Laura skrifaði:
Hallo, ik wil graag deze trui breien maar de beschrijving is niet helemaal duidelijk. In het patroon wordt gesproken van telpatroon A1, A2 en A3. Maar ik kan de telpatronen A1 en A3 nergens vinden. Staan die in telpatroon A2 erbij? Hopelijk kunnen jullie hierbij helpen. Alvast dank.
18.08.2019 - 12:03DROPS Design svaraði:
Dag Laura,
Deze staan in de schematekening helemaal onderaan, onder de mouw .
08.09.2019 - 18:19
Maia skrifaði:
Fint mönster, inte för mycket!
26.06.2019 - 23:54
Emma skrifaði:
Leuk!
23.06.2019 - 15:15
Debra Charnuski skrifaði:
Design Name suggestion: Momentum
20.06.2019 - 20:37
Johanna skrifaði:
Love the V-neck which is unfortunately not often designed !
15.06.2019 - 22:36
Madlenka skrifaði:
Krásný jednoduchý svetr s výstřihem do V
11.06.2019 - 17:54
Ellis skrifaði:
Nice for young, skinny people and beginning knitters.
09.06.2019 - 19:10
ÉlianeSG skrifaði:
J’adore l’encolure en V et la limpidité de ce modèle
07.06.2019 - 09:00
Sahar Taha skrifaði:
So cute and simple
06.06.2019 - 09:32
April Gold#aprilgoldsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með áferðamynstri og gataumferðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-51 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (á við um v-hálsmál): Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, prjónið 2 lykkjur garðaprjón (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR: Í þessu stykki eru lykkjur prjónaðar upp meðfram handveg og ermar eru prjónaðar ofan frá og niður. Þetta er gert til að fá betri yfirsýn yfir lengd á ermum. Það er líka hægt að prjóna ermarnar sér og sauma þær síðan á í lokin, þetta er einfalt að gera með því að fitja upp jafn margar lykkjur og prjóna á upp meðfram handveg og síðan að fylgja útskýringum fyrir ermar. Sauma ermer í innan við 2 umferðir garðaprjón meðfram handveg og sauma botninn á handveg. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------ PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Lykkjum er fækkað fyrir handveg. Síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón, hvort fyrir sig. Axlasaumar eru saumaðir. Síðan eru prjónaðar upp lykkjur meðfram handveg fyrir ermar. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón þar til ermakúpan er tilbúin, síðan er afgangur af ermum prjónaður í hring á sokkaprjóna /stuttan hringprjón, ofan frá og niður til loka. Að lokum er botninn saumaður við handveg og kantur í hálsi prjónaður. Allt stykkið er prjónað með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 138-146-162-170-194-210 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði Sky + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 69-73-81-85-97-105 lykkjur (= í hliðum á fram- og bakstykki). Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð þannig: * prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1A þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið A.1B (= 1 lykkja og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist 5-6-7-6-7-8 cm, en stillið af að næsta umferð sé umferð þar sem prjónað er slétt yfir allar lykkjur. Nú er sett 1 prjónamerki mitt að framan og 1 prjónamerki mitt að aftan á fram- og bakstykki, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: * prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið 33-35-39-41-47-51 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, prjónið næstu 33-35-39-41-47-51 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Nú byrjar gataumferð í A.2, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið A.1A yfir næstu 30-32-36-38-44-48 lykkjur, prjónið A.2 yfir næstu 7 lykkjur (miðju lykkja í A.2 = lykkja með prjónamerki í), prjónið A.3 yfir næstu 30-32-36-38-44-48 lykkjur, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur. A.X er endurtekið á hæðina. JAFNFRAMT heldur gataumferð áfram eins langt og hægt er út að hvorri hlið (þ.e.a.s. alveg inn að 2 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið á fram- og bakstykki). Þegar A.X hefur verið prjónað alls 3 sinnum á hæðina, prjónið A.1 eins og áður yfir allar lykkjur, en látið línurnar í A.2 halda áfram alveg út í hvorri hlið. HANDVEGUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið. Þ.e.a.s. stillið af að næsta umferð sé umferð þar sem prjónað er slétt yfir allar lykkjur og prjónið næstu umferð þannig: Fellið af 2-2-4-4-6-6 lykkjur fyrir handveg, prjónið slétt yfir næstu 65-69-73-77-85-93 lykkjur, fellið af 4-4-8-8-12-12 lykkjur fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 2-2-4-4-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hlið), prjónið slétt yfir næstu 65-69-73-77-85-93 lykkjur og fellið af þær 2-2-4-4-6-6 lykkjur sem eftir eru fyrir handveg. Klippið frá. Bakstykki og framstykki er síðan prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 65-69-73-77-85-93 lykkjur. Haldið áfram með mynstur á sama hátt og á fram- og bakstykki, en nú er prjónað fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm, fellið af miðju 23-23-23-27-27-27 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 1 lykkju 2 sinnum = 19-21-23-23-27-31 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 65-69-73-77-85-93 lykkjur. Haldið áfram með mynstur á sama hátt og á fram- og bakstykki, en nú er prjónað fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm byrjar affelling fyrir v-hálsmáli. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 31-33-35-37-41-45 lykkjur slétt, setjið síðan þessar 31-33-35-37-41-45 lykkjur á þráð eða hjálparprjón, fellið af 3 lykkjur fyrir v-hálsmáli (miðju á þessum 3 lykkjum er lykkjan með prjónamerki í) og prjónið 31-33-35-37-41-45 lykkjur sem eftir eru slétt. Hvor hluti er síðan prjónaður hvor fyrir sig. HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): = 31-33-35-37-41-45 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umferð (rétta), er fækkað um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli í byrjun á umferð frá hálsi – sjá ÚRTAKA-1. Haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 6-6-6-7-7-7 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 6-6-6-7-7-7 sinnum = 19-21-23-23-27-31 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Setjið til baka 31-33-35-37-41-45 lykkjur af þræði /hjálparprjóni á hringprjón 7. Prjónið til baka frá kantlykkju frá röngu með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið. Í næstu umferð (rétta), er fækkað um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli í lok á umferð við háls – sjá ÚRTAKA-1. Haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð alls 6-6-6-7-7-7 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-6-7-7-7 sinnum = 19-21-23-23-27-31 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. ERMI: Lesið LEIÐBEININGAR! Prjónið upp lykkjur meðfram handveg á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. í byrjun í horni á handveg í annarri hlið á stykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg og prjónið upp frá réttu 53-55-59-61-65-67 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á hringprjón 7 með 1 þræði í hvorri tegund (þ.e.a.s. það á ekki að prjóna upp lykkjur í botni á handveg). Byrjið á 2. umferð í A.1 og prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1B (= 1 lykkja), prjónið A.1A þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona. Þegar ermin mælist 1-1-3-3-4-4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, setjið 1 prjónamerki í umferð. Prjónamerkið merkir hvar á að sauma ermina í síðar við botn á handveg og ermin er nú mæld frá þessu prjónamerki. Prjónið síðan ermina hringinn. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 7. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Haldið áfram með A.1 hringinn með 1 lykkju í garðaprjóni hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi (= 2 lykkjur í garðaprjóni mitt undir ermi). Þegar ermin mælist 3-3-3-3-2-2 cm frá prjónamerki, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 4-4-3-3-2½-2½ cm millibili alls 10-10-12-12-14-14 sinnum = 33-35-35-37-37-39 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 44-44-41-41-39-37 cm frá prjónamerki (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu. Skiptið yfir á sokkaprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), en passið uppá að prjónaðar séu sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkju. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermar í við botn á handveg frá prjónamerki og inn að horni í hvorri hlið. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra öxlina og prjónið upp ca 96-100-104-112-116-120 lykkjur frá réttu í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 6 með 1 þræði af hvorri tegund (prjónið upp innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram v-hálsmáli og passið einnig uppá að prjóna upp 3 lykkjur nákvæmlega mitt framan í v-hálsmáli). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), en passið uppá að það verði 1 lykkja slétt mitt framan í v-hálsmáli. Setjið 1 prjónamerki í þessa sléttu lykkju. JAFNFRAMT í hverri umferð er fækkað um 2 lykkjur mitt að framan þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, takið 2 næstu lykkjur óprjónaðar eins og prjóna eigi þær slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt og steypið 2 óprjónuðu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Þegar úrtakan er gerð svona þá kemur slétta lykkjan mitt í v-hálsmáli til með að fylgja með allan tímann eins og bein lína við miðju að framan. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð þar til kantur í hálsi mælist ca 5 til 6 cm í prjónstefnu (eða að óskuðu máli, því breiðari sem kanturinn í hálsmáli er prjónaður, því minni verður opið í hálsmáli). Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #aprilgoldsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-51
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.