Rosa MANTIONE skrifaði:
Bonjour, j'ai suivi exactement les instructions, tant pour la commande des fournitures que pour la réalisation de ce pull, mais j'aimerais signaler que j'ai juste assez de laine gris clair (mais vraiment pile) et, par contre, deux pelotes de vert forêt de trop et deux pelotes de gris de trop ! Il y a sûrement une erreur dans les quantités ?! J'ai eu peur, mais le pull est beau !
29.11.2019 - 11:10DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Mantione, et merci pour votre retour. Votre échantillon et votre tension lors de la réalisation du pull étaient-ils justes? Autrement dit, avez-vous bien 10,5 m x 14 rangs = 10 x 10 cm? Si c'est le cas, pouvez-vous nous indiquer la taille que vous avez réalisé? L'information sera transmise à nos stylistes, merci d'avance. Bon tricot!
29.11.2019 - 11:12
Ana skrifaði:
Bonjour, moi j’ai déjà du mal avec l’échantillon - avec 10 mailles, je n’ai même pas 8 cm, alors que je ne tricote pas vraiment serré ... en hauteur aussi, il me manque un bon centimètre avec 14 rangs. J’ai commencé le pull, j’ai dû défaire le travail car ma tête ne passait pas... je suis un peu découragée :(
13.11.2019 - 21:10DROPS Design svaraði:
Bonjour Anna, vous tricotez bien avec 2 fils Brushed Alpaca Silk en même temps? N'hésitez pas à utiliser des aiguilles plus grosses pour obtenir le bon échantillon, car si vous n'avez pas le bon nombre de mailles pour 10 cm, votre ouvrage sera automatiquement trop petit/court - plus d'infos sur l'échantillon ici. Bon tricot!
14.11.2019 - 10:15
Valérie skrifaði:
Merci pour votre réponse. J'ai réalisé ce pull il rend très bien !
27.10.2019 - 08:13
Valérie skrifaði:
Bonjour, je suis surprise des dimensions notées sur le diagramme : elles ne correspondent pas à la longueur totale. Quelles sont les réelles dimensions pour une taille M ? Par ailleurs est ce normal pour une taille M que la dernière rayure soit plus large que les autres? Merci de votre réponse.
24.10.2019 - 08:49DROPS Design svaraði:
Bonjour Valérie, les mesures du schéma sont correctes: vous avez 4 cm pour l'épaule + 21 cm d'empiècement + 25 cm après les emmanchures jusqu'en bas pour le devant = 50 cm au total pour le devant + 10 cm supplémentaires pour le dos = 60 cm au total pour le dos. La dernière rayure sera plus large dans toutes les tailles car le dos est plus long. Bon tricot!
24.10.2019 - 10:50
Désirée Delsing skrifaði:
Hej! Kan man sticka denna i Andes?
03.09.2019 - 21:18DROPS Design svaraði:
Hej Desiree, jo du kan strikke den i DROPS Andes, sørg for at overholde strikkefastheden som der står i opskriften. God fornøjelse!
06.09.2019 - 08:44
Rut Baltzer skrifaði:
Hvor meget garn skal jeg bruge ialt til Forest Shadows Sweater i M, hvis jeg ønsker at strikke den i to farver med 2/3 den ene og 1/3 den anden farve? Tak på forhånd. Vh. Rut
29.08.2019 - 14:50DROPS Design svaraði:
Hej Rut, du skal bruge ialt ca 325 g til størrelse M, det har vi ikke regnet på i 2 farver... men hvis du vil strikke den fordelt som du skriver, så skal du bruge 125 g i den ene og 200 g i den anden farve. God fornøjelse!
02.09.2019 - 15:41
Annika skrifaði:
Hej! Kan man sticka den här tröjan i Kid-Silk?
20.08.2019 - 06:34DROPS Design svaraði:
Hej. Om du ska sticka den i Kid-Silk får du använda 6 trådar (2 trådar Kid-silk motsvarar 1 tråd Brushed Alpaca Silk). Tänk bara som vanligt på att få riktig stickfasthet och att beräkna rätt garnåtgång om du byter till ett annat garn. Lycka till!
20.08.2019 - 08:51
Annika skrifaði:
Hej! Kan man sticka den här tröjan i Kid-Silk?
20.08.2019 - 06:32
Forest Shadows Sweater#forestshadowssweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með laskalínu úr 3 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-15 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 48 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 4,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. RENDUR-1: Allar rendur eru prjónaðar með 3 þráðum. RÖND 1: 7-7-8-8-8-9 cm með 2 þráðum skógargrænn + 1 þræði grár. RÖND 2: 14-14-16-16-16-18 cm með 2 þráðum grár + 1 þræði skógargrænn. RÖND 3: 7-7-8-8-8-9 cm með 1 þræði skógargrænn + 1 þræði grár + 1 þræði ljós grár. RÖND 4: 7-7-8-8-8-9 cm með 2 þráðum grár + 1 þræði ljós grár. RÖND 5: 7-7-8-8-8-9 cm með 1 þræði grár + 2 þráðum ljós grár. RÖND 6: Prjónið með 3 þráðum ljós grár til loka. RENDUR-2 (á við um ermar): Allar rendur eru prjónaðar með 3 þráðum. Haldið nú áfram með RENDUR-1 – sjá útskýringu að ofan, þar til 3. röndin hefur verið prjónuð til loka. Ermin mælist nú ca 8-6-8-6-4-6 cm frá skiptingu. Prjónið nú rendur þannig: RÖND 4: 13-13-12-12-12-11 cm með 2 þráðum grár + 1 þræði ljós grár. RÖND 5: 13-13-12-12-12-11 cm með 1 þræði grár + 2 þráðum ljós grár. RÖND 6: Prjónið með 3 þráðum ljós grár til loka. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hvert af prjónamerkjum sem eftir eru. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 48-52-52-52-56-56 lykkjur á hringprjón 6 með 3 þráðum í litnum skógargrænum. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Setjið 1 prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-10-10-14-18-22 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 58-62-62-66-74-78 lykkjur. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið fyrsta prjónamerkið eftir 10-11-11-12-14-15 lykkjur (= hálft bakstykki), hoppið yfir næstu 8 lykkjur (= ermi), setjið eitt prjónamerki hér, hoppið yfir næstu 21-23-23-25-29-31 lykkjur (= framstykki), setjið eitt prjónamerki hér, hoppið yfir næstu 8 lykkjur (= ermi), setjið eitt prjónamerki hér, nú eru 11-12-12-13-15-16 lykkjur á milli síðasta prjónamerkis og byrjun á umferð (= hálft bakstykki). Skiptið yfir á hringprjón 8. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og prjónið RENDUR-1 – sjá útskýringu að ofan. Jafnframt í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 12-13-15-16-16-17 sinnum = 154-166-182-194-202-214 lykkjur. Haldið síðan áfram með útaukningu í annarri hverri umferð á framstykki og bakstykki (ekki er aukið út yfir ermar = 4 lykkjur fleiri í umferð) 2-2-2-2-3-4 sinnum til viðbótar = 162-174-190-202-214-230 lykkjur. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 24-26-28-30-33-36 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 32-34-38-40-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 49-53-57-61-67-73 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 32-34-38-40-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 25-27-29-31-34-37 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 110-118-126-138-150-162 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og RENDUR-1. Þegar stykkið mælist 20 cm, setjið helming af lykkjum, þ.e.a.s. lykkjum á framstykki á þráð = 55-59-63-69-75-81 lykkjur. Prjónið síðan fram og til baka yfir 55-59-63-69-75-81 lykkjur sem eftir eru fyrir bakstykki. Í næstu 2 umferðum er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok umferðar fyrir kantlykkju = 57-61-65-71-77-83 lykkjur. Kantlykkjur eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 31 cm er aukið út um 7-7-11-13-15-17 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 64-68-76-84-92-100 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni,(2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. Bakstykkið mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. Setjið til baka 55-59-63-69-75-81 lykkjur af þræði á hringprjón 8. Prjónið síðan með 3 þráðum í litnum jós grár til loka. Prjónið 2 umferðir sléttprjón þar sem aukið er út um 7-7-11-13-15-17 lykkjur jafnt yfir, jafnframt er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok þessa 2 umferða fyrir kantlykkjur = 64-68-76-84-92-100 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið nú stroff þannig: 1 kantlykkja garðaprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Saumið e.t.v. saman op í hvorri hlið. Framstykki er ca 10 cm styttra en bakstykki og mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 32-34-38-40-40-42 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 38-40-44-48-48-50 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón og RENDUR-2, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4½-3½-3-2-2-2 cm millibili alls 7-8-9-11-10-11 sinnum = 24-24-26-26-28-28 lykkjur. Þegar stykkið mælist 38-36-35-33-31-30 cm aukið út um 4-4-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 28-28-32-32-36-36 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 6. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 41-39-38-37-35-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forestshadowssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.