Wissel Karin skrifaði:
Hallo, ich möchte dieses Modell als Herrenpullover stricken. Können sie mir dazu eine Anleitung geben? Vielen Dank im voraus.
03.10.2019 - 15:50DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Wissel, hier lesen Sie mehr darüber. Viel Spaß beim stricken!
03.10.2019 - 15:59
Kari Norheim skrifaði:
Hvorfor kommer så mange oppskrifter som skal strikkes fra hals til bunn
23.09.2019 - 22:13
Lena skrifaði:
Så fin vill haaaa
23.07.2019 - 18:51
Janne Vikøren skrifaði:
Flott mønster og fargesammensetning
06.07.2019 - 15:27
Simone-Gitta skrifaði:
Wintertraum
27.06.2019 - 15:41
Mirjam skrifaði:
Flot i farvesammensætning, flotte mønstre.
22.06.2019 - 19:36
Tiziana Gervasutti skrifaði:
Caldo ed avvolgente
06.06.2019 - 23:01
Carole Brisson skrifaði:
Le jacquart et les couleurs sont tres jolis.
05.06.2019 - 23:20
Winter Fjords#winterfjordssweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-21 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ATH: Til að táknið fyrir uppslátt verði meira sýnilegt eru notuð 2 mismunandi tákn í mynsturteikningu. Báðir uppslættirnir eru prjónaðir snúnir í næstu umferð svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 14. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 14. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-92-96-108 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með litnum svartur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. BERUSTYKKI: Skiptið yfirá stuttan hringprjón 5,5. Prjónið nú 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-12-13-14-16-22 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir) = 90-100-105-110-120-130 lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt. Prjónið nú mynstur A.1 (= 5 lykkjur) hringinn í umferð (= alls 18-20-21-22-24-26 mynstureining á breidd). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 216-240-252-264-288-312 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 24 cm frá uppfitjunarkanti og niður. Haldið síðan áfram með litnum brúnn þar til stykkið mælist 25-27-29-31-33-35 cm, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-25-27-29-31-33 cm, aukið út um 0-0-8-10-12-14 lykkjur jafnt yfir - munið eftir ÚTAUKNING-1 = 216-240-260-274-300-326 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 30-34-37-40-45-50 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 47-52-56-57-60-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 61-68-74-80-90-100 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 47-52-56-57-60-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 31-34-37-40-45-50 lykkjur (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 138-152-164-180-200-220 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 8-8-8-10-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 4-4-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram hringinn með litnum brúnn og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 16 cm = 146-160-172-188-208-228 lykkjur. Þegar stykkið mælist 27 cm, aukið út um 22-24-24-28-28-32 lykkjur jafnt yfir = 168-184-196-216-236-260 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður mitt að framan. ERMI: Setjið 47-52-56-57-60-63 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-60-64-67-70-73 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur (= 4-4-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Byrjið umferð hér og prjónið sléttprjón hringinn með litnum brúnn. Þegar stykkið mælist 4-4-4-4-4-5 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-2-2-1½ cm millibili alls 10-12-13-13-14-15 sinnum = 35-36-38-41-42-43 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-36-34-33-31-30 cm, aukið út um 5-4-6-7-6-9 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Ermin mælist alls 41-40-38-37-35-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterfjordssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.