Jakobs skrifaði:
Bitte erklären Sie mir wie ich den Zwickel schließen kann. M.f.G. Ilona Jakobs
25.01.2021 - 13:34DROPS Design svaraði:
Lieber Jakobs, bei der Verteilung haben Sie je (12) 12-12-12-16 (16-16) Maschen an der vorderen und hinten Mitte abgekettet. Am Ende nähen Sie diese Maschen wie in diesem Video zusammen. Viel Spaß beim stricken!
25.01.2021 - 14:07
Liv-Gunn Strand skrifaði:
Fin oppskrift. Akkurat det jeg var på jakt etter.
09.11.2020 - 13:07
Frederike Peters skrifaði:
Inderdaad zoals hierboven gezegd, het past niet op een rondbreinaald van 60cm. Aanpassen graag!
05.11.2020 - 12:10
Suzanne Fletcher skrifaði:
Lovely pattern
08.05.2020 - 15:10
Suzanne Fletcher skrifaði:
Lovely pattern
08.05.2020 - 15:09
Charlotte skrifaði:
Op een 60 cm rondbreinaald krijg ik t niet rond, denk dat er 40cm moet staan.
16.09.2019 - 20:08
Baby Talk Pants#babytalkpants |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónaðar buxur fyrir börn í stroffprjóni og húfa í perluprjóni. Settið er prjónað úr DROPS BabyMerino. Stærð: Fyrirburar til 4 ára.
DROPS Baby 33-31 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út hvoru megin við 2 lykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í sléttprjón og aukið er að utan verðu við nýjar lykkjur (þ.e.a.s. fyrsta útaukningin er gerð hvoru megin við 2 lykkjur, önnur útaukning er gerð hvoru megin við 4 lykkjur o.s.frv.) LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið síðan 2 lykkjur saman (í stroffi), prjónið 2 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja) og prjónið síðan 2 lykkjur snúnar saman (í stroffprjóni) GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um húfu): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. Umferðin byrjar mitt að aftan. BUXUR: Fitjið upp (88) 96-104-120-128 (136-144) lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Baby Merino. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan) og 1 prjónamerki eftir (44) 48-52-60-64 (68-72) lykkjur (= mitt að framan). Prjónið stroffprjón frá miðju að aftan þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* endið með 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt. Þegar stroffprjónið mælist 3 cm er skipt yfir á hringprjón 3. Prjónið nú upphækkun að aftan þannig: Prjónið (7) 7-9-9-9 (9-9) lykkjur stroffprjón, snúið, herðið á þræði, prjónið (14) 14-18-18-18 (18-18) lykkjur stroffprjón til baka, snúið, herðið á þræði, prjónið (20) 20-26-26-26 (26-26) lykkjur stroffprjón, snúið, herðið á þræði, prjónið (26) 26-34-34-34 (34-34) lykkjur stroffprjón til baka. Haldið svona áfram með því að prjóna (6) 6-8-8-8 (8-8) lykkjur fleiri fyrir hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls (50) 50-66-66-82 (82-82) lykkjur. Snúið, prjónið síðan stroffprjón hringinn aftur yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist (10) 12-13-16-15 (16-17) cm mitt að framan, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 miðjulykkjur að framan og að aftan – SJÁ ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð, alls (8) 8-8-8-12 (12-12) sinnum = (120) 128-136-152-176 (184-192) lykkjur. Þegar stykkið mælist (15) 17-18-21-22 (23-24) cm (nú á útaukning að vera lokið), fellið af (12) 12-12-12-16 (16-16) lykkjur mitt að framan og mitt að aftan. Hvor skálm er prjónuð til loka fyrir sig, setjið lykkjur frá annarri skálminni á þráð. SKÁLM: = (48) 52-56-64-72 (76-80) lykkjur. Skiptið lykkjum á 4 sokkaprjóna nr 3 og haldið áfram í stroffprjóni hringinn – setjið 1 prjónamerki í skálmina að innan verðu. Þegar skálmin mælist 2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – SJÁ LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í (4.) 6.-6.-4.-4. (6.-6.) hverri umferð alls (4) 4-4-8-8 (8-8) sinnum = (40) 44-48-48-56 (60-64) lykkjur. Þegar stykkið mælist ca (13) 17-20-23-26 (31-36) cm (eða e.t.v. að óskaðri lengd), fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Setjið til baka lykkjur frá hinni skálminni á prjóninn og prjónið eins og fyrri skálm. FRÁGANGUR: Saumið (12) 12-12-12-16 (16-16) lykkjur sem felldar voru af á milli skálma að hvorri annarri. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Húfan er prjónuð í hring, neðan frá og upp. Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið laust upp (68) 80-92-96-104 (112-116) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með DROPS Baby Merino. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í (2) 2-3-3-3 (4-4) cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT því sem fækkað er um 8 lykkjur jafnt yfir = (60) 72-84-88-96 (104-108) lykkjur. Prjónið síðan PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (9) 10-11-11-13 (13-14) cm – prjónið stykkið í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð, fækkið um (6) 8-7-8-8 (8-9) lykkjur jafnt yfir. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð með sléttum lykkjum), (5) 5-5-5-5 (6-6) sinnum til viðbótar (= alls (6) 6-6-6-6 (7-7) úrtöku umferðir) = (24) 24-42-40-48 (48-45) lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Prjónið 1 umferð brugðið og endurtakið úrtöku í næstu umferð í 1/3, 6/9, 12/18 mán og (2 - 3/4) ára (ekki er fleiri lykkjum fækkað í hinum stærðunum) = (12) 12-11-10-12 (12-12) lykkjur. Þræðið tvöfaldan þráð í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #babytalkpants eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.