þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroffið svona í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með prjón 5,5. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl. ERMI: Setjið 50-54-60-64-66-66 lykkjur af bandi á annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-60-68-72-76-76 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 10-12-15-16-17-16 sinnum = 36-36-38-40-42-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 39-37-37-35-33-32 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-2-4-2-4 lykkjur jafnt yfir = 40-40-40-44-44-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Ermin mælist ca 42-40-40-38-36-35 cm frá skiptingu. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með prjón 5,5. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #diamonddelightcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-42
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.