DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Rise Up

Prjónuð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri, klauf í hliðum og tvöföldu perluprjóni á ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 205-50
DROPS Design: Mynstur sk-055
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-250-300-350-350 g litur 01, hvítur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125-150-150-175 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: Lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPSA HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------<br />
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 3,6.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. A.3 á við um LEIÐBEININGAR-2.

LEIÐBEININGAR-1:
Ef þú vilt hafa kúlur í gatamynstri, getur lykkjan með tákni fyrir kúlur verið prjónuð í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR-2:
Í stykkinu á myndinni endar gataumferðin í laskalínu þegar útaukning fyrir laskalínu endar. Ef þú vilt að gataumferðin haldi áfram meðfram allri laskalínunni (niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar), er hægt að prjóna A.3 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þegar útaukning fyrir laskalínu endar (prjónamerkið á að sitja í miðju lykkjunni í A.3).

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (þ.e.a.s. aukið út hvoru megin við 4 prjónamerkin) þannig: Byrjið 1 lykkju á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt (prjónamerki situr í miðju á þessum 3 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við hvert prjónamerki og alls 8 lykkjur fleiri í umferð).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni á framstykki og bakstykki og í tvöföldu perluprjóni (A.1) á ermum.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón þar til það skiptist með klauf í hvorri hlið. Prjónið síðan framstykki og bakstykki fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 72-72-78-84-84-90 lykkjur á stuttan hringprjón 5 með 1 þræði Sky + 2 þráðum Kid-Silk (= 3 þræðir). Takið frá annan þráðinn af Kid-Silk og prjónið síðan með 1 þræði Sky + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-28-30-28-28-30 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 92-100-108-112-112-120 lykkjur. Setjið 1 prjónmerki í umferð. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan – berustykkið mælist frá prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Lesið allan kaflann um berustykki áður en byrjað er að prjóna! Skiptið yfir á hringprjón 6. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjur): Setjið 1 prjónamerki í aðra lykkjuna í umferð, teljið 9 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 35-39-43-45-45-49 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 9 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 34-38-42-44-44-48 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= bakstykki). Prjónamerkin eru notuð þegar aukið er út fyrir laskalínu.
Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 3 lykkjur í sléttprjóni (prjónamerki situr í miðju á þessum 3 lykkjum), prjónið A.1A yfir 6 næstu lykkjur, prjónið A.1B (= 1 lykkja), prjónið 3 lykkjur í sléttprjóni (prjónamerki situr í miðju á þessum 3 lykkjum), prjónið 5-7-8-9-7-9 lykkjur í sléttprjóni, prjónið A.2 (= 23-23-25-25-29-29 lykkjur), prjónið 5-7-8-9-7-9 lykkjur í sléttprjóni, prjónið 3 lykkjur í sléttprjóni (prjónamerki situr í miðju á þessum 3 lykkjum), prjónið A.1A yfir 6 næstu lykkjur, prjónið A.1B (= 1 lykkja), prjónið 3 lykkjur í sléttprjóni (prjónamerki situr í miðju á þessum 3 lykkjum), prjónið 5-7-8-9-7-9 lykkjur í sléttprjóni, prjónið A.2 (= 23-23-25-25-29-29 lykkjur) og endið með 5-7-8-9-7-9 lykkjur í sléttprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur – sjá LEIÐBEININGAR-1 og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 16-18-19-21-23-25 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 220-244-260-280-296-320 lykkjur í umferð.
Lesið LEIÐBEININGAR-2 og prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist ca 22-24-26-28-30-32 cm frá prjónamerki í hálsmáli.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig:
STÆRÐ S og XXL: Prjónið eins og áður fram að fyrstu lykkju með prjónamerki í, setjið næstu 41-55 lykkjur á 1 þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 69-93 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 41-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-10 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður út umferðina (= bakstykki). Klippið frá og takið frá prjónamerkin í laskalínunni.
STÆRÐ M og XL: Prjónið eins og áður fram að fyrstu lykkju með prjónamerki í, setjið næstu 47-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 75-87 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 47-53 lykkjur á 1 þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður út umferðina (= bakstykki). Klippið frá og takið frá prjónamerkin í laskalínunni.
STÆRÐ L: Setjið fyrstu 51 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 79 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 51 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður út umferðina (= bakstykki).
Klippið frá og takið frá prjónamerkin í laskalínunni.
STÆRÐ XXXL: Prjónið eins og áður yfir 3 lykkjur í laskalínu (þ.e.a.s. til og með lykkju eftir lykkju með prjónamerki í), setjið næstu 57 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 103 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 57 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður út umferðina (= bakstykki). Klippið frá og takið frá prjónamerkin í laskalínu.

ALLAR STÆRÐIR:
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 150-162-174-190-206-226 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið (= 75-81-87-95-103-113 lykkjur á framstykki og 75-81-87-95-103-113 lykkjur á bakstykki).
Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 3 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið 23-26-28-32-34-39 lykkjur í sléttprjóni, haldið áfram með A.2 eins og áður, prjónið 23-26-28-32-34-39 lykkjur í sléttprjóni, prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), prjónið 23-26-28-32-34-39 lykkjur í sléttprjóni, haldið áfram með A.2 eins og áður, prjónið 23-26-28-32-34-39 lykkjur í sléttprjóni og endið með 3 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 16 cm frá skiptingu undir ermum (nú eru ca 20 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Nú skiptist stykkið við prjónamerkin í hliðum, þ.e.a.s. framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig til loka (passið uppá að stykkið skiptist eftir að prjónuð hefur verið 1 umferð með mynstri til að koma í veg fyrir að mynstur umferð komi á röngu).

FRAMSTYKKI:
= 75-81-87-95-103-113 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið 23-26-28-32-34-39 lykkjur í sléttprjóni, haldið áfram með A.2 eins og áður, prjónið 23-26-28-32-34-39 lykkjur í sléttprjóni og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni.
Prjónið þar til stykkið mælist 34 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 2 cm að loka máli). Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur (1. umferð er prjónuð frá réttu). Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með 1 þræði Sky og 2 þráðum Kid-Silk (= 3 þræðir). Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
= 75-81-87-95-103-113 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið 23-26-28-32-34-39 lykkjur í sléttprjóni, haldið áfram með A.2 eins og áður, prjónið 23-26-28-32-34-39 lykkjur í sléttprjóni og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 34 cm frá skiptingu (stillið af eftir framstykki). Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur (1. umferð er prjónuð frá réttu). Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu á sama hátt og á framstykki.

ERMI:
Setjið 41-47-51-53-55-57 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 6 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 47-53-59-61-65-67 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjón, haldið áfram með A.1A hringinn þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (passið uppá að mynstrið haldi áfram rétt miðað við þar sem það endaði á berustykki), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-3-3-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1½-1½-1½ cm millibili alls 5-7-9-9-10-10 sinnum = 37-39-41-43-45-47 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 41-40-38-36-35-33 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis).
Skiptið yfir á sokkaprjón 5. Prjónið 4 umferðir með stroffi (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), en passið uppá að stroffið þannig að fyrsta umferðin sé prjónuð brugðið yfir slétt og slétt yfir brugðið í A.1. Eftir 4 umferðir með stroffi er fellt laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með 1 þræði Sky og 2 þráðum Kid-Silk (= 3 þræðir). Ermin mælist ca 43-42-40-38-37-35 cm frá skiptingu undir ermi.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 23.10.2019
Nýr texti undir mynsturteikningu fyrir kúlu

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 2 sinnum uppá prjóninn, í næstu umferð er annar uppslátturinn prjónaður í sléttprjóni og hinn er látinn falla niður (= stórt gat)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = Kúla: Prjónið í sömu lykkju þannig: * 1 lykkja slétt, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju (= 7 lykkjur í kúlu). Prjónið 4 umferðir sléttprjón fram og til baka yfir þessar 7 lykkjur (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Eftir síðustu umferð er 6. lykkju steypt yfir 7. lykkju, steypið 5. lykkju yfir 7. lykkju. Steypið 4. lykkju yfir 7. lykkju o.s.frv. þar til 1 lykkja er eftir.
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-50

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag JACQUELINE PEYRE wrote:

POUR LE MODELE 205-50 JE VOUDRAIS SAVOIR A QUEMµL MOMENT ON TRICOTE LE DIAGRAMME A3 ? J'AI TERMINE LE RAGLAN ET JE NE COMPRENDS PAS OU ON PLACE LE A3 MERCI POUR VOS EXPLICATIONS

31.10.2022 - 08:25

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Peyre, le diagramme A.3 est cité sous le paragraphe ASTUCE TRICOT-2, autrement dit, on tricote A.3 le long des raglans lorsque les augmentations des raglans sont terminés mais que l'on veut prolonger les rangs ajourés le longs des raglans. Bon tricot!

31.10.2022 - 09:33

country flag Vu wrote:

Je souhaiterais faire ce modèle mais en tricotant de bas en haut. Comment faire pour adapter les explications données ? Merci pour votre réponse.

17.11.2021 - 14:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vu, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande; merci de bien vouloir vous rapprocher de votre magasin DROPS ou d'un forum spécialisé pour toute assistance complémentaire. Merci pour votre compréhension, bon tricot!

17.11.2021 - 16:47

country flag Halina wrote:

Czy we wzorze nie na rzędów skróconych podnoszących karczek na plecach?

02.11.2021 - 20:09

DROPS Design answered:

Witaj Halinko, w tym wzorze nie ma takiego podwyższenia na dekolt z tyłu, ale oczywiście jak tylko chcesz możesz je wykonać. Pozdrawiamy!

03.11.2021 - 09:32

country flag Kelly wrote:

I’m making the XXL and the math isn’t working for me in the yoke. The number of stitches (112) and the math with stitches and additions is good but then when adding in markers that math is less than 112. Please advise.

04.04.2020 - 22:51

DROPS Design answered:

Hi Kelly, The first marker is in stitch 2, the second in stitch 12, the third in stitch in stitch 58, the fourth in stitch 68. This leaves you with 44 stitches to the end of the round. Happy knitting!

06.04.2020 - 07:54

country flag Sabine wrote:

Bonjour Vous avez beaucoup de modèles intéressants cependant je ne comprends pas pourquoi sur la majorité des modèles depuis un moment vous faites des emmanchures très larges, c'est désagréable car lorsque l'on lève le ou les bras tout le tricot remonte.

15.02.2020 - 18:41

country flag House wrote:

Bonjour. Je voudrais tricoter ce modèle avec le fil sky uniquement. Par conséquent je le tricoterai avec des aiguilles n°4. Pouvez-vous m'aider pour convertir le nombre de mailles, d'augmentations etc.. merci beaucoup d'avance.

21.10.2019 - 06:09

DROPS Design answered:

Bonjour Mme House, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande. On tricote ici avec 1 fil Sky + 1 fil Kid-Silk, vous pouvez remplacer le fil Kid-Silk par un autre fil du groupe A si vous le souhaitez, tant que vous avez le même échantillon. Bon tricot!

21.10.2019 - 11:48

country flag Diana wrote:

Please delete my previous comment, I was reading the pattern wrong lol

20.10.2019 - 09:25

country flag Diana wrote:

Neck edge has 92 stitches for size s, but start of the yoke is 89... please advise.

20.10.2019 - 09:16

DROPS Design answered:

Dear Diana, yoke starts with 92 sts: 1 stitch, 1 stitch with marker, 9 sts (sleeve), 1 stitch with marker, 35 sts (front piece), 1 stitch with marker, 9 sts (sleeve), 1 stith with marker, 34 sts (back piece) = 1+1+9+1+35+1+9+1+34= 92 sts. Happy knitting!

21.10.2019 - 12:49

country flag Anna Maria wrote:

Come fare per lavorarlo dal basso verso l'alto

08.10.2019 - 19:25

DROPS Design answered:

Buonasera Anna Maria, questo modello è stato disegnato per essere lavorato top down, cioè dall'alto in basso e non ci è possibile riscrivere le istruzioni per un'altra costruzione, ma nel nostro sito troverà sicuramente altri modelli con la costruzione che preferisce. Buon lavoro!

08.10.2019 - 19:30

country flag Claire wrote:

J'adore ce modèle ! Assez large et comfortable , et en même temps il est très élégant !

31.08.2019 - 17:39